Rit Mógilsár - 2021, Blaðsíða 22
22 Rit Mógilsár
Þetta verk á sér langa sögu og ég á mörgum þakkir
að gjalda. Ég vil þakka föður mínum, Jóni Hjaltasyni
hæstaréttarlögmanni, fasteignasala, mannvini og
áhuga manni um búskap og ræktun, fyrir áratuga
hand leiðslu. Móður minni, Steinunni Sigurðardóttur,
og systur, Önnu Lilju Jónsdóttur, kennurum, hesta-
konum og nákvæmum skrásetjurum, þakka ég kær-
lega upp lýsingar úr bókhaldi þeirra og skrám um
haga göngu hrossa þeirra í Flóahreppi árin 1989-
2019. Þar að auki fyrir upp lýsingar um hvaðeina sem
snýr að hrossum og hrossarækt, einlægan áhuga á
þess ari greiningar vinnu og áratuga stuðning. Ég er
þakklátur systur minni, Guðbjörgu Ósk Jónsdóttur,
fast eigna- og skipasala, fyrir upplýsingar og aðstoð
við ráð gátur sem liggja ekki á lausu fyrir fáfróða á
fasteigna markaði. Ég vil einnig þakka Þorsteini Stein-
gríms syni fasteigna sala fyrir að benda mér á fyrir
þrjátíu árum að eignarhald á landi væri að breyt-
ast og útlendir auðmenn væru að koma inn á mark-
aðinn. Þá vil ég nefna og þakka kennara mínum í
Forest Business Management við skógræktardeild
há skólans í Aberdeen í Skotlandi, Michael S. Philip,
sem opnaði mér sýn í heim einkaskógræktar sem
ég bý enn að. Ég vil þakka vini mínum og samstarfs-
manni, Úlfi Óskarssyni, fyrir að taka með mér slaginn
um stund í einka rekstri í skógræktarþjónustu. Það var
reynsla úr raunheimi sem við venjulegir ríkisþrælar
fáum ekki við jötubandið. Ég vil þakka Jóni Loftssyni,
fyrr verandi skógræktarstjóra, fyrir að fela mér
stjórnar setu í Suðurlandsskógum og Skjólskógum á
Vest fjörðum. Þá vil ég þakka framkvæmdastjórum
og starfs mönnum Suðurlandsskóga og Skjólskóga á
Vest fjörðum, sem voru og hétu, fyrir samstarfið og
ómetan legar upplýsingar um eðli og framkvæmd
skógræktar samninga á lögbýlum. Auk þess þakka
ég samstarfs fólki mínu á Mógilsá fyrir samstarfið og
sérstak lega Aðalsteini Sigurgeirssyni. Ég þakka yfir-
lesurum leiðréttingar og gagnlegar athugasemd ir.
Ónefndir eru heimildarmenn fyrir kaupverði jarða
sem gerðu mér fært að skala líkanið. Síðast en ekki
síst vil ég þakka minni góðu eiginkonu, Helgu Skúla-
dóttur, fyrir yfirlestur, ábendingar og stuðning. Án
þessa fólks hefði ég ekki komist spönn frá rassi með
þetta verk.
Þakkir