Fréttablaðið - 22.07.2022, Síða 18

Fréttablaðið - 22.07.2022, Síða 18
Loftslagsbreytingar eru í raun heilsu- farslegt vandamál, bæði með beinum og óbein- um hætti. Heilbrigðisyfirvöld í Banda- ríkjunum, Bretlandi, Evrópu og Japan hafa varað fólk sterklega við hitabylgju sem nú ríður yfir víða um heim- inn. Ástæðan er sú að svona mikill hiti getur skaðað heilsu fólks og haft langtíma afleiðingar. elin@frettabladid.is Margir Íslendingar eru á faralds- fæti víða um heiminn og hafa ekki farið varhluta af hitabylgjunni. Það er því gott að hafa í huga að hita- bylgja er hættuleg heilsu fólks. Loftslagsbreytingar hafa ýtt undir venjulegan sumarhita með slæmum afleiðingum. Læknar finna tengsl á milli þessa mikla hita og veikinda hjá fólki, þar er upptalið heilablóðfall, sykursýki, nýrnavandamál auk hjarta- og æðasjúkdóma. „Loftslagsbreytingar eru í raun heilsufarslegt vandamál, bæði með beinum og óbeinum hætti,“ segir Richard J. Johnson, læknaprófessor og vísindamaður við háskólann í Colordado Anschutz Medical Campus, í samtali við tímaritið Times. „Hitabylgjan hefur í för með sér aukna hættu á ofþornun sem getur síðan valdið vitrænni truflun, háum blóðþrýstingi og bráðum nýrnaskaða. Langvarandi ofþorn- un gerir að verkum að líkaminn á erfiðara með að skilja út eitur- efni, sem hefur slæm áhrif á nýrun og eykur líkur á nýrnasteinum. Í svona miklum hita er líklegt að tíðni efnaskiptasjúkdóma hækki ásamt aukinni hættu á hjartaáfalli og heilablóðfalli,“ segir prófessor- inn. Í grein sem birtist í National Academy of Sciences árið 2008 var fjallað um aukna hættu á þróun Hitabylgja er hættuleg heilsunni Íbúar Lundúna þurftu að kæla sig í gos- brunnum í þeim mikla hita sem hefur gengið yfir landið. Þessi var kominn út í gosbrunn á Tra- falgar Square. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY Hitinn fór upp í 46 gráður í Brussel í fyrradag. Það getur verið stórhættulegt að vera úti í slíkum hita. Heilsu fólks er ekki bara ógnað í hitanum heldur keppast slökkviliðsmenn við að slökkva skógarelda víða. Nú er rabarbarinn í blóma og spennandi að búa til ljúf- fengar kræsingar úr honum. Við fengum Brynju Döddu Sverrisdóttur, lífskúnstner og ástríðubakara, til að ljóstra upp sínum uppáhaldsupp- skriftum þar sem rabarbar- inn er í aðalhlutverki. sjofn@frettabladid.is Brynja býr ásamt eiginmanni sínum, Hafþóri Bjarnasyni, í Kjósinni á fallegum stað í Norður- nesinu. Húsið þeirra ber heitið Móberg og má með sanni segja að það sé nafn með rentu. Náttúran allt í kring skartar sínu fegursta og útsýnið yfir fjöll og dali gleður augað. Brynja er dugleg að rækta alls konar góðgæti, hún er með stóran kálgarð, kartöflugarð og lítið krúttlegt gróðurhús þar sem hún fær væna og fjölbreytta uppskeru af ýmsu góðgæti sem hún nýtir bæði í bakstur og eldamennsku. Rabarbarinn hefur blómstrað í sumar og Brynja er búin að nýta hann í ýmsar kræsingar eins og sultu og rabarbarapæ. „Sultan og rabarbarapæið er mjög vinsælt hjá krökkunum og þau koma gagngert til fá gott með kaffinu og elska að fá þessar kræsingar þar sem rabarbarinn er ríkjandi. Það er synd að í ansi mörgum görðum er vannýttur rabarbari sem er þó svo einfalt að nýta. Sultan er til að mynda mjög einföld,“ segir Brynja. Móbergs rabarbarasulta 1 kg rabarbari, skorinn í litla bita 750 g sykur, Brynja notar hrásykur Mér finnst best að setja allt í pott að kveldi og kveikja síðan undir daginn eftir. Þá hefur sykurinn náð að leysast vel upp. Soðið í 3 til 4 tíma. Þegar sultan er orðin þykk og Móbergs rabarbarasulta og -pæ fyrir sælkera Brynja Dadda að stússast í mat- jurtagarðinum. MYNDIR/AÐSENDAR Ljúffengt rabarbarapæ með van- illuís og karamellusósu. Brynja er búin að sulta í krukkur. Rabarbarasultan geymist vel. nýrnasteina hjá fólki í hækkandi hitastigi jarðar. Þá hafði verið tekið eftir því í suðausturhluta Bandaríkjanna að mikil fjölgun var á sjúklingum með nýrnasteina. Talið var að of lítil vökvaneysla og vökvatap væri ástæðan auk mikils hita og raka í lofti. Sjúkdómurinn var talinn óvænt afleiðing hnatt- rænnar hlýnunar. Höfundar greinarinnar töldu að hlutfall þeirra sem væru í áhættuhópi til að fá nýrnasteina myndi hækka umtalsvert á næstu árum. Sýnt hefur verið fram á að hjá bandarísku landbúnaðar- fólki hafi orðið mikil aukning á óafturkræfum nýrnaskemmdum vegna hita og ofþornunar. „Nýrun eru mjög viðkvæm fyrir álagi af völdum hita,“ segir Johnson sem er höfundur bókarinnar Nature Wants Us To Be Fat: The Surprising Science Behind Why We Gain Wein and How We Can Prevent—and Reverse—It, en hann rannsakar nú tengsl á milli offitu og hitabylgju. „Ofþornun er ekki óumflýjanleg afleiðing hitans. Það er auðvelt að forðast hana með því að drekka mikið vatn, ekki sykraða drykki og vera í skugga. Þeir sem vinna utan- dyra þurfa fleiri hvíldarpásur til að drekka vatn og íþróttadrykki. Sömuleiðis þarf að gæta að því að líkaminn fái salt. Alltaf skal vera með hatt,“ segir Johnson. „Ekki vera í beinni sól, hiti getur drepið. Hitabylgjur drepa fleiri í Bandaríkjunum árlega en fellibylj- ir, eldingar, f lóð og jarðskjálftar samanlagt.“ n falleg á litinn er hún tilbúin. Mér finnst tilheyra að það séu bitar í henni en auðvitað má setja töfra- sprotann í og mauka hana alveg. Hún er sett í hreinar krukkur þegar hún hefur aðeins kólnað. Þetta er, að mínu mati besta sultan á pönnukökur og vöfflur og hver fúlsar við hjónabandssælu með rabarbarasultu? Móbergs rabarbarapæ 4-5 stilkar af rabarbara eða það sem passar sem góð botnfylli í mótið sem notað er 100 g sykur 100 g smjör 80 g hveiti 20 g kókosmjöl. (Ef fólk vill ekki kókosmjöl eru 100 g hveiti) Súkkulaði (t.d. með kókosmjöli) Rabarbari skorinn í litla bita og settur í eldfast mót, örlitlum sykri stráð yfir (rabarbarinn er misjafn- lega súr, hann er súrari eftir því sem líður á sumarið og sá græni er líka yfirleitt súrari). Brytjað súkkulaði sett yfir, eftir smekk, mér finnst ekki þurfa mikið. Bræðið smjörið og hrærið saman við hveiti, sykur og kókosmjöl og myljið yfir. Eldfasta mótið sett inn í ofn við 200°C hita í 30 til 40 mínútur. Ofnar eru misjafnir, þá má bulla vel í og að yfirborðið sé orðið gullið og stökkt. Berið fram með ís eða þeyttum rjóma. Svo er bara að njóta. Það er einfalt að stækka þessa uppskrift eftir fjölda gesta og stærð móts sem notað er. Stærra mót – 150 grömm af hráefnunum. n 6 kynningarblað A L LT 22. júlí 2022 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.