Fréttablaðið - 09.07.2022, Blaðsíða 6
Fólk tengir jafnvel
eigið krabbamein við
andleg áföll í kjölfar
eineltis og starfsloka.
Ef þú ert að fara í
flugvél þá er flugþjónn-
inn ekki settur inn í
staðinn fyrir flugstjóra.
Halla Eiríks
dóttir, varafor
maður Félags
íslenskra hjúkr
unarfræðinga.
Um er að ræða heilsársvinnu, mánuð í vinnu og mánuð í frí.
Skipið er 15 metrar og 44 brt. og stundar veiðar á ígulkerjum
og beitukóngi frá Stykkishólmi.
royaliceland.is
Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á
david@royaliceland.is
Royal Iceland leitar að skipstjóra
á skipið Báru SH-27.
Hjúkrunarfræðingar segja
það alvarlegt og brot á lögum
að aðrir séu látnir ganga í
störf þeirra eins og ábend-
ingar hafi borist um.
helenaros@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Borið hefur á að
aðrir sinni störfum hjúkrunarfræð-
inga innan einstakra heilbrigðis-
stofnana og séu jafnvel ráðnir í
stöðugildi þeirra.
Halla Eiríksdóttir, varaformaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, segir málið alvarlegt og brot á
lögum. Þá fái þjónustuþeginn aldrei
þessar upplýsingar.
Ábendingar hafi borist frá hjúkr-
unarfræðingum þar sem verið sé að
ráða nema, hjúkrunar- og lækna-
nema og sjúkraliða án framhalds-
menntunar í störf sem hjúkrunar-
fræðingar hafi gegnt.
„Starfslýsingum hefur ekki verið
breytt, svo þeir viti, þannig að það er
verið að ráða aðra starfsmenn í störf
hjúkrunarfræðinga,“ segir Halla.
Hvergi á landinu er að sögn Höllu
til ákveðin tala, í lagalegum skiln-
ingi, yfir fjölda hjúkrunarfræðinga
sem eiga að starfa á hverjum stað.
Hins vegar sé til undanþágulisti
þar sem skilgreint sé með lögum
lágmarksviðmið út frá gæðum og
öryggi heilbrigðisþjónustu.
„Þá eru skilgreind fjöldastöðu-
gildi hjúkrunarfræðinga og við
vitum að þessi fjöldi er sums staðar
kominn undir þessi viðmið án þess
að starfsemi hafi verið breytt.“
Ef breyting verður á leyfisskyldri
heilbrigðisstarfsemi samkvæmt
reglugerð þarf að tilkynna það til
Embættis landlæknis.
„Við vitum í sjálfu sér ekki hvað
hefur verið tilkynnt og hvað Emb-
ætti landlæknis hefur gert til að
samþykkja breytingarnar,“ segir
Halla og bætir við að Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga sé að vekja
athygli á því að heilbrigðiskerfið sé
víða rekið á þeim forsendum að fólk
sé ráðið í störf annarra.
„Maður á kannski ekki að nota
samlíkingu, en ef þú ert að fara í
flugvél þá er flugþjónninn ekki sett-
ur inn í staðinn fyrir flugstjóra, það
er bara ekki f logið. En heilbrigðis-
kerfið gerir ekki þessar ráðstafanir,
þetta er meðvirkni upp alla línuna
og þjónustuþeginn fær aldrei þessar
upplýsingar,“ segir Halla.
Þetta auki álag á menntuðum
hjúkrunarfræðingum sem þurfi að
bera ábyrgð á starfsmönnum sem
standist ekki menntunarkröfu.
„Eftir álagstímabil síðastliðinna
tveggja ára eru þolmörkin búin
meðal hjúkrunarfræðinga og meðal
stéttarinnar. Við teljum það skyldu
okkar að vekja athygli á því að það
sé verið að manna stöður hjúkr-
unarfræðinga ekki með réttum
formerkjum í stað þess að loka eða
draga úr þjónustu,“ segir Halla.
Fréttablaðið óskaði eftir svörum
frá Embætti landlæknis sem gat
ekki orðið við þeirri beiðni fyrir
dagslok í gær. n
Dæmi um að aðrir gangi í
störf hjúkrunarfræðinga
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG „Viðbrögðin hafa verið
ótrúleg, ég hef aldrei fengið svona
mikil viðbrögð, ég hef fengið alls
konar skilaboð frá alls konar fólki
í allan dag, þeim linnir ekki, ég er í
hálfgerðu sjokki,“ segir Sigrún Eyj-
ólfsdóttir, höfundur meistararit-
gerðar um alvarleg langtímaáhrif
eineltis á vinnustað á þolendur.
„Fólkið er fyrst og fremst að lýsa
eigin raunasögum eftir að það
varð sjálft fyrir einelti á vinnustað.
Umfangið segir okkur að vandinn
er miklu víðtækari en við höfum
haldið,“ segir Sigrún eftir símtöl,
tölvupósta og einkaskilaboð sem
henni hafa borist eftir frétt Frétta-
blaðsins um rannsóknina í gær.
„Fólk tengir jafnvel eigið krabba-
mein við andleg áföll í kjölfar ein-
eltis og starfsloka,“ segir Sigrún.
Margir hafa einnig sett sig í sam-
band við Fréttablaðið. Eitt þema
er að það sé óbærilega sárt þegar
gerendur haldi starfi áfram en þol-
endur hrökklist burt.
Leiðbeinandi Sig r ú nar v ið
gerð meistararitgerðarinnar, Ingi
Eðvarðsson, prófessor við Við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands,
segir að rannsókn Sigrúnar sýni að
í f lestum tilvikum hafi stjórnendur
verið gerendur í eineltinu.
„En þeir voru sjaldan látnir bera
ábyrgð á gjörðum sínum,“ segir
Ingi. n
Vondir stjórar axli sjaldnast ábyrgð
Sigrún
Eyjólfsdóttir,
meistari í mann
auðsstjórnun.
Hjúkrunarfræðingar eru ósáttir við að aðrar starfsstéttir gangi í störf þeirra. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
6 Fréttir 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ