Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 24
Fæði og húsnæði þýddi öryggi og öryggi skiptir öllu máli þegar þú ert móðir. Stór hluti viðmæl- enda minna átti í ástar- sam- bandi meðan á vistinni stóð. Á síðustu öld var félagslega kerfið ekki burðugt og margar ungar og einstæðar mæður flúðu í sveitirnar í ráðskonu- störf. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir rannsakaði sögu þeirra. Á síðustu öld gátu ungar einstæðar mæður á hrakhólum leitað skjóls í sveitunum sem ráðs- konur. Þær fengu fæði og húsnæði og andrými til að fóta sig í lífinu. Þetta var þó ekki hættu- laust því að stór hluti þeirra varð fyrir of beldi, líkamlegu, andlegu eða kynferðislegu, af hálfu bænda og þá var ekki hlaupið að því að komast undan. Dalrún Kaldakvísl Eygerðardóttir sagnfræðingur rann- sakaði heim íslenskra ráðskvenna árin 1950 til 2000 í doktorsrann- sókn sinni. „Flestar ráðskonurnar sem rætt var við minnast vistarinnar með hlýhug,“ segir Dalrún sem varði doktorsritgerð sína nýverið en stefnt er að því að gefa hana út sem bók á næsta ári. Föðuramma Dalrúnar var ráðskona í sveit, ein- stæð móðir sem fór með börn sín á nokkra bæi. Það er ein af ástæð- unum fyrir áhuga Dalrúnar á rann- sóknarefninu sem og að þessi starfs- stétt hafði ekkert verið rannsökuð. Lítið var til af rituðum heimildum um ráðskonur en Dalrún fékk inn- sýn í heim þeirra með viðtölum sem hún tók við konur sem höfðu sinnt þessu starfi á einhverjum tíma- punkti í lífi sínu. Hún auglýsti eftir ráðskonum, meðal annars í Bændablaðinu, spurðist fyrir og fékk ábendingar. Alls ræddi hún við 41 konu sem hafði gegnt ráðskonustarfi á 72 sveitabæj- um, en tók auk þess 17 önnur viðtöl við einstaklinga sem gátu gefið aðra sýn á ráðskonustarfið. Ungar og einstæðar mæður Ráðskona var nokkurs konar ígildi eða staðgengill húsmóður, yfirleitt á bæjum þar sem engin húsmóðir var til staðar eða var fjarverandi. Oftast voru einhleypir bændur vinnuveit- endurnir. Ráðskona hafði sömu skyldur og húsmóðirin en var hjú, ekki hluti af fjölskyldunni. Fyrst og fremst höfðu þær hússtjórnarstörf með höndum en hluti þeirra vann einnig hefðbundin sveitastörf utan- stokks. „Þetta voru alþýðukonur, f lestar ungar með litla menntun og höfðu unnið láglaunavinnu í þéttbýlinu. Til dæmis í fiskverkun eða í verk- smiðjum,“ segir Dalrún. Langstærsti hluti ráðskvenna voru einstæðar mæður með mjög ung börn sem voru með þeim í vistinni, en einnig einhleypar barnlausar konur. Mjög óalgengt var að giftar konur sinntu ráðskonustörfum. Margar einstæðu mæðurnar áttu það sameiginlegt að hafa veikt bak- land og engan eða lítinn stuðning frá barnsfeðrum sínum, sumar jafn- vel nýkomnar úr ofbeldissambandi eða erfiðu hjónabandi. Húsnæðis- Ráðskonustarfinu fylgdi bæði öryggi og hætta á ofbeldi Dalrún tók viðtöl við 41 konu sem gegnt hafði ráðskonustarfi í sveit. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR vandi þeirra bætti ekki úr skák og sumar höfðu í engin hús að venda. „Á mölinni þurftu einstæðu mæð- urnar jafnvel að sinna fleiri en einu starfi til að láta hlutina ganga upp. Því fylgdi að þær þurftu að útvega dagvistun fyrir börnin, sem var erf- itt að fá fyrr en síðla á 20. öld. Víta- hringur einstæðra mæðra á mölinni olli því að launin hrukku oft ekki fyrir leigu, mat og dagvistun,“ segir Dalrún. „Þetta eilífa streð einstæðra mæðra gerði það að verkum að þær sáu ráðskonustarf til sveita sem lausn á sínum málum. Fæði og hús- næði þýddi öryggi og öryggi skiptir öllu máli þegar þú ert móðir.“ Ráðskonustarf á sveitabæjum gaf einstæðum mæðrum einn- ig tækifæri til þess að verja meiri tíma með börnum sínum en mögu- legt var þegar þær unnu fyrir sér og börnum sínum á mölinni. Því ráðskonustarfið var eitt af örfáum störfum þar sem hægt var að vera með börnin í vinnunni. Engin réttindi Þrátt fyrir þetta öryggi sem ráðs- konustarfið skapaði einstæðum mæðrum voru starfsréttindi ráðs- kvenna að segja má engin. Launa- samningar þeirra voru munnlegir og orlofs- eða lífeyrisréttindum ekki til að dreifa, enda ekkert stéttarfélag til að leita til. „Þær töluðu f lestar um launin sem hálfgerðan vasapening í við- tölunum,“ segir Dalrún um þau laun sem f lestar ráðskonur fengu, auk fæðis og húsnæðis sem var launa- ígildi. Flestar konurnar voru í einni vist en allnokkrar í tveimur. Dæmi voru þó um að konur réðu sig í vist á fleiri bæjum. Sumar fóru aftur og aftur á sama bæinn, einkum á sumrin þegar þörfin var mest fyrir ráðs- konur í sveit. Oft mynduðust sterk tengsl milli ráðskvennanna og heimilisfólks- ins. Náin samskipti sem almennt myndast ekki á vinnustöðum því að vinnustaður ráðskvenna var einkaheimili. En slík samþætting vinnu og heimilis leiddi af sér aukna hættu á því að ráðskonur yrðu fyrir of beldi. Sérstaklega í ljósi þess að opinbert eftirlit með vinnustaðnum sveitaheimilinu var ekkert. Slæmir bæir Þriðjungur viðmælenda Dalrúnar varð fyrir of beldi í ráðskonuvist sinni. Fjórðungur kvennanna varð fyrir kynferðisof beldi. Sumar af þeim höfðu kynnst ofbeldi áður en þær fóru í vistina, annaðhvort úr hjónabandi sínu eða frá fyrri vinnu- stöðum. En ofbeldið sem þær urðu fyrir á sveitabæjunum var af öðrum meiði, því sveitabærinn var í senn samastaður þeirra og vinnustaður. Lýsingunum sem hún tók niður eftir ráðskonum sem urðu fyrir of beldi í ráðskonuvist sinni segir Dalrún svipa mjög til lýsinga af heimilisof beldi. Einkum hvað varðar þátt valdaójafnvægisins milli ráðskonunnar og bóndans. „Bóndinn var með fjárráðin og stýrði öllu inni á heimilinu en ráðs- konan var berskjaldað vinnuafl,“ segir Dalrún. Það var ekki hlaupið að því að f lýja of beldi á sveita- bæjum. Dalrún segir að konur sem lentu á „slæmum bæjum“ og urðu þar fyrir ofbeldi hafi verið einangr- aðar og eina úrræði þeirra hafi verið að koma sér úr vistinni. Ástir í sveit Hið nána sambýli ráðskvenna og bænda leiddi stundum til náinna kynna. „Stór hluti viðmælenda minna átti í ástarsambandi meðan á vistinni stóð,“ segir Dalrún. „Annað- hvort með bóndanum, bóndasyn- inum eða öðrum úr sveitinni sem þær hittu, til dæmis á balli.“ Ef ráðskonur tóku saman við bóndann urðu þær húsmæður á bænum og þá breyttist staða þeirra. Þær voru ekki lengur hjú heldur hluti af fjölskyldunni og nutu þess þá að húsmóðurstaðan var virðing- arstaða. „Rómantískt samband milli bænda og ráðskvenna er ákveðið þrástef í sögunni,“ segir Dalrún. Hlýhugur til starfsins Dalrún segir að flestar kvennanna sem hún tók viðtöl við hafi verið þakklátar fyrir að þetta atvinnu- úrræði hafi verið í boði á sínum tíma. Auk þess kunnu þær að meta reynsluna sem þær öðluðust í ráðs- konustarfinu. Hins vegar nefndu sumar ein- stæðu mæðranna að þær hefðu viljað að velferðarkerfið hefði verið með þeim hætti að þær hefðu getað haft annan valkost. Velferðar- kerfið var hins vegar ekki nægilega burðugt fyrr en síðla á 20. öldinni. Undir lok 20. aldarinnar gerðu breytingar í íslensku þjóðfélagi það að verkum að starf íslensku ráðs- konunnar leið í reynd undir lok. Þetta gerðist meðal annars vegna mikillar uppbyggingar í félagslega kerfinu og tilheyrandi umbótum í dagvistunarmálum. „Eftir situr merkileg saga kvenna- starfsstéttar frá miklum umbrota- tímum í atvinnusögu þjóðarinnar,“ segir Dalrún. n Ráðskonur voru eftirsóttar á árum áður á sveitaheimilum þar sem engin húsmóðir var til staðar. Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur @frettabladid.is 24 Helgin 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.