Rit Mógilsár - 2021, Blaðsíða 13

Rit Mógilsár - 2021, Blaðsíða 13
Rit Mógilsár 13 Árin 2012-2013 voru tekjur af árshagagöngu hrossa kr. 3.995 á hektara í langtímaviðskiptunum í Flóan- um en á sama tíma var landsmeðaltalið 9.917 kr. á hektara. Tekjur af hagagöngu hrossanna í Fló an um voru því um 40% af gangverði það ár og landrentan reiknaðist um og innan við 1% af verði meðal- hrossahaga (landsmeðaltal). Miðað við gang verð fyrir hagagöngu hefði landrentan í Flóanum verið lið lega 3%. Árin 1989-2019 sveiflaðist land rent an mikið frá ári til árs en langtímameðaltalið virð ist standa í stað61 (5. mynd). Nærri Hellu og Hvolsvelli í Rangárvallasýslu er mikil hrossarækt. Á þessu svæði var reiknað nýtingarverð lands (án staðarvirðis) með jöfnu 10 fyrir 50 ha spildu tífalt hærra á hektara en fyrir 500 ha beitiland á sauðfjárræktarsvæðum á Melrakkasléttu, í Þistilfirði og á Austfjörðum (tafla 1). Miðað við landrentu um 3,1% og landnýtingarverð ættu hreinar tekjur af hrossarækt í Rangárvallasýslu að vera um 9.400-10.800 kr. á ha árlega. Áætlað landsmeðaltal fyrir hreinar tekjur umfram kostnað af girðingum og umsjón hrossa í hagagöngu var 5.049 kr. á ha. Út frá landverði virðist hrossaræktarsvæðið í Rangárvallasýslu arðsamara en landsmeðaltal. Tafla 1. Áætlað landnýtingarverð af 50 hektara spildum við Hellu og Hvolsvöll (hrossaræktarsvæði) og 500 ha lands á sauðfjárræktarsvæðum á Melrakkasléttu, í Þistilfirði og á Austfjörðum. Staður Póstnúmer Verð hlutfall*1 Vega lengd km*2 Algeng landnýting Land stærð ha Landnýtingar- verð Hella 851 0,666 100 Hross 50 302.511 Hvolsvöllur 861 0,798 115 Hross 50 348.152 Kópasker 670 0,365 576 Sauðfé 500 37.207 Þórshöfn 681 0,365 576 Sauðfé 500 34.983 Breiðdalsvík 760 0,365 614 Sauðfé 500 35.928 *1 Hlutfall fermetraverðs fasteigna í einbýli af fermetraverði í einbýli á höfuðborgarsvæðinu. *2 Vegalengd frá Lækjartorgi í Reykjavík. Umræða Staðar- og nýtingarvirði Landverð á Íslandi virðist samsett úr tveimur megin- þáttum, staðarvirði og nýtingarvirði. Staðarvirði er verðmæti þess að eiga aðstöðu eða búa á tilteknum stað, að eiga sér óðal, og má lýsa með spurningunum um hvar við viljum búa, hvar við viljum starfa, hvar sé arðbært að stunda atvinnu- rekstur, hvar sé gott að framfleyta sér og fjölskyldu, hvar sé gott að hafa sumarhús eða njóta yndisstunda. Staðarvirði má skýra með lóðarverði fyrir hús, stað fyrir atvinnurekstur eða yndisreit og fer eftir því hvar landið er í sveit sett. Sé okkur mikið í mun að hafa hús á tiltekinni lóð er líklegt að við sættum okkur við hærra lóðarverð eða hærri lóðarleigu en á annarri lóð og lakari. Þótt okkur bjóðist stærra land en við þurfum er ekki líklegt að við greiðum viðbótina háu verði. Á þessu byggist að land hefur staðarvirði og umfram lágmarksstærð fyrir hentuga lóð er staðar- virði óháð landstærð. Fasti a í jöfnu 1 og 2 lýsir staðarvirði. Nýtingarvirði er verðmæti tekjustraums þeirra gæða sem landflöturinn gefur af sér, t.d. hey af túni, korn af akri, grænmeti úr garði, timbur úr skógi, kol- efnis auki á landi eða beit af haglendi. Samanlögð landnýtingargæði vaxa með landstærð. Sé landið allt jafn kostaríkt er nýtingarvirði í beinu hlutfalli við landstærð en verð á flatareiningu62 óháð landstærð. Fasti b í jöfnum 1 og 2 og c í jöfnu 2 sýna áhrif landstærðar á hektaraverð og nýtingarvirði má nálgast með jöfnum 7 og 8. Staður og stærð Rannsóknir þeirra Kolfinnu Jóhannesdóttur og Jó- hönnu Lindar Elíasdóttur sýndu að landverð á Íslandi lækkar með fjarlægð frá þéttbýli og sérstaklega frá höfuðborgarsvæðinu (Jóhannesdóttir 2008, Elías- dóttir 2015). Þær niðurstöður sem hér birtast eru á sömu lund; landverð lækkar með lengri aksturleið frá Lækjartorgi. Hér skýrðist landverð fyrst og fremst af staðarverði sem fylgdi fjarlægð frá Lækjartorgi og almennu fasteignaverði í héraðinu. 61 Lína felld að landrentu eftir árum, R2 = 0,0079, N = 31 (fjarri því að vera tölfræðilega marktækt). 62 Verð hektara eða verð fermetra, verð landsins deilt með land- stærð.

x

Rit Mógilsár

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.