Rit Mógilsár - 2021, Page 11
Rit Mógilsár 11
verð fasteigna, tækja, bústofns og framleiðsluréttar
að meðaltali kr. 178.851.103 á hvert bú. Árið 2019
voru tvö fjárbú í rekstri boðin til sölu ásamt húsum,
bústofni, framleiðslurétti, tækjum og öðru sem
tengist búrekstrinum. Verð sauðfjárbúanna umfram
landverð var að meðaltali kr. 28.713.469. Það er
um fjórum milljónum hærra verð en meðalverð
húsa á bújörðum án búrekstrar á sama tíma.
Verðmæti bústofns, framleiðsluréttar og búnaðar
fjárbúanna er því mjög lítið samanborið við kúabú
í mjólkurframleiðslu. Fjögur hrossabú í rekstri voru
til sölu árin 2014 og 2019 og verð þeirra umfram
landverð var að meðaltali kr. 113.700.973. Þrjú
ferðaþjónustubýli voru til sölu þessi ár og verð þeirra
umfram landverð var að meðaltali kr. 137.711.532.
Eignarnámsbætur
Gögnunum var skipt í tvo hópa, land sem matsnefnd
eignarnámsbóta mat hærra en 3 milljónir á verðlagi
2019 og lægra metnar spildur. Þriggja milljóna
markið er nærri neðri mörkum lands með þekkt
söluverð sem notað var til að skala líkanið (4. mynd).
Miðgildisstærð lands sem nefndin mat hærra en 3
milljónir var 12,7 ha, en lægra metna landsins 2,4
ha. Á árunum 1982-2019 mat nefndin landspildur í 42
tilvikum minna virði en þrjár milljónir leiðrétt fyrir
verðlag í ágúst 2019. Í 6 tilvikum (14%) var hið metna
land stærra en 10 hektarar og í 3 tilvikum (6%) stærra
en 15 ha.
4. mynd. Samanburður á verðmæti eignarnumins lands (náttúrulegur lógri af bótafjárhæð fyrir landspildu en ekki af hektara-
verði) samkvæmt úrskurðum matsnefndar eignarnámsbóta (y-ás) og spá landverðslíkans (x-ás). Brotin lárétt lína markar bóta-
fjárhæð kr. 3 milljónir. Gráir punktar eru úrskurðir yfir kr. 3 milljónum en svartir punktar bótaupphæð undir kr. 3 milljónum.
Rauðir tíglar sýna samanburð verðs samkvæmt sölusamningum (y-ás) og verðspár skv. landverðslíkani (x-ás). Heil lína sýnir
fullkomið samræmi raunverðs og verðspár.
12
14
16
18
12 14 16 18
R
au
n
ve
rð
, l
n
(k
r.
)
Verðspá, ln(kr.)
47 Línulegt aðhvarf landverðs samkvæmt úrskurði matsnefndar að
spá samkvæmt landverðslíkani (hvort tveggja lógra-gildi af verði):
Leiðrétt R² = 0,6758; N = 28; matsverð, ln(verð) = g + h*( f * verðspá);
g = 1,6925 ± 1,9185; h = 0,8966 ± 0,1185* (meðaltal ± staðalskekkja,
„standard error“), F1,26 = 57,280, p < 0,0001.
48 Skurðpunktur við y-ásinn var ekki marktækt frábrugðinn 0, t26 =
0,882; p = 0,385748; og aðeins um 1,4% óskýrðs breytileika stöfuðu
af fráviki frá 0, Ubias = 0,0014; og einungis 2,8% óskýrðs breytileika
stöfuðu frá fráviki hallatölunnar, Uβ-1 = 0,0284.
49 Ue = 0,9701.
50 Landstærðarbil: 0,054-14,72 ha, N = 25.
Úrskurðir matsnefndar eignarnámsbóta þar sem hið
eignarnumda land var metið dýrara en 3 milljónir voru
í góðu samræmi við landverðslíkanið47 (4. mynd).
Verðspáin var óskekkt48 og nánast allur óskýrður
breyti leiki var vegna tilviljanakenndra frávika frá
spálínunni (>97%)49. Miklu munaði á úrskurðum mats-
nefndarinnar og verðspá líkansins fyrir land sem
nefndin mat minna virði en þrjár milljónir (3. mynd).
Samanborið við úrskurði matsnefndar eignarnáms-
bóta virðast verðspár líkansins traustar fyrir land
sem er stærra en 15 ha en óvíst um gildi líkansins
undir þeim mörkum.
Á árunum 2010-2019 úrskurðaði matsnefnd eignar-
náms bóta bætur vegna lands í 25 matsmálum er
vörðuðu 23 jarðir. Meðalstærð lands í þessum úr-
skurð um var 4,8 ha50 og helmingur úrskurðanna
varð aði litlar spildur sem voru fjær höfuðborginni
en 200 km.