Fréttablaðið - 06.08.2022, Page 6
Mótorhjól sem hafa farið frítt
um Vaðlaheiðargöng þurfa
bráðlega að borga brúsann.
Einnig verður rukkað fyrir
neyðarakstur. Fjárhagsleg
endurskipulagning í gangi.
bth@frettabladid.is
„Þetta eru mér ekki vonbrigði,“ segir
Valgeir Bergmann, framkvæmda-
stjóri Vaðlaheiðarganga, um þá
staðreynd að umferð um göngin
í júlí var 10 prósentum minni en í
júlí í fyrra.
Umferðin um göngin var óvenju
mikil í júlí í fyrra og veður ekki
hagstætt í ár, sem skýrir þá þróun,
að sögn Valgeirs. Hann segir að eigi
að síður stefni í að f leiri bílar fari
göngin á þessu ári en í fyrra.
Þegar lagafrumvarp var sam-
þykkt um göngin vonuðust fylgj-
endur eftir að níu af hverjum tíu
bílum myndu fara göngin þrátt fyrir
gjaldtöku.
Í júlí síðastliðnum sk iptist
umferðin 70-30 milli ganga og
Víkurskarðs.
Mun meiri bílaumferð hefur þó
orðið á landinu með fjölda ferða-
manna en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Af þeim sökum segir Valgeir engu
að kvíða þótt hlutfall þeirra sem aki
Víkurskarðið að sumri sé hærra en
vonast var eftir í rekstrinum. Valgeir
segir rekstur ganganna sjálf bæran
eftir að heimild til að breyta fimm
milljarða láni í hlutafé varð að veru-
leika.
„En það er ljóst að við þurfum að
hækka til að göngin standi undir
sér,“ segir Valgeir.
Stök ferð kostar 1.500 krónur en
hægt er að kaupa ferðir á 800 krónur
ef fjárfest er í 50 ferða korti. Þá segist
Valgeir gera ráð fyrir að ný stjórn,
sem kosin var á ársfundi á dög-
unum, muni herða reglur um gjald-
töku. Fram til þessa hafi mótorhjól,
fjórhjól og önnur ökutæki undir
einu tonni farið frítt um göngin
og neyðarakstur verið heimill án
gjalds. Þetta verði nú endurskoðað.
Skuldir Vaðlaheiðarganga voru
um 20 milljarðar króna um síðustu
áramót. Fjárhagsleg endurskipu-
lagning hefur staðið yfir í tvö ár og
hefur ríkissjóður, lánveitandi Vaðla-
heiðarganga, frestað innheimtuað-
gerðum.
Ríkið á um 93 prósent í göng-
unum en Greið leið á um 7 prósent.
Akureyrarbær á stærsta hlutann í
Greiðri leið. n
Hækka gjald í göngin undir
Vaðlaheiði svo þau beri sig
Breytingar
eru fram
undan í Vaðla-
heiðargöngum.
Hækkun gjald-
skrár og færri
ökutæki sleppa
frítt í gegn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
AUÐUNN
bth@frettabladid.is
VOGAR Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
í Vogum á Vatnsleysuströnd, segir
vegna eldgossins í Meradölum að ef
hraunið færi að renna til norðurs í
miklum mæli gæti þurft að bregð-
ast við því. Ekki séu þó miklar
líkur á að hraunflæðið ógni byggð
í Vogum.
Jarðfræðingar hafa verið var-
færnir í spám um framvindu hraun-
flæðis ef gosið dregst á langinn.
„Í augnablik inu er þetta á
rólegum nótum en ef framleiðnin
á hrauninu dregst á langinn og
sprungan leitar til norðurs gætu
orðið áhrif á okkur,“ sagði Ásgeir
þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða
hans fyrr í vikunni.
Grindvíkingar fögnuðu þegar
eldgosið braust út, að jarðskjálftum
væri lokið í bili. Ásgeir tekur undir
það, því hætta á miklum skjálftum
er minni eftir kvikulosunina. Þá
segir Ásgeir eldsprunguna sumpart
á góðum stað, á miðjum skaganum,
þar sem engir innviðir séu fyrir
hendi.
„Mesta hættan er að sprungan
leiti meira í norður.“
Ásgeir telur að það myndi í öllu
falli taka einhverja mánuði fyrir
hraunið að ógna byggð í Vogum.
„En við horfum líka til þess að vís-
indamenn segja að Reykjanes eldar
séu hafnir og taki 200–300 ár að
jafnaði. Það er erfitt að spá fyrir um
hvernig þetta þróast,“ segir Ásgeir.
Alls búa um 1.400 manns í
Vogum. n
Hraunstraumur gæti ógnað Vogum
Vogar eru um tólf kílómetra frá gosinu í Meradölum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
það er ljóst að við
þurfum að hækka til
að göngin standi undir
sér
Valgeir Bergmann, framkvæmda-
stjóri Vaðlaheiðarganga
gar@frettabladid.is
FRAKKLAND Fyrir utan þrjár hita-
bylgjur sem gengið hafa yfir Frakk-
land í sumar hefur úrkomuleysi
gert það að verkum að þar eru nú
mestu þurrkar sem sögur fara af í
landinu.
„Ástandið gæti haldist óbreytt
eða versnað á næstu vikum,“ segir
í yfirlýsingu frá skrifstofu Elisabeth
Borne, nýjum forsætisráðherra
landsins.
Hún hefur ákveðið að skipa
neyðarnefnd sem vinnur þvert á
landshluta og hvetur alla til að fara
sparlega með vatn. n
Mestu skráðu þurrkar hrjá Frakkland
Elisabeth
Bornes, for-
sætisráðherra
Frakklands
Gleðilega
Hinsegin daga
Landssamband lögreglumanna
óskar hinsegin félagsmönnum sínum
og öllum öðrum innan regnbogafjölskyldunnar
gleðilegra Hinsegin daga.
Ásgeir Eiríksson,
bæjarstjóri Voga
á Vatnsleysu-
strönd
6 Fréttir 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ