Fréttablaðið - 22.07.2022, Side 8

Fréttablaðið - 22.07.2022, Side 8
Ég er ekki hrifinn af því að ala á hræðslu í kringum þetta. Sigurður Þ. Ragnarsson, veðurfræðingur Við erum alltaf í sjávar- svalanum og heita loftið vinkar okkur bara ofan af hæð. Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur © GRAPHIC NEWSHeimild: BBC, CNA, AP, EFFIS Myndir: EFFISUpplýsingar: Kl. 09:00 á staðartíma Greenwich, 19. júlí GRÓÐURELDASPÁ 19. júlí 20. júlí 21. júlí 24. júlí 27. júlí 23. júlí 26. júlí 22. júlí 25. júlí FRAKKLAND 224 BRETLAND 148 ÍTALÍA 214 PORTÚGAL 139 SPÁNN 307 RÚMENÍA 735 KRÓATÍA 133 Fjöldi gróðurelda árið 2022 Mjög lítil hætta Lítil hætta Meðalhætta Mikil hætta Mjög mikil hætta Bráð hætta Gríðarleg hætta Óstjórnleg hitabylgja steikir Evrópu Banvæn hitabylgja í Vestur-Evrópu hefur náð alla leið norður til Bretlands og hefur stuðlað að skaðlegum gróðureldum í Frakklandi, Spáni og Portúgal. Hitabylgja sem hefur slegið hvert hitametið á fætur öðru í Evrópu og kveikt fjölda gróðurelda undanfarið hefur vart farið fram hjá neinum. Veðurfræðingar segja lofts- lagsbreytingar óneitanlega eiga þátt í þessum mikla hita en telja þó ekki að um nýtt, viðvarandi ástand sé að ræða. VEÐUR Hitabylgjan sem nú gengur yf ir Evrópu er að sögn veður- fræðings ættuð frá Norður-Afríku eða vestanverðu Miðjarðarhafi. „Í fyrsta lagi verður til bóla af heitu lofti einhvers staðar yfir Norður- Afrík u eða vestanverðu Mið- jarðarhafi eða þar um slóðir,“ segir veðurfræðingurinn Einar Svein- björnsson. „Þessi heita loftblaðra berst síðan til norðurs og norðausturs og veld- ur fyrst miklum hitum í Portúgal og Spáni, svo Frakklandi daginn þar á eftir og í fyrradag náði hún síðan til Englands. Í gær hélt hún áfram til austurs og það dregur aðeins úr vægi og mætti hennar. Hún heldur áfram til Þýskalands, Danmerkur, Suður-Svíþjóðar og Póllands.“ Einar segir að háloftalægð vestan við Portúgal hafi grafið sig niður og átt þannig þátt í að ýta bólunni niður frá eðlilegum heimkynnum sínum yfir Norður-Afríku. Heitasta loftið sé ekki við yfirborðið heldur í 1.000 til 3.000 metra hæð. „Við sjáum það gjarnan hér á landi þegar hlýtt loft fer yfir að það heldur sig uppi. Við erum allt- af í sjávarsvalanum og heita loftið vinkar okkur bara ofan af hæð.“ Gusur af ofsaheitu lofti Ástandinu í Evrópu líkir Einar við hitabylgjuna í Bresku Kólumbíu í fyrra þar sem bærinn Lytton fuðr- aði nánast upp í hita sem jaðraði við fimmtíu gráður. „Kraftar sem verka á hlýja loftið ná að beina því niður. Þegar maður er með lofthita í 1.500 metra hæð sem er 23 til 25 gráður getur það hlýnað um eina gráðu fyrir hverja hundrað metra sem það er þvingað niður. Og þú getur reiknað hvað kemur út úr því reikningsdæmi.“ Einar segir aðstæður hafa verið með svipuðu móti þar sem hitamet voru slegin í Coningsby í Lincoln- skíri á Englandi. „Þar náði hlýja loftið alla leið niður. Kannski átti landslagið þar í kring einhvern þátt í því.“ Að sögn Einars eru hitabylgjur undanfarinna ára svæsnari en sést hefur á síðustu öld. „Bretar eru gjarnan með í baksýnisspeglinum hitabylgju sem var 1976, en hún kemst ekki einu sinni á topp 10 lengur. Hún var líka annars eðlis. Það voru mikil hlýindi sem vörðu í langan tíma, þrjár vikur. En það varð kannski ekki ofsaheitt sam- fara því. Það voru sett einhver hita- met, en síðan þá hafa menn fengið yfir sig svona gusur af ofsaheitu lofti sem hefur náð niður.“ Einar bendir á að með hlýrra loftslagi megi reikna með því að hitabylgjur á borð við þessa verði algengari á heittempruðum svæðum. Þó verði ekki um að ræða viðvarandi ástand heldur sveif lu- kenndar hitabylgjutíðir. „Það sem er líklegt er að ofsa- hitar slái sér niður næsta sumar en það er ekkert víst að það verði á sömu stöðum og nú. Það gæti orðið í Bandaríkjunum, Mongólíu, Kína eða á Kyrrahafi. Það er ómögulegt að segja. Þess vegna hjá okkur, þótt ég telji litlar líkur á því. Hlýindin eru að slá sér annars staðar niður og hringrás veðurkerfanna er með öðrum hætti en í fyrra. Þessi breyti- leiki í veðráttunni verður áfram til Funheitt loft af himnum ofan Gróðureldar hafa kviknað um allan Spán vegna ofsa­ hitans. Hér stígur reykur upp frá Valde­ peñas de la Sierra, en þaðan hefur þurft að forða meira en hundrað manns. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@ frettabladid.is staðar, jafnvel með hlýnandi lofts- lagi. Evrópubúar hætta ekkert að fá áfram misjöfn sumur.“ Forðast beri oftúlkanir Víða hefur verið litið til hnatt- rænnar hlýnunar vegna loftslags- breytinga sem skýringar á þessum mikla hita. Einar segir þó óvarlegt að tengja einn atburð við loftslags- breytingar og mælir með heild- stæðri nálgun. „En í ljósi þess að miklir hitar eru að verða algengir og koma æ oftar fyrir á síðustu tutt- ugu, þrjátíu árum, verður að horfa á þetta saman sem óyggjandi birt- ingarmynd loftslagsbreytinga. Við getum alveg horft til þess að svona atburðir hefðu getað gerst áður, en það er alveg klárt að það hefði ekki orðið svona of boðslega heitt.“ Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur tekur í sama streng. „Fólki finnst eins og hlýnun jarðar sé að valda þessu, og það er auð- vitað rétt. En við megum ekki gleyma því að það hefur verið hlýtt mörgum sinnum í gegnum árþús- undin og milljónirnar, miklu hlýrra en þetta. Mér finnst stundum allt jaðra við oftúlkun og fólk vera sett í þá stöðu að það fær samviskubit yfir öllu sem það gerir sem tengist hlýnun jarðar. Vissulega þurfa ríki að sporna við öllum öfgum í brennslu á kolefnasamböndum eða kolvetnum og svoleiðis. En ég er ekki hrifinn af því að ala á hræðslu í kringum þetta. Þetta ræðst svo mikið af því hvaða leiðir loft kemst í háloftunum og hvar bylgjurnar lenda.“ Stefnan á Austur-Evrópu Sigurður segir þó að líta beri hitann alvarlegum augum. Það hafi komið honum á óvart hve mikill hann varð, sér í lagi í Bretlandi. „Bretland er auðvitað eyja með aðgang að sjó, svo það kom mér á óvart hvað hitabylgjan hefur náð hátt á stöðum þar sem maður átti ekki von á að þeir gætu farið svona. Við erum að slá met í Bretlandi, nokkur sama dag.“ Að sögn Sigurðar er hitabylgjan í rénun í Vestur-Evrópu. „Raunar eru það Pólland og löndin á Balk- anskaganum sem eru í mestu hit- unum. Ferðir svona bylgju ráðast af þrýstilandslaginu í háloftunum og hæðin þarna fyrir vestan Evrópu hefur þvingað þessa bylgju svolítið til austurs.“ n 8 Fréttir 22. júlí 2022 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐFRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 22. júlí 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.