Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 66
Hefur þig einhvern tíma langað til að sjá íslenskt ljóðskáld taka selfie í París? Eða ryksuguvélmenni sem þrífur á sjávarbotni? ragnarjon@frettabladid.is Hefur þig einhvern tíma langað til að sjá íslenskt ljóðskáld taka self­ ie í París? Eða ryksuguvélmenni sem þrífur á sjávarbotni? Eða önd með rauðan topphatt sem stendur í skógi? Allt þetta og meira getur þú séð með hjálp nýrrar gervigreindar sem ber nafnið Craiyon. Crayion er myndrænt textafor­ rit sem býr til myndir út frá þeim texta sem settur er inn í hana. Eftir að texti hefur verið sleginn inn ber hún hann saman við myndir sem gervigreindin hefur í gagnagrunni sínum og býr til samsetningu sem oft og tíðum kemur út eins og list­ ræn túlkun á textanum. Til dæmis í meðfylgjandi mynd er túlkun Craiyon á textanum „blaða­ maður sem skrifar um craiyon“. En lesendur eru vissulega einungis takmarkaðir af ímyndunarafli sínu þegar það kemur að sköpun mynd­ efnis. Craiyon var búið til af bandaríska tölvunarfræðingnum Boris Dayma en hann bjó forritið upprunalega til fyrir kóðunarsamkeppni og byggði þá hugmyndina á gervi­ greindinni DALL­E 2 sem búin var til af fyrirtækinu OpenAI. Uppruna­ lega kallaði Dayma sína gervigreind DALL­E mini eftir fyrirmyndinni en var síðar meir beðinn um að breyta nafninu. Það forrit er tals­ vert öflugra en er þó ekki í opnum aðgangi. En sem betur fer geta allir notað Craiyon með því að fara inn á heimasíðu gervigreindarinnar craiyon.com. n Craiyon aðeins takmörkuð af ímyndunaraflinu Skjáskot af vefsíðu Craiyon. ninarichter@frettabladid.is Íslendingar kveinka sér við kulda og rigningu þessi dægrin. Spáð er votviðri víða um land næstu vikuna. Ferðamenn sem Fréttablaðið ræddi við á ferli í miðborg Reykjavíkur láta regnið ekkert á sig fá og sumir þakka jafnvel fyrir að losna úr hita í heimalandinu. Ferðamenn brattir þótt spái rigningu Rebekka og Sebastian eru frá Þýskalandi. Hún er í fyrsta sinn á Íslandi en Sebastian er að koma í annað sinn. Hann var hér fyrir 10 árum síðan. „Veðrið er allt í lagi, miðað við íslenskt veður,“ segja þau og hlæja. Rebekka segist hafa skoðað veðurspána áður en lagt var af stað og áttað sig á að spáð væri rigningu næstu 40 dagana. Þau ætla að skella sér í hringferð um landið og stefna á hálfs mánaðar ferðalag. n Ferðalangur frá Ísrael segir að ferðin hafi verið dásamleg hingað til. Hún kippir sér ekki upp við kalt veður og regn, enda sé hún í góðri úlpu. Hún, sem ferðamaður, sé frekar upptekin af því að heillast af nýjum hlutum og sjá og upplifa. Hún dásamar náttúru landsins sem hún segir kynngimagnaða. „Það er miklu kaldara hér en heima þannig að allt umhverfið er allt öðruvísi. Landslagið, dýrin og blómin, bara allt.“ n Hjónin Ole og Eve, Odd og eiginkona eru frá Norður-Noregi. Þau eru í hópi farþega á skemmtiferðaskipi sem siglir frá Amsterdam með viðkomu á Íslandi og Írlandi. „Í Íslands- leggnum stoppum við í tvo daga á Akureyri og í tvo daga hér í Reykjavík,“ segir Odd. Í gær var seinni dagur hópsins í Reykjavík. „Fyrri daginn leigðum við bíl og fórum Gullna hringinn. Eftir dag í köldu og blautu veðri stóð upp úr að skella sér í Secret Lagoon,“ segir hann, og vísar til Gömlu laugarinnar á Flúðum. Aðspurð um væntingar til veðursins segja þau að í ljósi þess að þau komi frá Norður-Nor- egi komi það lítið að sök. Þau hafi ekki búist við heitu veðri. n Sam er frá Wisconsin í Bandaríkjunum, kom til lands- ins fyrir viku síðan og fer heim í dag. Þetta er fyrsta Íslandsheimsóknin. „Þetta hefur verið ótrúlegt, alveg frábært. Við fórum Gullna hringinn og það var æðis- legt. Við höfum líka eytt nokkrum dögum í borginni.“ Sam kveðst síður en svo vera óánægður með veðrið. „Við fengum nokkra blíðviðrisdaga í upphafi en síðan kom kuldi og rigning. En það er í góðu lagi enda er 35 gráðu hiti og rakt loft heima, þannig að þetta er bara fínt.“ n „Við erum vön sumarhita,“ segja bandarísk hjón, ættuð frá Flórída og Nýju-Mexíkó. „Það gleður okkur að sjá í bláan himin í dag, þetta gæti verið okkar eina tækifæri til þess í þessari ferð.“ Í fyrradag var fyrsti dagur ferðarinnar sem nýttur var í heimsókn í Bláa lónið. „Við ætlum að keyra í 12 daga, kafa í Silfru, ferðast á vélsleðum uppi á jökli, kíkja í hvalaskoðun og gera alls konar ferðamennskutengda hluti,“ segja þau og það er ljóst að hér er mikið ævintýrafólk á ferð. Þau segja veðrið ekki setja strik í reikninginn að neinu leyti. „Við förum í svona ferð einu sinni á ævinni og hvað á maður að gera? Hanga inni vegna þess að það er rigning? Ég held nú síður. Veðrið á þó sennilega eftir að valda því að við kaupum meiri úti- vistarfatnað en upphaflega stóð til.“ n SJÓNVARP Stranger Things 4. sería Leikstjórn: Duffer-bræður Dreifing: Netflix arnartomas@frettabladid.is Það er kannski ekki skrítið að Net­ f lix hafi ákveðið að skipta útgáfu f jórðu seríu Stranger Things í tvennt. Þættirnir eru þeir langvin­ sælustu á streymisveitunni sem hefur átt um sárt að binda og því auðveldur peningur í því að neyða fólk til að halda áskriftinni sitt hvorn mánuðinn. Frekar lúalegt, en hvað um það. Það er aðeins spólað áfram áður en þættirnir taka upp þráðinn frá því síðast, sem er gott því blessuð börnin líta öll út eins og þau séu orðin ansi fullorðin. Uppbyggingin er ansi svipuð fyrri seríum – allt leikur í lyndi í smábænum Hawkins áður en skuggar Áhvolf heimsins teygja sig þar inn. Af hverju býr fólk enn þá þarna? Á heildina litið er serían frekar góð, líklega sú besta sem þættirnir hafa átt fyrir utan þá fyrstu. Þrátt fyrir að sagan taki sig ekki of alvar­ lega þá er hryllingurinn talsvert meiri en oft áður og mörg atriði ansi óhugguleg. Endurlífganir á Metallica og Kate Bush hitta beint í mark eins og sjá má á vinsælda­ listum heimsins. Á heildina litið tekst ágætlega til við að þræða saman sögusvið margra persóna. Á sumum stöðum er þó hjakkað ansi mikið í sama farinu og maður veltir fyrir sér hvort einhverjar persónur upprunalegu seríunnar megi ekki fara að missa sín. n NIÐURSTAÐA: Fjórða sería Stranger Things er ágæt, betri en síðustu tvær. Hríðlækkandi fasteignaverð í Hawkins Þættirnir mættu minnst losna við eins og eina til tvær persónur sem hafa fylgt þeim frá fyrstu seríunni. 42 Lífið 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.