Fréttablaðið - 03.08.2022, Side 16
Niðurstöður á mati þátttakenda á eigin heilsu (EQ-5D-5L) eftir tveggja
ára heilsueflingu; frá upphafsmælingu (mæling1) að mælingu 5
Mat þátttakenda á eigin heilsu
(meðalaldur; 72 ár; n=848)
Janus heilsuefling
Janus Guðlaugsson o.fl. (2021)
72
79
83 85 87
50
55
60
65
70
75
80
85
90
95
100
Mæling 1 Mæling 2 Mæling 3 Mæling 4 Mæling 5
ST
IG
Heilsa (stig)
***
0
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Janus ítrekar
að nú ríði á
að styðja við
heilbrigðis-
kerfið með
heilsutengdum
forvörnum svo
það kikni síður
undan auknu
álagi sem hlýst
af þjónustu
við þennan
sívaxandi hóp
eldri borgara.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Önnur mjög áhugaverð niður-
staða kom í ljós þegar öllum þátt-
takendum var skipt í þrjá mis-
munandi aldurshópa. Þá sáum við
að elsti aldurshópurinn, 85 ára og
eldri, náði meðal annars hreyfi-
færni og styrk þeirra sem voru
10-15 árum yngri. Þetta sýndi vel
hvað aldur er afstæður en um leið
hve máttur heilsueflingar getur
verið mikill, sé vel og skipulega að
verki staðið.“
Starfsemi í sjö sveitarfélögum
„Verkefnið hófst í Reykjanesbæ árið
2017. Síðan þá hefur hvert sveitar-
félagið af öðru bæst í hópinn. Í dag
er verkefnið starfrækt í sex sveitar-
félögum og það sjöunda fer af stað
í haust.
Við erum í samstarfi við Reykja-
nesbæ, Hafnarfjörð, Vestmanna-
eyjabæ, Grindavík, Seltjarnarnes og
Félag eldri borgara í Garðabæ sem
greiða niður kostnað við þátttöku
íbúa sinna sem eru 65 eða eldri. Í
lok sumars hefjum við samstarf
með Fjarðabyggð en kynning
á verkefninu fer fram á þremur
stöðum mánudaginn 8. ágúst
næstkomandi; kl. 11.00 í Skrúð á
Fáskrúðsfirði, kl. 15.00 í samkomu-
sal Reyðarfjarðarkirkju og kl. 19.30 í
Egilsbúð á Norðfirði.
Vegna mikillar eftirspurnar
höfum við síðustu mánuði boðið
íbúum þeirra sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu sem ekki eru í sam-
starfi við okkur að taka þátt í verk-
efninu án niðurgreiðslu. Það hefur
gengið gríðarlega vel og ætlum við
að bæta við fleiri þátttakendum
núna í ágúst. Hægt er að kynna sér
verkefnið betur á heimasíðu okkar:
janusheilsuefling.is. Kynningar-
fundur á verkefninu verður 15.
ágúst kl. 17.00 í húsakynnum KSÍ
(Knattspyrnusambands Íslands) í
Laugardal.“
Áframhaldandi árangur
„Starfsemi Janusar heilsueflingar
er enn þá rannsóknartengd og
niðurstöður hafa vakið athygli.
Hvert þjálfunarferli er skipulagt
í 6 mánuði í senn. Með því móti
höldum við árangrinum sýnilegum
yfir tveggja ára tímabil.
Í styrktarþjálfun er unnið í 8-12
manna hópum. Þjálfunin er samt
sem áður einstaklingsmiðuð þar
sem hver og einn fær þjálfunar-
álag út frá eigin getu. Líkaminn er
magnað fyrirbæri og þrátt fyrir
hækkandi aldur getum við bætt við
meðal annars vöðvamassann eða
aukið afkastagetuna.
Markmið markvissrar
heilsueflingar
Eitt af markmiðum með heilsu-
eflingunni er að gera einstakling-
inn sjálfbæran á eigin heilsu og
fræða hann um það hversu oft í
viku, hve lengi í senn og hve ákaft
sé æskilegt að stunda heilsurækt.
„Þannig eflist heilsulæsið. Það gerir
þetta enginn fyrir okkur. Til þess
að snúa heilsunni til betri vegar
þarf einstaklingur að hreyfa sig
daglega í um 30 mínútur og stunda
styrktarþjálfun 2-3 sinnum í viku.
Þá þarf hann að nærast vel, sér í lagi
að huga að próteinríkri fæðu vilji
hann bæta vöðvamassann. Þetta er
lykillinn að áframhaldandi árangri.
Ég veit ekki um neinn aðila
á landinu sem er með jafnhátt
þjónustustig á heilsutengdum for-
vörnum og Janus heilsuefling er
með fyrir þennan aldurshóp. Við
mælum vöðva- og fitumassa hjá
þátttakendum og fylgjumst með
heilsu þeirra og velferð. Einnig
störfum við með heilsugæslunni
á nokkrum stöðum sem leggja nú
aukna áherslu á þjónustu við 65 ára
og eldri.
Við höfum kannað efnaskipta-
villu hjá mörgum hópum okkar,
en það er áhættuþáttur hjarta- og
æðasjúkdóma. Hér getum við greint
í samvinnu við heilsugæsluna hvort
þátttakendur búi við efnaskipta-
villu. Að baki greiningu eru þrjú
blóðgildi (blóðsykur, góða kólester-
ólið og blóðfitan) auk blóðþrýstings
og ummál mittis. Sé einstaklingur
með þrjá þætti eða fleiri yfir eða
undir alþjóðlegum viðmiðunum
þá er hann í áttfalt meiri áhættu
að þróa með sér hjarta- og æða-
sjúkdóm en sá sem er með alla
þessa þætti í lagi. Því miður búa á
milli 25-50% okkar þátttakenda við
efnaskiptavillu en með markvissri
heilsueflingu, þjálfun og fræðslu
höfum við séð um og yfir 30%
ávinning á 6-12 mánaða tímabili
þar sem einstaklingar færast úr
áhættuflokki.“
Ertu að flýta þér inn á
dvalar- og hjúkrunarheimilið?
„Færa má rök fyrir því að ávinn-
ingur heilsueflingarinnar getur að
öllum líkindum seinkað innlögn á
dvalar- og hjúkrunarheimili, jafnvel
hindrað slíkt ferli. Ef einstaklingur
vill búa lengur í sjálfstæðari búsetu
og sinna athöfnum daglegs lífs
lengur, þarf hann að vita hvernig
eigi að bregðast við. Lykilatriðið
er að stunda hreyfinguna reglu-
bundið, gefa ekkert eftir og taka sér
ekkert frí frá þjálfun. Lífið er stöðug
heilsuefling. Ef vilji er fyrir hendi að
fólk starfi lengur en til 67 ára aldurs
á vinnumarkaði, þá þarf samfélagið
að huga að því að halda fólki lengur
við góða heilsu.“
Ávinningur fyrir
einstaklinga og samfélagið
Ávinningurinn er ekki aðeins
gagnvart einstaklingunum heldur
fyrir samfélagið í heild. „Hver ein-
staklingur sem þarf að leggjast inn
á sjúkrahús kostar ríkið gífurlegar
fjárhæðir. Hverri krónu sem varið
er í heilsutengdar forvarnir skilar
sér fjórtánfalt til baka í ríkissjóð
samkvæmt breskum rannsóknum.
Heilsutengdar forvarnir eru því
fljótar að skila sér í sparnaði.
OECD komst á snoðir um niður-
stöður okkar eftir að við kynntum
þær á ráðstefnu í Búdapest fyrir
Evrópusambandið og Embætti
landlæknis árið 2018. Nú hefur
OECD gefið út viðamikla skýrslu
um verkefnið okkar sem sýnir enn
betur að ávinningurinn er ekki
aðeins heilsufarslegur heldur einn-
ig fjárhagslegur. Þar er sýnt fram
á mikilvægi þess að heilsutengdar
forvarnir séu innleiddar til landa
OECD og má því segja að ávinn-
ingurinn nái á heimsvísu.“
Stígum skrefið til fulls
„Áhrif markvissrar heilsueflingar
vara að sjálfsögðu ekki að eilífu.
Við eldumst jú öll og kveðjum lífið
að lokum. Markmiðið sem við
leggjum upp með, er ekki alltaf að
bæta árum við lífið, heldur lífi við
árin, þó svo hið fyrrnefnda fylgi
oft í kjölfarið. Svo lengi sem við
drögum andann, þá er aldrei of
seint að hefja heilsurækt.“
Við lifum lengur en áður, þökk sé
læknavísindunum og heilbrigðis-
kerfinu. En með hverju árinu fjölgar
í þessum hópi, 60 ára og eldri.
„Það ríður á að styðja við heil-
brigðiskerfið með heilsutengdum
forvörnum svo það kikni síður
undan auknu álagi sem hlýst af
þjónustu við þennan sívaxandi hóp
eldri borgara. Ég hóf þessa vegferð
fyrir um tuttugu árum og enn sem
komið er hefur enginn heilbrigðis-
ráðherra stigið nægilega stórt skref
í átt að heilsutengdum forvörnum
svo eftir sé tekið. Við erum komin
langt á veg hjá Janusi heilsueflingu
með að móta ákjósanlegt for-
varnarferli fyrir þennan hóp, en
það er deginum ljósara að hér þarf
hið opinbera að gera enn betur og
styðja slíkt ferli. Það er von mín
að núverandi heilbrigðisráðherra,
Willum Þór Þórsson, stígi þetta
skref til fulls.“
Janus heilsuefling er með
aðstöðu í Lífsgæðasetri St. Jó. í
Hafnarfirði. Á heimasíðunni janus-
heilsuefling.is er að finna helstu
upplýsingar um verkefnið. Þar má
einnig skrá sig í Hágæða heilsu-
eflingu 60+ á höfuðborgarsvæðinu
eða hjá þeim sveitarfélögum sem
Janus heilsuefling er í samstarfi við
með verkefnið; Fjölþætt heilsu-
efling 65+ – Leið að farsælum efri
árum. ■
Myndin sýnir
áhugaverða
þróun á mati
rúmlega 800
þátttakenda
á eigin heilsu
yfir tveggja
ára tímabil. Sjá
má að heilsa
þeirra batnar
með hverju sex
mánaða tímabili
sem líður.
2 kynningarblað A L LT 3. ágúst 2022 MIÐVIKUDAGUR