Rit Mógilsár - 2021, Page 16
16 Rit Mógilsár
landbúnaðarhéruð í Árnessýslu mat nefndin verð-
mæti landsins ekki út frá hagagöngu eða ræktunar-
möguleikum heldur út frá hugsanlegri nýt ingu eða
skerðingu á nýtingarmöguleikum undir frístunda-
land.68
Árið 2004 voru sett ný jarðalög (81/2004) sem
rýmk uðu heimildir til eigendaskipta og annarrar
notkun ar en landbúnaðar. Það sama ár (2004) fóru
bankar á Íslandi að bjóða lán til fasteignakaupa á
lág um vöxtum og buðu lán fyrir öllu kaupverðinu69.
Fasteigna- og landverð rauk upp (1. mynd). Afleið-
ingin var fasteignabóla sem sprakk í bankahruninu
árið 2008. Ásett verð lækkaði lítið eða ekkert en
eignir seldust ekki. Fyrst eftir bankahrunið voru nán-
ast einu viðskiptin kaup kröfuhafa á uppboðum.
Fremur hátt landverð árið 2011 var sennilega vegna
tregðu seljenda til að lækka verð þótt það væri of
hátt í augum kaupenda og engin spurn væri eftir
eignum á þessu verði.
Markaður með jarðir og lönd staðnaði fram til 2013 en
þá voru jarðir farnar að seljast á ný (Elíasdóttir 2015).
Næstu ár jókst ferðaþjónusta hratt. Ný bókunarkerfi
gerðu íbúðareigendum fært að leigja ferðamönnum
gistingu og íbúðir hurfu af almennum leigumarkaði.
Á sama tíma fluttist fólk til landsins til að vinna í ferða-
þjónustu og byggingariðnaði. Þetta varð með öðru
til þess að fasteignaverð reis í nýjar hæðir (1. mynd).
Á árinu 2020 lækkaði Seðlabankinn vexti veru lega
og lán með lágum vöxtum flæddu inn á fasteigna-
markaðinn. Haustið 2020 voru vísbendingar um nýja
eignabólu sem næði til landeigna.
Afnot og þolinmæði
Hvort heldur landverð er myndað af staðarvirði eða
nýtingarvirði eru tengsl milli landverðs og þeirra
gæða sem landið veitir. Gott land selst dýrara en lak-
ara land og það má skýra út frá núvirði tekjustraums70
eftir að allur kostnaður við landnýtinguna er að fullu
greiddur. Þessar hreinu tekjur nefnast arður. Þegar
land verði er deilt í árlegan arð fæst hlutfallstala
sem nefnist landrenta. Á sama hátt má reikna rentu
af fjár magni, t.d. leiguhúsnæði. Þá er húsverði deilt
í ársleigu að frádregnum öllum kostnaði við leigu-
húsnæðið. Fyrir hús eða aðstöðu greiðist lóðarleiga
sem myndar þar með arð af landinu. Munurinn á
staðar virði og nýtingarvirði birtist í því hvort arður-
inn tengist staðnum óháð stærð eða breytist með
landstærð.
Renta af landi og fjármagni er yfirleitt fá prósent
og hefur verið skýrð með tímagildismati (Piketty
2014). Það er einfald lega biðlund eða hve lengi við
nennum að bíða eftir framtíðargæðum. Með öðrum
orðum þolin mæði. Segja má að ef rentan er 3,1%
eins og hún reiknaðist í þessari rannsókn þá nennum
við að bíða eftir árlegum tekjum sem greiðast í 32
ár eða eitt kynslóðabil. Að meðaltali tekur þá næsta
kynslóð við keflinu í boðhlaupi kynslóðanna.
Tímagildismatið virðist arfbundinn eiginleiki manna
og dýra. Dýratilraunir hafa sýnt að stórar og um leið
langlífar dýrategundir eru þolinmóðari en smærri
og skamm lífari skepnur (Stevens & Mühlhoff 2012).
Rann sóknir á hagtölum hafa sýnt að fjármagnsrenta
er svipuð í flestum ríkjum. Í Bretlandi og Frakklandi
hefur hún verið furðu stöðug í a.m.k. þrjár aldir og að
því er virðist miklu lengur (Piketty 2014). Þótt það sé
flökt á rentunni virðist hún alltaf sækja í sama farið.
Rentan er þá „töfratalan“ sem breytir arði í verð eða
verði í arð.
Střeleček et al. (2010) mátu rentu af landbúnaðarlandi
í löndum Evrópusambandsins og sýndu að hún var
um 2%-3%. Landrenta af hrossabeit á Íslandi virðist
nálægt þessari evrópsku meðalrentu. Að framan-
sögðu lýsir landrentan fremur tímagildismati en að-
stæðum og því má búast við álíka rentu af annarri
landnýtingu.
Engin fjárhagsleg nýting landgæða þýðir ekki endi-
lega að nýtingarvirðið sé ekkert og verðið algerlega
óháð stærð. Að öðru jöfnu bætir stórt land við ánægju
eigandans umfram lítinn skika og skilar því yndisarði
þótt nýtingin skili engum peningalegum arði. Eins
og áður er lýst er landrentan öðru fremur mælikvarði
á huglægt gildi þeirra gæða sem við fáum af landinu
og þar með verðið sem við erum tilbúin að greiða
fyrir umráð landsins. Hluti nýtingarvirðis eins og það
er reiknað hér er yndisarður71 fremur en fjárhaglegur
arður af landnýtingu. Í sauðfjárrækt virðist afkoman
léttvæg og þar að auki óháð stærð heimahaga (sjá
síðar). Því er vandséð að beitin skili jafnvel því lága
nýtingarvirði sem hér reiknaðist í sauðfjársveitum.
Reiknað nýtingarvirði lands í sauðfjársveitum fjarri
þéttbýli er trúlega að verulegu leyti tilfinningaarður
þess að telja sig meiri mann af því að eiga stórt land
en smátt. Þá er ekki átt við tilfinningar bóndans til
landsins heldur fyrst og fremst efnaðra kaupenda.
Eignarréttur
Eignarréttur á landi og þar með landverð og leiga
eru lögvarin umráð afmarkaðs lands en eiga sér
bæði hagnýtan og líffræðilegan grunn.
Sumar dýrategundir marka sér óðal og meina öðrum
dýrum sömu tegundar að frátaldri eigin fjölskyldu
að fara um eða nýta óðalið. Aðrar tegundir marka sér
engin óðul og reika yfir landið í leit að lífsviðurværi.
68 T.d. Matsnefnd eignarnámsbóta, matsmálið nr. 19/1997, úrskurð-
ur frá 1. júlí 1999.
69 100% lánsfjármögnun.
70 Tekjustraumur er endurteknar greiðslur svo sem mánaðarleg
leiga eða tekjur af árlegri uppskeru.
71 Yndisarður er hér haft um þau huglægu gæði sem ekki verða
metin beint til peningavirðis en birtast í hegðun okkar.