Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 68
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/ SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is arnartomas@frettabladid.is Ég verð að viðurkenna að ég er búinn að vera hérna í viku í laxveiði og veit ekkert hvað er að gerast. Ég er algjörlega out. Það fréttnæmasta hjá mér er að Kristján, unglingurinn stóri á Hólavegi, stökk alklæddur út í á upp að bringu til að háfa fisk fyrir mig. Ég setti í stóran lax en gat ekki tekið hann því það var svo djúpt í ánni, svo ég hringdi í vin minn sem bað Kristján að koma. Það vantaði háf, svo hann þurfti að græja það á meðan ég glímdi við laxinn. Þegar Kristján kemur aftur þá er hann bara í f lísbuxum og íþrótta- skóm. Þetta var í fyrsta skipti sem hann var að háfa alvöru lax og ég sagði við hann: „Jæja, nú verður þú bara að hoppa út í.“ Hann var sko aldeilis til í það og stökk út í. Ég sá að þetta leit ágætlega út svo ég stökk ofan í líka, en gleymi því að drengurinn er um tveir metrar, svo það f læddi ofan í allt hjá mér! Strákurinn stóð sig hins vegar eins og herforingi og það var mikil gleði og mikill stemmari. Svo þetta er það fréttnæmasta hjá mér í vikunni. n Háfamál, herforingjar og flísbuxur n Frétt vikunnar Bubbi Morthens Bubbi Morthens. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Barnabarnabarn Ragga Bjarna hefur endurútsett lagið Við bjóðum góða nótt, og gefið það út en þetta er hans fyrsta útgáfa undir eigin nafni. ragnarjon@frettabladid.is Einar Örn Magnússon er ungur og upprennandi tónlistarmaður úr Garðabænum. Hann stefnir á útgáfu sinnar fyrstu EP-plötu á næstunni en hans fyrsta lag undir eigin nafni kom út í gær. Lagið er ný útsetning á laginu Við bjóðum góða nótt, eftir Bjarna Böðvarsson, en lagið er þekktast í f lutningi sonar Bjarna, Ragnars Bjarnasonar, eða Ragga Bjarna. Ástæðan fyrir valinu á laginu er einföld en Einar Örn er langafabarn R ag na r s Bja r na- sonar. Fréttablaðið tók Einar Örn tali og fékk að heyra skemmtilegar sögur af afa Ragga ásamt því hvernig nýja útsetningin varð til. „Eitt, tvö og þrjú var algjörlega að víkja ekki of langt frá upprunalegu út setning unni, þetta er mjög merk i leg t lag fyrir mér og við sáum til þess að kjarninn væri nákvæmlega sá sami. En svo reynd- um við að hugsa hverju við gætum breytt og þá datt okkur strax í hug að gefa þessu smá suðrænan blæ og úr varð þetta,“ segir Einar sem bæði syngur og leikur á píanó í laginu. Afi Raggi Einar segir að sambandið við lang- afa sinn hafi verið mjög náið og hann hafi leitað mikið til hans sem barn. „Hann á t t i f u l l t a f b a r n a - börnum og barnabarna- b ö r n u m en við ein- hvern veginn e n d u ð u m alltaf saman, a l ve g s a m a hvar við hitt- umst. Ég hafði svo gaman af b r a n s a s ö g - unum hans. Svo var hann alltaf að sýna mér einhverja nýja tónlist í bílnum sínum og við vorum alltaf í einhverjum rosalegum pælingum. Þetta var mjög mótandi fyrir mig,“ segir Einar. Spurður um minnisstæða sögu af afa Ragga stendur ekki á svörum. „Þær eru nokkrar, en sú fyrsta sem mér dettur í hug er þegar ég kom fram með honum á 85 ára tónleik- unum fyrst. Þá mæti ég á nokkrar æfingar og svo er mér f leygt út á svið. Þetta var í Eldborg og ég var þarna að spila með alls konar risastórum nöfnum. Þannig leið mér svolítið eins og héra í háu ljósunum. En svo stíg ég á sviðið og fer að syngja og er rosalega sáttur við sjálfan mig. Svo er ég búinn og geng af sviðinu og afi Raggi mætir mér og hælir mér alveg rosalega: „Þetta var stórglæsilegur píanóleikur, þú ert afbragðs tónlist- armaður, það er núna allt að fara að gerast fyrir þig.“ En svo bætir afi við snögglega: „Við sjáum til með söng- inn.“ En ég hló nú bara að þessu,“ segir Einar sem segir að alltaf hafi verið stutt í húmorinn hjá Ragga. Lagið sem gengur í erfðir Lagið sem Einar tekur fyrir á sér sérstaka sögu en segja má að lagið gangi í erfðir innan f jölskyldu hans. „Já, þetta er eiginlega svolítið þannig. Þetta er rauði þráðurinn í þessu öllu saman,“ segir Einar og bætir við: „Það sem er þó merkilegast við þetta lag er að hann afi Raggi var rosalega sveigjanlegur með marga hluti þegar hann kom fram. En þetta var alltaf lagið sem endaði tónleikana hans. Þetta er lagið sem segir, alveg sama hversu mikið stuð var áður, þá er núna tími til að kveðja, bless, þetta er komið gott,“ segir Einar sem stefnir nú heils hugar á atvinnumennsku í tón- listarbransanum. „Já, ég hugsa það. Maður er orð- inn nógu vitlaus til þess,“ segir hann og hlær, „en maður útilokar ekki eitt né neitt. Ég meina, afi Raggi, hann var leigubílstjóri og átti bílaleigu og átti verslun og fór út til Banda- ríkjanna. Ég veit ekki helminginn af því sem karlinn gerði. Svo guð má vita það hvað maður sjálfur gerir í framtíðinni.“ n Einar Örn býður góða nótt Einar Örn stefnir nú á atvinnu- mennsku í tónlistarbransanum. MYND/AÐSEND Á góðri stund með afa Ragga. MYND/AÐSEND S.BEDDING Dúnsæng. 1300g 85% smáfiður og 15% hreinn andardúnn. 135 x 220 cm. Fullt verð: 14.900 kr. DANADREAM Ergo magic dúnkoddi með innri kjarna úr minnissvampi. Fullt verð: 14.900 kr. 50% AFSLÁTTUR Nú 7.450 kr.Nú 7.450 kr. Chiro heilsudýnurnar eru með vandað pokagormakerfi sem býður upp á minni hreyfingu milli rekkjunauta og betri aðlögun að líkama þínum. Yfirdýnan er svæðaskipt með slitsterkt og mjúkt bómullaráklæði. Dýna sem tryggir réttan stuðning við mikilvæg svæði eins og t.d. neðra mjóbak og axlarsvæði. Til í fleiri stærðum. Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð, afsláttarkóða eða aðgang að útsölum á undan öðrum með því að skrá þig á póstlista Dorma. KOLDING hægindastóll og skammel Opið á sunnudögum á Smáratorgi 13-17 30% AFSLÁTTUR Nú 47.920 kr. 160x200 cm Fullt verð: 59.900 kr. Stillanlegur stóll í dökkgráu, rauðu eða svörtu PVC áklæði. Verð 169.990 kr. Nú 118.930 kr. CHIRO UNIVERSE heilsudýna 20% AFSLÁTTUR LÝKUR Á MÁNDAG Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði 44 Lífið 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.