Fréttablaðið - 03.08.2022, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 03.08.2022, Blaðsíða 16
Niðurstöður á mati þátttakenda á eigin heilsu (EQ-5D-5L) eftir tveggja ára heilsueflingu; frá upphafsmælingu (mæling1) að mælingu 5 Mat þátttakenda á eigin heilsu (meðalaldur; 72 ár; n=848) Janus heilsuefling Janus Guðlaugsson o.fl. (2021) 72 79 83 85 87 50 55 60 65 70 75 80 85 90 95 100 Mæling 1 Mæling 2 Mæling 3 Mæling 4 Mæling 5 ST IG Heilsa (stig) *** 0 Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Janus ítrekar að nú ríði á að styðja við heilbrigðis- kerfið með heilsutengdum forvörnum svo það kikni síður undan auknu álagi sem hlýst af þjónustu við þennan sívaxandi hóp eldri borgara. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Önnur mjög áhugaverð niður- staða kom í ljós þegar öllum þátt- takendum var skipt í þrjá mis- munandi aldurshópa. Þá sáum við að elsti aldurshópurinn, 85 ára og eldri, náði meðal annars hreyfi- færni og styrk þeirra sem voru 10-15 árum yngri. Þetta sýndi vel hvað aldur er afstæður en um leið hve máttur heilsueflingar getur verið mikill, sé vel og skipulega að verki staðið.“ Starfsemi í sjö sveitarfélögum „Verkefnið hófst í Reykjanesbæ árið 2017. Síðan þá hefur hvert sveitar- félagið af öðru bæst í hópinn. Í dag er verkefnið starfrækt í sex sveitar- félögum og það sjöunda fer af stað í haust. Við erum í samstarfi við Reykja- nesbæ, Hafnarfjörð, Vestmanna- eyjabæ, Grindavík, Seltjarnarnes og Félag eldri borgara í Garðabæ sem greiða niður kostnað við þátttöku íbúa sinna sem eru 65 eða eldri. Í lok sumars hefjum við samstarf með Fjarðabyggð en kynning á verkefninu fer fram á þremur stöðum mánudaginn 8. ágúst næstkomandi; kl. 11.00 í Skrúð á Fáskrúðsfirði, kl. 15.00 í samkomu- sal Reyðarfjarðarkirkju og kl. 19.30 í Egilsbúð á Norðfirði. Vegna mikillar eftirspurnar höfum við síðustu mánuði boðið íbúum þeirra sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu sem ekki eru í sam- starfi við okkur að taka þátt í verk- efninu án niðurgreiðslu. Það hefur gengið gríðarlega vel og ætlum við að bæta við fleiri þátttakendum núna í ágúst. Hægt er að kynna sér verkefnið betur á heimasíðu okkar: janusheilsuefling.is. Kynningar- fundur á verkefninu verður 15. ágúst kl. 17.00 í húsakynnum KSÍ (Knattspyrnusambands Íslands) í Laugardal.“ Áframhaldandi árangur „Starfsemi Janusar heilsueflingar er enn þá rannsóknartengd og niðurstöður hafa vakið athygli. Hvert þjálfunarferli er skipulagt í 6 mánuði í senn. Með því móti höldum við árangrinum sýnilegum yfir tveggja ára tímabil. Í styrktarþjálfun er unnið í 8-12 manna hópum. Þjálfunin er samt sem áður einstaklingsmiðuð þar sem hver og einn fær þjálfunar- álag út frá eigin getu. Líkaminn er magnað fyrirbæri og þrátt fyrir hækkandi aldur getum við bætt við meðal annars vöðvamassann eða aukið afkastagetuna. Markmið markvissrar heilsueflingar Eitt af markmiðum með heilsu- eflingunni er að gera einstakling- inn sjálfbæran á eigin heilsu og fræða hann um það hversu oft í viku, hve lengi í senn og hve ákaft sé æskilegt að stunda heilsurækt. „Þannig eflist heilsulæsið. Það gerir þetta enginn fyrir okkur. Til þess að snúa heilsunni til betri vegar þarf einstaklingur að hreyfa sig daglega í um 30 mínútur og stunda styrktarþjálfun 2-3 sinnum í viku. Þá þarf hann að nærast vel, sér í lagi að huga að próteinríkri fæðu vilji hann bæta vöðvamassann. Þetta er lykillinn að áframhaldandi árangri. Ég veit ekki um neinn aðila á landinu sem er með jafnhátt þjónustustig á heilsutengdum for- vörnum og Janus heilsuefling er með fyrir þennan aldurshóp. Við mælum vöðva- og fitumassa hjá þátttakendum og fylgjumst með heilsu þeirra og velferð. Einnig störfum við með heilsugæslunni á nokkrum stöðum sem leggja nú aukna áherslu á þjónustu við 65 ára og eldri. Við höfum kannað efnaskipta- villu hjá mörgum hópum okkar, en það er áhættuþáttur hjarta- og æðasjúkdóma. Hér getum við greint í samvinnu við heilsugæsluna hvort þátttakendur búi við efnaskipta- villu. Að baki greiningu eru þrjú blóðgildi (blóðsykur, góða kólester- ólið og blóðfitan) auk blóðþrýstings og ummál mittis. Sé einstaklingur með þrjá þætti eða fleiri yfir eða undir alþjóðlegum viðmiðunum þá er hann í áttfalt meiri áhættu að þróa með sér hjarta- og æða- sjúkdóm en sá sem er með alla þessa þætti í lagi. Því miður búa á milli 25-50% okkar þátttakenda við efnaskiptavillu en með markvissri heilsueflingu, þjálfun og fræðslu höfum við séð um og yfir 30% ávinning á 6-12 mánaða tímabili þar sem einstaklingar færast úr áhættuflokki.“ Ertu að flýta þér inn á dvalar- og hjúkrunarheimilið? „Færa má rök fyrir því að ávinn- ingur heilsueflingarinnar getur að öllum líkindum seinkað innlögn á dvalar- og hjúkrunarheimili, jafnvel hindrað slíkt ferli. Ef einstaklingur vill búa lengur í sjálfstæðari búsetu og sinna athöfnum daglegs lífs lengur, þarf hann að vita hvernig eigi að bregðast við. Lykilatriðið er að stunda hreyfinguna reglu- bundið, gefa ekkert eftir og taka sér ekkert frí frá þjálfun. Lífið er stöðug heilsuefling. Ef vilji er fyrir hendi að fólk starfi lengur en til 67 ára aldurs á vinnumarkaði, þá þarf samfélagið að huga að því að halda fólki lengur við góða heilsu.“ Ávinningur fyrir einstaklinga og samfélagið Ávinningurinn er ekki aðeins gagnvart einstaklingunum heldur fyrir samfélagið í heild. „Hver ein- staklingur sem þarf að leggjast inn á sjúkrahús kostar ríkið gífurlegar fjárhæðir. Hverri krónu sem varið er í heilsutengdar forvarnir skilar sér fjórtánfalt til baka í ríkissjóð samkvæmt breskum rannsóknum. Heilsutengdar forvarnir eru því fljótar að skila sér í sparnaði. OECD komst á snoðir um niður- stöður okkar eftir að við kynntum þær á ráðstefnu í Búdapest fyrir Evrópusambandið og Embætti landlæknis árið 2018. Nú hefur OECD gefið út viðamikla skýrslu um verkefnið okkar sem sýnir enn betur að ávinningurinn er ekki aðeins heilsufarslegur heldur einn- ig fjárhagslegur. Þar er sýnt fram á mikilvægi þess að heilsutengdar forvarnir séu innleiddar til landa OECD og má því segja að ávinn- ingurinn nái á heimsvísu.“ Stígum skrefið til fulls „Áhrif markvissrar heilsueflingar vara að sjálfsögðu ekki að eilífu. Við eldumst jú öll og kveðjum lífið að lokum. Markmiðið sem við leggjum upp með, er ekki alltaf að bæta árum við lífið, heldur lífi við árin, þó svo hið fyrrnefnda fylgi oft í kjölfarið. Svo lengi sem við drögum andann, þá er aldrei of seint að hefja heilsurækt.“ Við lifum lengur en áður, þökk sé læknavísindunum og heilbrigðis- kerfinu. En með hverju árinu fjölgar í þessum hópi, 60 ára og eldri. „Það ríður á að styðja við heil- brigðiskerfið með heilsutengdum forvörnum svo það kikni síður undan auknu álagi sem hlýst af þjónustu við þennan sívaxandi hóp eldri borgara. Ég hóf þessa vegferð fyrir um tuttugu árum og enn sem komið er hefur enginn heilbrigðis- ráðherra stigið nægilega stórt skref í átt að heilsutengdum forvörnum svo eftir sé tekið. Við erum komin langt á veg hjá Janusi heilsueflingu með að móta ákjósanlegt for- varnarferli fyrir þennan hóp, en það er deginum ljósara að hér þarf hið opinbera að gera enn betur og styðja slíkt ferli. Það er von mín að núverandi heilbrigðisráðherra, Willum Þór Þórsson, stígi þetta skref til fulls.“ Janus heilsuefling er með aðstöðu í Lífsgæðasetri St. Jó. í Hafnarfirði. Á heimasíðunni janus- heilsuefling.is er að finna helstu upplýsingar um verkefnið. Þar má einnig skrá sig í Hágæða heilsu- eflingu 60+ á höfuðborgarsvæðinu eða hjá þeim sveitarfélögum sem Janus heilsuefling er í samstarfi við með verkefnið; Fjölþætt heilsu- efling 65+ – Leið að farsælum efri árum. ■ Myndin sýnir áhugaverða þróun á mati rúmlega 800 þátttakenda á eigin heilsu yfir tveggja ára tímabil. Sjá má að heilsa þeirra batnar með hverju sex mánaða tímabili sem líður. 2 kynningarblað A L LT 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.