Fréttablaðið


Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 03.08.2022, Qupperneq 8
Kaupmátt- ur í júní- mánuði var 0,7 prósentum minni en fyrir ári síðan, þrátt fyrir ríflega 8 prósenta hækkun meðal- launa. Lífskjarasamningarnir voru millistéttinni og efri millitekjuhópum ekkert sérlega hag- felldir. Friðrik Jónsson, formaður BHM Ef við horfum ár aftur í tímann þá er kaup- mátturinn heldur meiri hjá þeim sem eru með lágar tekjur á meðan þeir sem eru með hærri tekjur hafa séð kaupmáttinn rýrna. Jón Bjarki Bentsson, aðal- hagfræðingur Íslandsbanka Aðalhagfræðingur hjá Íslandsbanka segir að það sé ljóst að lífskjarasamingarnir hafi skilað því að kaupmáttur hafi vaxið töluvert hraðar hjá láglaunafólki heldur en hjá þeim sem hærri laun hafa. Formaður BHM segir það ekki koma á óvart en mikilvægt sé að sporna gegn þeirri þróun að ávinningur af menntun fari minnkandi. Friðrik Jónsson, formaður BHM, segir að fjárhagslegur ávinningur af menntun fari sífellt minnkandi og að háskólamenntaðir hafi setið eftir þegar kemur að launaþróun. „Það er í sjálfu sér ekkert skrýtið því lífskjarasamningarnir voru sniðnir til þess að vera hagfelldir fyrir þá lægstlaunuðu,“ segir Frið- rik og bætir við að áhugavert sé að skoða þróun kaupmáttar undan- farinna ára. „Ef við skoðum kaupmáttaraukn- ingu undanfarinna ára og horfum til ársins 2015 þegar lögð var áhersla á krónutölusamninga. Þá frá janúar 2015 til janúar 2022 ef við berum saman BHM og BSRB hjá ríkinu þá hefur kaupmáttarvísitalan fyrir BSRB hækkað um 53 prósent meðan hún hefur hækkað um 36 prósent hjá BHM,“ segir Friðrik og bætir við að það sé ekki ásættanlegt að menntaðir hafi setið jafn mikið eftir og raun ber vitni, þó ánægjulegt sé að hans mati að markmiðið um leið- réttingu kjara þeirra lægstlaunuðu hafi gengið eftir. „Það hlýtur einhvers staðar undan að láta því nú er staðan þannig að ávinningur menntunar á Íslandi var lágur fyrir en fer nú sífellt minnkandi.“ Fram kemur í greiningu Íslands- banka að áratugur samfelldrar kaupmáttaraukningar sé á enda. Kaupmáttur í júnímánuði var 0,7 prósent minni en fyrir ári síðan, þrátt fyrir ríf lega 8 prósenta hækkun meðallauna. Undanfarin misseri hefur kaupmáttaraukning aukist mest hjá láglaunahópum en minna hjá þeim sem höfðu hærri laun þegar lífskjarasamningarnir tóku gildi. Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir að langmestar líkur séu á því að kaup- máttur muni rýrna út árið og sú staðreynd að kjarasamningar losni í haust f læki málið. Verðlag muni hækka jafnt og þétt og gera megi ráð fyrir milli 3 og 4 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs til áramóta. „Auðvitað er þessi tröppugangur alltaf til staðar, það er að segja að laun hækka og í ársbyrjun kemur kippur í kaupmáttinn hjá fólki. Við erum allavega ekki að sjá viðsnún- ing í þessu út árið.“ Ávinningur af menntun hafi sífellt farið minnkandi Magdalena Anna Torfadóttir magdalena @frettabladid.is Friðrik segir að þessi staða geti leitt af sér tvíþættar af leiðingar. Annars vegar dragi þetta úr hvata einstaklingsins til að sækja sér menntun og auki hins vegar hvat- ann fyrir menntafólk til þess að flytja utan að námi loknu þar sem menntun sé metin meira að verð- leikum. „Lífskjarasamningarnir voru millistéttinni og efri millitekju- hópum ekkert sérlega hagfelldir. Í lífskjarasamningunum voru tvö- faldar aðgerðir. Annars vegar var markmið að hækka lægstu launin og hins vegar var farið í skattkerfis- breytingar til að búa til frekara skattalegt hagræði fyrir þau lægst- launuðu. Þessar breytingar voru í reynd kostaðar af millitekjuhóp- unum.“ Jón Bjarki segir að ef rýnt sé í tölurnar komi bersýnilega í ljós að lífskjarasamningarnir hafi skilað því að kaupmátturinn hafi vaxið töluvert hraðar hjá láglaunafólki heldur en hjá þeim sem hærri laun hafa eins og lagt var upp með. „Ef við horfum ár aftur í tímann þá er kaup- mátturinn heldur meiri hjá þeim sem eru með lágar tekjur á meðan þeir sem eru með hærri tekjur hafa séð kaupmáttinn rýrna.“ Aðspurður hvort staðan sé góð í sögulegu samhengi þegar kemur að kaupmætti launa segir Jón Bjarki svo vera. „Það er auðvitað mikilvægt að setja hlutina í það samhengi að þetta bakslag í kaupmættinum núna kemur eftir myndarlegan kaupmáttarvöxt. Við höfum séð kaupmátt launa á Íslandi rísa tölu- vert hraðar heldur en hefur gengið og gerst í löndunum í kringum okkur. Þó bakslag sé núna þá eru íslensk heimili í góðri stöðu hvað það varðar.“ Friðrik segir jafnframt að þessi staða skapi ákveðinn vanda þegar kemur að komandi kjaraviðræðum. „Síðan má ekki gleyma að verðbólg- an leggst á okkur af fullum þunga. Hún er komin upp undir 10 prósent þannig að kaupmáttaraukningin í þessari kjaralotu eins og hún lá fyrir í janúar er í raun horfin. Ef við ætlum aðeins að hafa það mark- mið að halda kaupmættinum þá erum við að tala um töluverðar pró- sentur.“ Friðrik bætir við að komandi kjaraviðræður verði töluverð áskor- un. „Ég hef sagt það síðan ég tók við sem formaður BHM að mér hugnist ekki krónutöluhækkanir. En við erum heildarsamtök og við komum ekki að samningaborðinu með bein- um hætti, það gera stéttarfélögin. En ég reyni að leiða umræðuna og ég tel mikilvægt að við höfum skynsemi og sanngirni að leiðarljósi í komandi kjaraviðræðum.“ Friðrik segir að við búum nú við mikið óvissuástand. Það sé styrjöld í Evrópu, verðbólga sé víðar en hér á landi og við erum að jafna okkur á aðfangavandræðum eftir Covid. „Því tel ég mikilvægt að við forðumst að fara í skotgrafirnar, sérstaklega ef þær eru illa skilgreindar. Ég er alls ekki talsmaður átakanna, átakanna vegna. Við þurfum að finna efnisleg- ar leiðir til lausna. Greina vandann og finna mögulegar leiðir til lausna. Það er hagur okkar allra að finna far- sæla lendingu sem flestir geta sætt sig við.“ ■ Undanfarin misseri hefur kaupmáttur aukist mest hjá láglaunahópum en minna hjá þeim sem höfðu hærri laun þegar lífskjara- samningarnir tóku gildi. Þar á meðal eru há- skólamenntaðir. FRÉTTABLADID/ VILHELM MARKAÐURINN 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.