Rit Mógilsár - 2021, Page 18

Rit Mógilsár - 2021, Page 18
18 Rit Mógilsár Ferðaþjónusta, frístundir og stórlaxar Ferðaþjónusta er gott dæmi um starfsemi sem skapar staðarvirði en lítið landnýtingarvirði. Þar sem landið er fagurt og ferðavænt getur verið álitlegt að koma upp ferðaþjónustu. Fyrir starfsemina þarf lóð undir gistingu, veitingarekstur og ýmsa aðstöðu. Sjaldnast er nokkur hagur af því að eiga landið umhverfis. Hér á landi er fólki almennt heimil för um land óháð eignar- haldi og litlir möguleikar eru á að taka gjald eða á annan hátt að hafa tekjur af landsafnotum ferða- manna. Þótt gjaldtaka af ferðafyrirtækjum renni að hluta til uppbyggingar á ferðamannastöðum er það ekki greiðsla til landeigenda fyrir landsafnot. Hvað varðar verðmyndun á landi hefur ferðaþjónusta staðar virði en ekkert nýtingarvirði. Frístundaland er staður fyrir dvöl utan vinnutíma. Verð mæti yndisstundanna birtist í landleigu sem greidd er fyrir frístunda land. Frístundaland er m.a. sumar bústaða lóðir og spildur fyrir ræktun í tóm- stund um en stundum heilar jarðir og jafnvel heil héruð. Frí stunda land, hvort heldur stórt eða smátt, hefur staðar virði en sjaldnast fjárhagslegt nýtingar- virði. Í samdrætti búvöruframleiðslunnar eftir 1980 brugðu margir bændur búi og seldu jarðirnar. Landið var þá oftast keypt til frístundanotkunar eða hrossa ræktar. Unga fólkið fluttist á mölina og því eru erfi ngjar gamalla bænda flestir í þéttbýli. Úthagi er undan- skilinn í fasteignamati og fasteignagjöld reiknast einungis af húsum, ræktun og hlunnindum. Það er því tiltölulega ódýrt að eiga landmikla jörð og kostnaður inn oft á tíðum engu meiri en af sumarhúsi á lítilli lóð í þéttri frístundabyggð. Við fráfall gamalla bænda hafa bújarðir oft orðið að frístundalandi erfing janna. Íslenskir auðmenn hafa lengi sóst eftir landi en með samningnum um evrópska efnahagssvæðið opnaðist erlendum auðmönnum leið til jarðakaupa á Íslandi. Jarðir auðmanna eru oftast stórt frístundaland án beinna tekna af landinu sjálfu. Landið er stöðutákn, yndisreitur og umhverfi fyrir viðskipti. Í þéttbýlum heimi með mannþröng og skarkala er nokkurs virði að geta boðið vinum og viðskiptafélögum til sín á friðsæl og að því er virðist ósnortin víðerni. Land er rauneign sem heldur verðgildi sínu þótt peninga legar eignir rýrni í verðbólgu og rekstur tapi verð gildi í kreppu eða mislukkuðum viðskiptum. Jarða kaup eru því einnig örugg geymsla á peningum í verð tryggðum eignum með langtíma ávöxtun. Jarða sala tekur oft langan tíma72 og jarða kaup um fylgir því veruleg lausafjár áhætta, þ.e. sú áhætta að geta ekki losað féð í tæka tíð ef á því þarf að halda. Fyrir þá sem hafa næg fjárráð er það ekki endilega mikið vanda mál. Þegar til langs tíma er litið hækkar raunverð lands vegna fólksfjölgunar og hagvaxtar. Landverð hækkar vegna þess að sama land skiptist á fleira fólk og stærra land þarf fyrir meiri starfsemi. Þannig hækkar staðarvirðið en nýtingarvirði hækkar ekki nema land nýtingin verði hagkvæmari eða afurðaverð hækki umfram önnur gæði. Á árunum 1997 til 2019 hækk aði landverð á Íslandi að meðaltali um 3,4% á ári um fram almennt verðlag. Raunávöxtun landsins skilar sér ekki fyrr en landið er að lokum selt. Jarðeignum fylgir árlegur kostnaður. Kostnaður af víðlendum jarðasöfnum með litlar eða ónýtar byggingar er tiltölulega lítill í samanburði við eignina og eignamyndun. Engu að síður er eftirsóknar vert að eignin standi undir sér. Ein aðferð er að útvista kostnaðinum af eigninni. Það má gera með því að leigja húseignir og ræktun. Það dugar til að leigan dekki fasteignagjöld og annan kostnað af eigninni. Því virðast þessar eignir auðmanna oft leigðar á góðum kjörum frá sjónarhóli leigutakans. Auðmenn hafa sérstaklega sóst eftir jörðum með laxveiðihlunnindum73. Á því er lítill vafi að þessir menn hafa einlægan áhuga á laxveiði og verndun villtra laxastofna. Laxveiðidagar í góðum ám eru dýrir, laxveiðimenn flestir efnaðir og veiðiferðir stöðutákn. Veiðifélög um laxveiðiár skila umtalsverðum arði og laxveiðiár eru arðbærar eignir. Þær eru hluti jarðar sem þar með skilar arði þótt úthaginn vegi létt í innkomunni. Fyrir þolinmóða efnamenn sem vilja sýna veldi sitt, vilja geyma hluta eigna sinna í öruggri, nánast verðtryggðri fjárfestingu eru jarða- kaup góður kostur og laxveiðijarðir eru sérstaklega áhugaverðar þar sem þær bæði hækka í verði og geta skilað árlegum arði umfram tilkostnað við eignina. Landverðsspá Landverðslíkanið gefur líklegt verðmæti óræktaðs lands af tilgreindri stærð og í tiltekinni fjarlægð frá 72 Út frá nýskráningardegi á vefskrám fasteignasala hafa sumar jarðir verið mörg ár á söluskrá. Samanburður á sölulistum Fasteigna miðstöðvarinnar frá 1997 og 1999 bendir til að tekið hafi að meðal tali 1,5 ár að selja þær eignir sem boðnar voru til kaups árið 1997. 73 Þekktasta dæmið eru jarðakaup breska auðmannsins Jims Ratcliffe sem keypt hefur fjölda laxveiðijarða og er sagður eiga um 1% Íslands (http://uti.is/2019/08/jim-ratcliffe-and-his-feudal- hold-of-icelandic-salmon-rivers-and-farming-communities/). Annar nafn kunnur fjárfestir er J. Harald Örneberg, sænskur skógar- fjárfestir í Brasilíu, forstjóri og aðaleigandi The Forest Company (http://www.theforestcompany.se/about-us/investment- manager). Hann keypti jarðir við Langadalsá við Ísafjarðardjúp. (https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1635609/). Hann skoðaði mögu leika á skóg rækt til að auka fiskgengd í ánum en var andvígur fiskeldi við Ísafjarðar djúp og hugsanlegri erfðamengun frá henni. Þegar ljóst var að laxeldi yrði leyft seldi hann jarðirnar. Hann átti áður laxveiðiá í Skotlandi en seldi hana vegna átroðnings og þess að hann sá ekki framtíð í þeirri eign, m.a. vegna hlýnandi loftslags. Þessu til skýringar má nefna að eftir að Skotar fengu heimastjórn og þingið í Edinborg var endurreist, hefur ný lagasetning veikt stöðu stórlandeigenda gagnvart umferð almennings.

x

Rit Mógilsár

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Mógilsár
https://timarit.is/publication/1563

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.