Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 21
Áður en Már heldur út til Bretlands í tónlistarnám í haust gefur hann út ný lög og heldur tón- leikaröð. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI að hann var að synda sekúndu undir sínum besta tíma og finnst þá verðlaunin bara ekkert sérstök,“ segir hann og brosir. Már segir faraldurinn hafa haft gríðarmikil og slæm áhrif á hann sem og annað afreksíþróttafólk. Einkum hvað varðar Ólympíuleik­ ana, sem áttu upphaflega að fara fram árið 2020. „Við vissum aldrei hvort leik­ unum var af lýst eða frestað, ekki fyrr en við vorum sest upp í vélina á leiðinni út þegar þeir voru loksins haldnir. Ég var að æfa 12 til 20 tíma á viku fyrir eitthvað sem ég vissi ekki hvort yrði af. Rútína og skipu­ lag er eitt af því mikilvægasta fyrir íþróttafólk,“ segir Már. Þá sköpuðu mismunandi reglur milli landa í faraldrinum ójafnan keppnisgrundvöll. „Það var ekki auðvelt að stefna að einhverju takmarki þegar búið er að loka lauginni í þrjá mánuði. Sérstaklega ekki þegar keppinautarnir í öðrum löndum fá undanþágu til að æfa í sundlaugum. Þetta fór alveg með mig og ég myndi lýsa þessu ári sem algjöru helvíti,“ segir Már. Ástarlífið eins og hlutabréfamarkaður Umræða hefur verið um að erfitt sé fyrir samkynhneigt íþróttafólk að koma út úr skápnum, einkum í liðs­ íþróttum svo sem knattspyrnu. Már er samkynhneigður en segist aldr­ ei hafa lent í neinu mótlæti vegna þessa, hvorki í íþróttum né annars staðar. „Þegar ég var sextán ára átti ég kærustu og hélt að ég væri straight. En við föttuðum fljótlega að þetta væri ekki að gera sig og komum bæði út úr skápnum,“ segir Már og hlær. Honum finnist þó frekar gamaldags að tala um að koma út úr skápnum. „Mesta áskorunin fyrir mig var að sætta mig við og skilja að þetta væri ekki vesen og bögg fyrir aðra. En að koma út sem gay í dag er mjög ómerkilegt. Það er engin tilkynn­ ingarskylda og svo margar kyn­ hneigðir til,“ segir Már. „Þetta hefur aldrei verið neitt mál í liðinu mínu í Keflavík, ekkert einu sinni mikið rætt um þetta.“ Már segir að hugsanlega spili per­ sónuleikinn inn í þetta. „Ég er búinn að búa mig undir það að ég gæti lent í fordómum seinna. Þá treysti ég á að ég muni hafa bein í nefinu til að takast á við það, eða leyfa þeim for­ dómafullu að vera með sín vanda­ mál fyrir sig.“ Aðspurður um ástarlífið í dag segir Már lítið að frétta á þeim víg­ stöðvum. „Ástarlífið hjá mér er eins og hlutabréfamarkaðurinn. Annað­ hvort rjúka þau upp og hrynja eða hrynja bara strax. Ég hef ekki verið að fjárfesta í réttum hlutabréfum hingað til,“ segir hann og brosir. Hann segist opinn fyrir öllum möguleikum í framtíðinni, lang­ tímasamböndum og barneignum. „Það fer eftir því með hverjum ég er og hvar ég verð staddur í lífinu.“ Erfið ákvörðun Ólíkt f lestum íþróttamönnum hefur Már aldrei verið með alla athyglina á sama stað. Tónlistin hefur fylgt alla tíð, frá því að hann byrjaði að æfa sjö ára í Lúxemborg hjá rússneskum píanómeistara. Nú ætlar hann að beina allri athyglinni þangað. „Ég er búinn að afreka nógu mikið í sundinu til að ég geti stigið sáttur frá því,“ segir Már. Sífellt erfiðara er að halda báðum boltum, sundi og tónlist, á lofti í keppni við þá sem aðeins eru með einn. „Þetta var samt mjög erfið ákvörðun að taka og ég þurfti að hugsa málið lengi.“ Már er þegar farinn að vekja athygli í tónlistinni, meðal ann­ ars með laginu Barn eftir Ragnar Bjarnason sem hann og Iva Marín Adrichem sungu árið 2020 og Don’t You Know sem hann söng með systur sinni Ísold í Söngvakeppni Sjónvarpsins í vetur, en þau höfn­ uðu í þriðja sæti. Um síðustu helgi fékk Már stað­ festingu á að hann kæmist inn í breskan tónlistarháskóla, Academy of Contemporary Music í Guilford. Þetta segir hann gamlan draum en í náminu mun hann læra lagasmíði, framkomu og fleira til að styrkja sig sem tónlistarmann. Hann heldur út strax í haust og tekur aðeins Max með sér. Setur sitt mark á eldri lög Líkt og í sundinu segist Már setja sér takmörk í tónlistinni. Námið er einn liður í því, líka að halda tón­ leika, gefa út og ekki síst semja sífellt betri og betri lög. Már segist líta til hins kanadíska söngvara Michael Bublé sem helstu fyrirmyndarinnar í tónlist. En Már er líka gömul sál sem horfir til eldri dægurtónlistar, ekki síst eldri íslenskrar dægurtónlistar. Hann vinnur nú að nýju efni sem kemur út í sumar, sem útsett er af honum og Þóri Úlfarssyni. Í haust mun Már svo halda tónleikaröð með hljómsveit og gestasöngvurum áður en hann heldur til Bretlands. Tónleikarnir verða í Garðabæ, Selfossi og Reykjanesbæ og mið­ arnir seldir hjá Tix. Þetta verða í senn kveðjutónleikar Más áður en hann heldur út og fjáröflun til að styrkja hann til námsins, sem er langt frá því að vera ókeypis. Á tónleikunum verður flutt bæði gamalt íslenskt efni í nýjum búningi og ný lög eftir Má. „Oft heyri ég gömul lög sem eru afar falleg en upptakan er slæm eða eitthvað annað sem ég tel að betur mætti fara. Ég sé engan tilgang með að endurgera lag nema að setja mitt eigið touch á það,“ segir Már. Fyrsta útgefna lagið verður Þú ert, eftir Þórarin Guðmundsson, sem er frá fyrri hluta síðustu aldar. Ætlar ekki að sleppa sér Már er gríðarlegur lestrarhestur og er með hljóðbækur í eyrunum hvert sem hann fer. Yfirleitt bækur á ensku eða þýsku. Þá er hann mikill útivistarmaður, skíðar, rær á kajak og klífur fjöll og firnindi. Hann seg­ ist líka elska ferðalög, ekki síst til að hitta „ömmu sína“ í Lúxemborg. Már djammar hins vegar ekki né drekkur áfengi. Hann ætlar heldur ekki að „sleppa sér“ þrátt fyrir að vera hættur í sundinu og halda sér í formi. Hann er vanur heilbrigðu líferni og ætlar að halda því áfram. Metnaðurinn á öðrum sviðum leynir sér heldur ekki. Spurður um hvar hann sjái sig eftir tíu ár segist Már ætla að búa hluta úr árinu á Íslandi og hluta erlendis. „Ég ætla að verða betri söngvari en ég er í dag og verð búinn að halda þó nokkra tónleika í Eldborg,“ segir hann. „Og búinn að vinna þetta fjandans Eurovision.“ n Ég man eftir að hafa séð betur og finn muninn. Már man vel eftir deginum þegar hann áttaði sig á því að hann yrði aldrei flugmaður eins og pabbi hans. Helgin 21LAUGARDAGUR 9. júlí 2022 FRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.