Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 4

Rit Mógilsár - 2021, Qupperneq 4
4 Rit Mógilsár Skilgreiningar Inngangur Gögn og aðferðir Óræktað land: Úthagi þar sem engu hefur verið kostað til jarðabóta Landverð: Verð landsins án mannvirkja svo sem húsa eða girðinga Landrenta: Arður af landi án kostnaðar við land- nýt ing una, svo sem girðingar, heygjöf, vinnu við umsjón landsins eða annað sem nýtingunni tengist. Rentan er oftast gefin sem prósenta af landverði. Hér er fjallað um landverð og landrentu af óræktuðu landi á Íslandi. Land þarf fyrir alla landnýtingu og raun hæft mat á arðsemi landnýtingar verður ekki gert án upplýsinga um landverð. Traustar upplýs ing- ar um landverð á Íslandi eru vandfundnar. Hjá hinu opinbera er skráning upplýsinga um jarðir og jarða- sölur mjög ófullkomin (Elíasdóttir 2015). Í fasteigna- mati er óræktað land hvorki skráð né met ið til skatts. Í landeignaskrá Þjóðskrár Íslands eru birt eignamörk og flatarmál margra landareigna en mikið vantar á að allar jarðir og landskika sé þar að finna.1 Traustar upplýsingar um jarðarverð er helst að finna í skjala- söfnum fasteignasala sem lengi hafa stund að jarða- sölu (Elíasdóttir 2015). Af brotakenndum upplýsingum um eignamörk og óljósu landverði leiðir margs konar óhagræði, óvissa og vanda mál. Eitt er að veðhæfi jarða er óljóst og það gerir bændum erfitt fyrir við rekstrarfjármögnun (Elíasdóttir 2015). Án upplýsinga um verð eru ákvarð- an ir um landnýtingu og lagasetningar þar að lút- andi ómarkvissar og leiða til vantrausts milli aðila. Ákvarðanir sem byggjast á ranghugmyndum um verð mæti lands geta leitt til niðurstöðu sem er and- stæð tilgangi sínum. Í húfi er búseta og samfélag í dreif býli, viðhald náttúrugæða og sjálfsmyndar þjóðar innar. Það er mikilvægt að mat á landverði sé óháð og byggt á sannreynanlegum gögnum. Í þessari rann- sókn var þess freistað að vinna óháða greiningu á landverði á Íslandi byggða á gögnum sem eru öllum opin. Í rannsókninni var notað ásett verð sam- kvæmt auglýsingum fasteignasala. Ásett verð lýsir verð hugmyndum seljenda og fasteignasala í þeirra umboði. Í auglýsingu eru talin fram þau gæði sem seljandi telur að lokki kaupendur til viðskipta og styðji uppsett verð. Þessar upplýsingar vantar í opin- bera skráningu á kaupsamningum og flækir grein- ingu þeirra (Elíasdóttir 2015). Gögnin voru notuð til að gera reiknilíkan sem spáir land verði og það var skalað að úrtaki raunverulegra sölu samninga til að fá söluverð. Spágildi líkansins var prófað á matsgerðum matsnefndar eignarnámsbóta. Lögð var áhersla á að líkanið væri tölfræðilega traust og gæfi nægilega áreiðanlegt mat á landverði til að gagn ast við greiningu á arðsemi skógræktar og fyrir ákvörð un bókfærðs verðs. Við líkangerðina voru notuð gögn um opinberlega aug lýst verð jarða og landspildna frá árunum 1997, 1999, 2011, 2014 og 2019. Gögnin voru einnig greind til að meta breytingar á landverði á þessu árabili og meðal verðmæti mismunandi búrekstrar og húsa. Gögn um hagagöngu hrossa voru notuð ásamt verð- spá líkansins til að meta landrentu. Á grundvelli greiningar innar er fjallað um verðmyndun á landi og þýð ingu hennar fyrir landnotkun. Landverð Upplýsinga var aflað um ásett verð, póstnúmer, landstærð lögbýla og landspildna sem boðnar voru til sölu árin 1997, 1999, 2011, 2014 og 2019. Upplýsingar frá árunum 1997 og 1999 voru úr fjölrituðum skrám með söluyfirlitum frá Fasteignamiðstöðinni2. Gögn fyrir 2011, 2014 og 2019 voru skráð með flettingu á tveimur fasteignavefjum3 sem birta söluyfirlit frá fjölda fasteignasala. Samtals var safnað 908 land- færslum í skrá til greiningar á landverði, 104 frá 1997, 89 frá 1999, 92 frá 2011, 227 frá 2014 og 396 frá 2019. Í sumum tilvikum voru sömu eignir til sölu oftar en einu sinni. Landareignirnar voru flokkaðar eftir því hvort þar væru 1) íbúðarhæf hús, 2) lífvænlegur búrekstur eða 3) veruleg hlunnindi. Lífvænlegur búskapur var skilgreindur sem kúabú, hestabú eða ferðaþjónusta í rekstri. Fjárbú voru undanskilin nema þau væru stór og bústofn, ásamt framleiðslurétti, fylgdi í sölunni. 1 https://geo.skra.is/landeignaskra/ 2 Skrárnar voru fengnar á árunum 1997 og 1999 frá Fasteigna- miðstöðinni, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi. 3 https://www.mbl.is/fasteignir/ og http://fasteignir.visir.is/

x

Rit Mógilsár

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.