Fréttablaðið - 09.07.2022, Side 6

Fréttablaðið - 09.07.2022, Side 6
Fólk tengir jafnvel eigið krabbamein við andleg áföll í kjölfar eineltis og starfsloka. Ef þú ert að fara í flugvél þá er flugþjónn- inn ekki settur inn í staðinn fyrir flugstjóra. Halla Eiríks­ dóttir, varafor­ maður Félags íslenskra hjúkr­ unarfræðinga. Um er að ræða heilsársvinnu, mánuð í vinnu og mánuð í frí. Skipið er 15 metrar og 44 brt. og stundar veiðar á ígulkerjum og beitukóngi frá Stykkishólmi. royaliceland.is Áhugasamir vinsamlegast sendið tölvupóst á david@royaliceland.is Royal Iceland leitar að skipstjóra á skipið Báru SH-27. Hjúkrunarfræðingar segja það alvarlegt og brot á lögum að aðrir séu látnir ganga í störf þeirra eins og ábend- ingar hafi borist um. helenaros@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Borið hefur á að aðrir sinni störfum hjúkrunarfræð- inga innan einstakra heilbrigðis- stofnana og séu jafnvel ráðnir í stöðugildi þeirra. Halla Eiríksdóttir, varaformaður Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga, segir málið alvarlegt og brot á lögum. Þá fái þjónustuþeginn aldrei þessar upplýsingar. Ábendingar hafi borist frá hjúkr- unarfræðingum þar sem verið sé að ráða nema, hjúkrunar- og lækna- nema og sjúkraliða án framhalds- menntunar í störf sem hjúkrunar- fræðingar hafi gegnt. „Starfslýsingum hefur ekki verið breytt, svo þeir viti, þannig að það er verið að ráða aðra starfsmenn í störf hjúkrunarfræðinga,“ segir Halla. Hvergi á landinu er að sögn Höllu til ákveðin tala, í lagalegum skiln- ingi, yfir fjölda hjúkrunarfræðinga sem eiga að starfa á hverjum stað. Hins vegar sé til undanþágulisti þar sem skilgreint sé með lögum lágmarksviðmið út frá gæðum og öryggi heilbrigðisþjónustu. „Þá eru skilgreind fjöldastöðu- gildi hjúkrunarfræðinga og við vitum að þessi fjöldi er sums staðar kominn undir þessi viðmið án þess að starfsemi hafi verið breytt.“ Ef breyting verður á leyfisskyldri heilbrigðisstarfsemi samkvæmt reglugerð þarf að tilkynna það til Embættis landlæknis. „Við vitum í sjálfu sér ekki hvað hefur verið tilkynnt og hvað Emb- ætti landlæknis hefur gert til að samþykkja breytingarnar,“ segir Halla og bætir við að Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sé að vekja athygli á því að heilbrigðiskerfið sé víða rekið á þeim forsendum að fólk sé ráðið í störf annarra. „Maður á kannski ekki að nota samlíkingu, en ef þú ert að fara í flugvél þá er flugþjónninn ekki sett- ur inn í staðinn fyrir flugstjóra, það er bara ekki f logið. En heilbrigðis- kerfið gerir ekki þessar ráðstafanir, þetta er meðvirkni upp alla línuna og þjónustuþeginn fær aldrei þessar upplýsingar,“ segir Halla. Þetta auki álag á menntuðum hjúkrunarfræðingum sem þurfi að bera ábyrgð á starfsmönnum sem standist ekki menntunarkröfu. „Eftir álagstímabil síðastliðinna tveggja ára eru þolmörkin búin meðal hjúkrunarfræðinga og meðal stéttarinnar. Við teljum það skyldu okkar að vekja athygli á því að það sé verið að manna stöður hjúkr- unarfræðinga ekki með réttum formerkjum í stað þess að loka eða draga úr þjónustu,“ segir Halla. Fréttablaðið óskaði eftir svörum frá Embætti landlæknis sem gat ekki orðið við þeirri beiðni fyrir dagslok í gær. n Dæmi um að aðrir gangi í störf hjúkrunarfræðinga bth@frettabladid.is SAMFÉLAG „Viðbrögðin hafa verið ótrúleg, ég hef aldrei fengið svona mikil viðbrögð, ég hef fengið alls konar skilaboð frá alls konar fólki í allan dag, þeim linnir ekki, ég er í hálfgerðu sjokki,“ segir Sigrún Eyj- ólfsdóttir, höfundur meistararit- gerðar um alvarleg langtímaáhrif eineltis á vinnustað á þolendur. „Fólkið er fyrst og fremst að lýsa eigin raunasögum eftir að það varð sjálft fyrir einelti á vinnustað. Umfangið segir okkur að vandinn er miklu víðtækari en við höfum haldið,“ segir Sigrún eftir símtöl, tölvupósta og einkaskilaboð sem henni hafa borist eftir frétt Frétta- blaðsins um rannsóknina í gær. „Fólk tengir jafnvel eigið krabba- mein við andleg áföll í kjölfar ein- eltis og starfsloka,“ segir Sigrún. Margir hafa einnig sett sig í sam- band við Fréttablaðið. Eitt þema er að það sé óbærilega sárt þegar gerendur haldi starfi áfram en þol- endur hrökklist burt. Leiðbeinandi Sig r ú nar v ið gerð meistararitgerðarinnar, Ingi Eðvarðsson, prófessor við Við- skiptafræðideild Háskóla Íslands, segir að rannsókn Sigrúnar sýni að í f lestum tilvikum hafi stjórnendur verið gerendur í eineltinu. „En þeir voru sjaldan látnir bera ábyrgð á gjörðum sínum,“ segir Ingi. n Vondir stjórar axli sjaldnast ábyrgð Sigrún Eyjólfsdóttir, meistari í mann­ auðsstjórnun. Hjúkrunarfræðingar eru ósáttir við að aðrar starfsstéttir gangi í störf þeirra. Myndin tengist fréttinni ekki beint. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK 6 Fréttir 9. júlí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.