Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 16
Það er viss pressa á þeim að komast áfram úr riðl- inum. Imka Courtois Þetta fer að nálgast 130 leiki, það er eins gott að maður geti miðlað einhverju til yngri kynslóðanna. Hallbera Guðný Gísladóttir Tessa Wullaert, fyrirliði belgíska landsliðsins, var á síðasta ári eini atvinnumaður- inn í belgísku kvennadeild- inni. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Íslenska kvennalandsliðið mætir Belgum í fyrsta leik á Evrópumóti kvenna um helgina. Leikmennirnir segja að stemningin sem myndað- ist á opnunarleiknum hafi aukið spennuna fyrir fyrsta leik og segir Hallbera Guðný Gísladóttir að það sé ekkert launungarmál að þær ætli upp úr riðlinum. kristinnpall@frettabladid.is EM 2022 Hallbera Guðný Gísladóttir, bakvörður íslenska kvennalands- liðsins, sem er á sínu þriðja stórmóti með íslenska kvennalandsliðinu, segir það ekkert launungarmál að íslenska liðið ætli sér upp úr riðl- inum. Ísland mætir Belgum í fyrsta leik Stelpnanna okkar í Manchester á morgun í leik sem er líklegur til að leggja línurnar fyrir íslenska liðið það sem eftir lifir riðlakeppninnar. Þetta verður fjórða viðureign lið- anna, sex árum frá síðustu viður- eign liðanna. Til þessa hafa liðin unnið sitt hvorn leikinn og einum leik lokið með jafntefli og marka- talan 2-2. „Við erum að sjálfsögðu með markmið um að komast upp úr riðlinum. Við höfum ekkert verið feimnar við það að segja það að markmiðið er að fara lengra en riðla- keppnina. Mér finnst við vera með góða blöndu og ef allt gengur upp ætti hvað sem er að geta gerst í þessu móti þótt við vitum að þetta verði erfiðir andstæðingar,“ sagði Hallbera þegar Fréttablaðið ræddi við hana á hóteli landsliðsins í gær. „Ég held að þetta verði mjög jafnir leikir gegn Belgum og Ítölum. Þetta verða sennilega bara eins og úrslita- leikir. Við vitum að þetta verður erfitt, en á sama tíma vitum við að við erum með lið til að taka einhver stig úr þessum leikjum.“ Belgar eru að fara á sitt annað stórmót og er að finna fjölmarga reynslumikla leikmenn innan raða liðsins. „Ég held að það sé gott að byrja gegn Belgum og Ítölum. Ég man reyndar ekki eftir að hafa spilað við Belga áður en þetta verður áhuga- verð viðureign og við komum vel gíraðar inn í mótið. Maður er meira farinn að meðtaka það að þetta sé handan hornsins og tilfinningin er frábær. Þegar ég hugsa út í að þetta byrji um helgina kemur bara fiðringur í magann,“ segir Hallbera glaðbeitt og heldur áfram: Kominn fiðringur að byrja þetta mót Hallbera Guðný og Berglind Björg voru léttar í lund þegar þær ræddu við fjölmiðla í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Aðalbygging hótelsins sem Stelpurnar okkar dvelja á er frá sautjándu öld. „Við fylgdumst með opnunarleik mótsins á Old Trafford og fundum það strax að það var komin mikil spenna að spila fyrsta leikinn okkar.“ Hún segir að það sé ekkert gefið eftir á æfingunum enda samkeppn- in mikil. „Það hefur komið meiri áhersla á taktískari hluti undanfarna daga, það er helsti munurinn svona á milli æfinga. Keppnisskapið er svo sannarlega til staðar og ákefð á æfingunum, það breytist ekki. Svo fáum við góða kynningu á Belg- unum frá leikgreinendunum,“ sagði Hallbera, aðspurð hvort að ákefðin væri farin upp um eitt stig síðustu daga og hvort að hún væri búin að kynna sér belgíska liðið vel. Hallbera er í nýju hlutverki á mótinu sem einn af reynslumestu og elstu leikmönnum liðsins en hún segist telja sig vera að miðla af reynslunni til yngri leikmannanna. „Það tók mig vissulega smá tíma að þroskast en ég er er orðin alvar- legri einstaklingur núna þótt það sé alltaf stutt í glensið. Þetta fer að nálgast 130 leiki, það er eins gott að maður geti miðlað einhverju til yngri kynslóðanna,“ segir Hallbera glettin og heldur áfram: „Ég held að það sé gott fyrir hópinn að hafa nokkra leikmenn sem hafa gert þetta áður, en á sama tíma eru þessir yngri leikmenn orðnir svo miklar stórstjörnur. Það er ekkert í líkingu við það sem við fengum að kynnast á sínum tíma. Þær eru vanari áreitinu að ein- hverju leyti.“ Berglind Björg Þorvaldsdóttir, framherji íslenska liðsins, var hóg- vær þegar hún var spurð hvort hún væri ákveðin í að sanna sig sem fyrsti kostur í framlínu íslenska liðsins á Evrópumótinu. „Við erum allar ákveðnar að gera okkur besta, og maður finnur að spennan er að magnast. Það er að koma meiri snerpa í æfingarnar,“ segir Berglind Björg. „Maður fann það fyrir æfingu dagsins (föstudag) að það var því- lík spenna og stemning í hópnum í aðdraganda æfingarinnar. Við fylgdumst með opnunarleiknum á Old Trafford og maður fann hvern- ig fiðringurinn varð meiri að hefja þetta.“ n 16 Íþróttir 9. júlí 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 9. júlí 2022 LAUGARDAGUR kristinnpall@frettabladid.is FÓTBOLTI Imke Courtois, sem lék á sínum tíma 21 landsleik fyrir Belga og er í hlutverki sérfræðings hjá belgíska sjónvarpinu á Evrópu- móti kvenna í sumar, segir að það sé viss pressa á belgíska landsliðinu í aðdraganda Evrópumótsins. Þetta er í annað skiptið sem Belgar eru meðal þátttökuþjóða á Evrópumót- inu en síðast duttu þær út í riðla- keppninni eftir hreinan úrslitaleik við verðandi Evrópumeistara Hol- lands um sæti í útsláttarkeppninni. „Það er viss pressa á þeim að kom- ast áfram. Markmið liðsins er að komast að minnsta kosti í átta liða úrslitin. Þessi fyrsti leikur skiptir öllu máli. Frakkland er sterkasta lið riðilsins en við vitum að það eru góðar líkur á sigri gegn Íslandi ef við eigum góðan leik, rétt eins og gegn Ítölum,“ segir Imke þegar hún er spurð út í væntingarnar sem eru gerðar til Belganna. Segir pressu á belgíska landsliðinu að komast áfram Imke var sjálf hluti af liði Belga á síðasta Evrópumóti en hún hrósaði fjölbreytileikanum í íslenska liðinu. „Það sem ég hef séð hef ég heillast af blöndu liðsins, sérstaklega á mið- svæðinu þar sem kantmennirnir eru mjög hættulegir. Þú ert með unga og efnilega leikmenn í bland við reynsluboltana,“ segir Imke og tekur undir að það séu þrjú sterk lið sem séu líklegast að fara að berjast um annað sæti riðilsins. „Ég veit fyrir víst að þjálfari belg- íska liðsins var ósáttur að fá íslenska liðið úr fjórða styrkleikaflokki, því við vissum að Ísland væri með sterk- asta liðið í fjórða styrkleikaflokki. Imke átti ekki von á neinu óvæntu í uppleggi belgíska liðsins á morgun, sem er með lægsta meðalaldurinn í riðli Íslands. „Nei, ég á í raun ekki von á neinu óvæntu. Belgíska liðið er sterkt í skyndisóknum og liðið er gott að nýta sér bæði hraða leikmenn og hávaxna í fremstu víglínu.“ n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.