Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 62
Sumar hafa notað
fatnaðinn í sumar-
fríum og aðrar hafa
notað hann í fjallgöng-
una en vörurnar líta
ekkert endilega út fyrir
að vera sérsniðnar fyrir
golf þó þær séu það nú
reyndar.
Rúmlega 80 félags-
menn munu standa
vaktina með okkur en
án þeirra væri ekki
hægt að halda slíkt
mót.
Ólafur Pálsson olafur@vf.is - Páll Ketilsson pket@vf.is
Golffréttir og umfjöllun alla daga
Golfa er vefverslun með
golffatnað fyrir konur. Hug-
myndin kviknaði síðastliðið
haust en verslunin hóf göngu
sína í febrúar. Katrín Garðars-
dóttir er eigandi golfa.is og
verslunarstjóri.
kylfingur.is
Katrín er ekki ókunnug verslun og
þjónustu en hún hefur m.a. starfað
í kvenfataverslun áður. Þá er hún
ástríðukylfingur en hún hellti sér af
fullum krafti í golfið fyrir 5-6 árum
síðan. Raunar stundar fjölskyldan
golf, alveg eins og hún leggur sig,
þó sumir spili meira en aðrir en
sonur Katrínar, Jóhann Frank Hall-
dórsson, er í piltalandsliði Íslands,
sem leikur á Evrópumóti um þessar
mundir.
„Þessi hugmynd kviknaði eftir
golf hring síðasta haust en við
hjónin vorum í golfferð og vorum að
slaka á eftir hringinn þegar ég er að
ræða einsleitni á markaði á Íslandi í
golffatnaði fyrir konur. Mér fannst
vera gat á markaðnum og í kjölfarið
fór ég að hugsa og vafra um á net-
inu en þá hafði ég séð eitt af þeim
merkjum, sem ég er að selja á golfa.
is, í verslun á erlendum golfvelli.“
Katrín ákvað að senda fyrir-
spurn á framleiðanda vörunnar
og fékk svar nokkuð f ljótt. Tölvu-
póstar gengu á milli og þegar
Katrín hafði kynnt sig og sínar
hugmyndir komst hún í sam-
band við dreifingaraðila og stakk
sér í kjölfarið í djúpu laugina. En
hvernig hefur reksturinn gengið?
„Það hefur gengið virkilega vel. Ég
hef frá upphafi fengið góðar við-
tökur en ég opnaði vefverslunina
í febrúar sl. Þegar ég opnaði hafði
ég bætt við öðru merki og ekki leið
á löngu þar til þriðja merkið bætt-
ist við vörulínuna.“ Katrín segir að
framleiðendur og dreifingaraðilar
merkjanna allra hafi sýnt mikinn
samstarfsvilja og haft einlægan
áhuga á Íslandi og að selja vör-
urnar hér á landi. Nú þegar tæpt
ár er síðan Katrín hóf rekstur-
inn segir hún að samskiptin séu
orðin persónuleg og samstarfið sé
einkar gott við framleiðendur og
dreifingaraðila. „Það kom mér svo-
lítið á óvart hvað allir voru spenntir
fyrir því að selja hér á þessum litla
markaði. Við fundum strax mikinn
samhljóm. Mér fannst vanta golf-
fatnað fyrir konur sem hannaður
er með þeirra þarfir í huga og jafn-
vel af konum. Meirihlutinn af þeim
sem ég er að versla við eru að hanna
og framleiða fyrir konur og á þeim
forsendum að þeim fannst vanta
eitthvað inn á markaðinn rétt eins
og mér sjálfri fannst vanta eitt-
hvað slíkt hér á Íslandi. Það er allt-
af gaman þegar þetta helst svona í
hendur.“
Í vefverslun golfa.is býður Katrín
upp á mikla breidd í fatnaði, allt frá
toppum, bolum, buxum og peysum
til kjóla og pilsa, vesta og jakka. Þá
hefur hún einnig til sölu fylgihluti
á borð við veski og töskur, húfur og
sokka, sem og leðurbelti framleidd
af fjölskyldufyrirtæki í Kanada.
Fatnaðurinn er einkar vandaður en
merkin eru f lest amerísk og bresk
þó eitthvað sé framleitt á Ítalíu.
Katrín segist reyna að stilla verði
í hóf sem hún frekast getur. „Ég er
ekki með mikla yfirbyggingu. Versl-
unin er fyrst og fremst vefverslun og
ég er hvorki með leigt eða keypt hús-
næði undir starfsemina, sem ætti
að skila sér í lægra verði. Ég er hins
vegar með f lotta og góða aðstöðu
þar sem ég er með vörurnar og upp-
lifunin að ganga inn í það húsnæði
er svolítið eins og að ganga inn í litla
golffataverslun. Þar hef ég verið að
taka á móti þeim sem af einhverjum
sökum treysta sér ekki til að nota
vefverslunina. Ég vonast til þess
að geta þegar fram líða stundir
boðið upp á ákveðinn afgreiðslu-
tíma í litlu versluninni fyrir þá sem
þangað vilja sækja.“
Katrín segir að þau fjögur merki
sem hægt er að nálgast á golfa.is séu
öll frekar ólík og þá segir hún að
margar konur kaupi föt á golfa.is án
þess að hafa nokkurn tímann leikið
golf. „Sumar hafa notað fatnaðinn
í sumarfríum og aðrar hafa notað
hann í fjallgönguna en vörurnar
líta ekkert endilega út fyrir að vera
sérsniðnar fyrir golf þótt þær séu
það nú reyndar.“ Katrín segist hafa
tekið á móti hópum. „Ég hef boðið
til mín smærri hópum sem hafa
komið og valið sér eitthvað sam-
stætt fyrir einhver tilefni. Ég horfi
til þess að veita góða og persónu-
lega þjónustu.“ Rafrænt gjafakort
golfa.is er fullkomin leið til að dekra
við kylfinginn í lífi þínu – gjöf fyrir
afmæli eða önnur tækifæri. Hægt er
að nálgast gjafakortin í vefverslun-
inni. Þú velur þá upphæð sem þér
hentar.
Merkin sem í boði eru á golfa.
is; Tail, Golftini og Belyn Key eru
merki sem leggja mikið upp úr
gæðum, sniðum og efnisvali, segir
Katrín. „Fatnaður frá þessum
merkjum er mikið til hannaður af
konum sem eru með þarfir sínar og
annarra kvenna í huga. Þá bjóðum
við gæðapeysur úr ítalskri merino
ull frá Birdie London. Sennilega er
eitt mesta úrval af golffatnaði fyrir
konur að finna á golfa.is. Allar vörur
eru sendar án endurgjalds á næsta
pósthús eða í póstbox. Ég vil hvetja
konur á öllum aldri til að kynna
sér úrvalið á golfa.is og minni á að
það er alltaf hægt að senda tölvu-
póst og fá að koma og líta inn í litlu
verslunina. Þar ættu allar konur að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ n
Vefverslun með þarfir kvenna í huga
Katrín er með
góða aðstöðu
fyrir starf-
semina og litla
verslun sem hún
vonast til að
geta haft meira
opna. Hér er
hún í fatnaði frá
Golftini.
MYND/AÐSEND
kylfingur.is
Landslið Íslands eru á ferð og flugi
um þessar mundir en Evrópumót
fara fram víðs vegar í álfunni auk
verkefna hjá elstu landsliðunum.
Keppnisfyrirkomulag Evrópumóta
er með þeim hætti að fyrstu tvo
keppnisdagana er leikinn högg-
leikur þar sem fimm lægstu skorin
hjá hverju liði telja. Liðunum er
raðað upp í riðla eftir árangri í
höggleiknum þar sem átta efstu
liðin leika í holukeppni í A-riðli um
sjálfan Evrópumeistaratitilinn en
önnur lið leika um sætin þar fyrir
neðan.
Karlalandslið Íslands leikur á
hinum goðsagnakennda Royal St.
George’s velli á Englandi en Opna
mótið hefur 15 sinnum farið fram
á vellinum, síðast á síðasta ári.
Íslenska liðið hafnaði í 16. sæti í
höggleiknum og leikur í B-riðli
holu keppninna r. Ev rópu mót
kvennalandsliða fer fram á Conwy
vellinum í Wales. Íslenska liðið
hafnaði í 15. sæti höggleiksins og
keppir því einnig í B-riðli Evrópu-
mótsins. Stúlknalandslið Íslands
leikur á Evrópumótinu á Urriða-
velli. Stúlkurnar höfnuðu í 16. sæti
í höggleiknum og leika í C-riðli Evr-
ópumótsins. Piltalandsliðið leikur
í 2. deild Evrópumótsins, sem fram
fer á Pravets vellinum í Búlgaríu.
Þegar blaðið fór í prentun höfðu þeir
leikið fyrri hringinn í höggleiks-
keppninni og sitja í 7. sæti. n
Landsliðin á ferð og flugi
Stúlknalandslið Íslands 2022. Efri röð frá vinstri: Pamela Ósk Hjaltadóttir úr
GM, Katrín Sól Davíðsdóttir úr GM og Berglind Erla Baldursdóttir úr GM. Neðri
röð frá vinstri: Ragnhildur Kristinsdóttir liðsstjóri, Karen Lind Stefánsdóttir
úr GKG, María Eir Guðjónsdóttir úr GM og Sara Kristinsdóttir úr GM.
MYND/SIGURÐUR ELVAR ÞÓRÓLFSSON
Mæðgurnar,
Katrín og Andr-
ea Rut, skarta
Belyn Key og
Tail á Hof Trages
golfvellinum
nærri Frankfurt.
Katrín spókar
sig á golfvell-
inum í buxum
frá Tail og peysu
og topp frá
Golftini.
kylfingur.is
Það er sannkölluð golfhátíð á Urr-
iðavelli Golfklúbbsins Odds í vik-
unni þar sem Evrópumót stúlkna-
landsliða fer fram. Þetta er í fyrsta
sinn sem mótið fer fram á Íslandi
en EM kvenna fór fram á sama velli
árið 2016.
Þorvaldur Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Golfklúbbins Odds,
sagði í stuttu spjalli við kylfing.is
nú undir kvöld að allt hafi gengið
mjög vel til þessa. „Við finnum fyrir
ánægju og gleði meðal viðstaddra.
Það rigndi aðeins seinni partinn
en það kom nú ekki að sök. Stelp-
urnar eru að slá virkilega vel og ná
þokkalegu skori. Þetta eru hörku-
kylfingar. Þær eru ekkert síðri en
þær sem voru hér á EM kvenna fyrir
sex árum síðan. Það verður virkilega
gaman að fylgjast með þeim áfram
í vikunni og á stærri sviðum í fram-
tíðinni,“ sagði Þorvaldur.
Þorvaldur sagði margar hendur
þurfa á dekk til að gera Evrópumót
sem þetta að einstökum og eftir-
minnilegum viðburði.
„Það þarf margar hendur til þess
að gera Evrópumót stúlknalands-
liða að einstökum og eftirminni-
legum viðburði. „Við leituðum til
okkar frábæru félagsmanna og ósk-
uðum eftir sjálf boðaliðum. Græni
sjálfboðaliðaherinn okkar frá árinu
2016 svaraði kallinu með glæsibrag
og voru viðbrögðin framar vonum.
Rúmlega 80 félagsmenn munu
standa vaktina með okkur en án
þeirra væri ekki hægt að halda slíkt
mót.“ n
Golfhátíð á
Urriðavelli
EM stúlknalandsliða fer fram á Urr-
iðavelli GO, einum fallegasta velli
landsins. MYND/HELGA & MARINO
38 Bílar 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐGOLF FRÉTTABLAÐIÐ 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR