Fréttablaðið - 06.08.2022, Síða 10
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@
frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Fyrir vikið
hefur verið
efast um
hvort VG
standi
lengur
undir
nafni, en
jafnvel
fyrrverandi
ráðherra
flokksins
telur hann
hvorki
lengur til
vinstri
né vera
grænan.
Það er í
ófullkom-
leikanum
sem full-
komleiki
þessa
hrjóstr-
uga lands
er falinn;
auðninni,
myrkrinu,
kulda, eldi
og ís.
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
ser
@frettabladid.is
Við Íslendingar eigum til að telja eyjuna
okkar nafla heimsins. Ísland er hins vegar
ekki nafli heldur tánögl.
„Veður í júlí sjaldan eins skítt“, var fyrir
sögn fjölmiðils í vikunni. Í síðasta mánuði
var fjöldi sólskinsstunda undir meðallagi,
úrkoma yfir meðallagi og hæsti hiti í Reykja
vík aðeins 15,9 gráður en hann hefur ekki
verið lægri í júlí síðan 1989.
Undir lok átjándu aldar spurðu Íslend
ingar sig eftirfarandi spurningar af fyllstu
alvöru: Er Ísland byggilegt? Öldin hafði
leikið þjóðina grátt. Á árunum 1707 til 1709
lést fjórðungur þjóðarinnar úr bólusótt.
Á árunum 1751 til 1758 geisaði hungur s
neyð vegna kulda, hafíss og lítils fiskafla.
Árið 1783 hófst eitt mesta eldgos Íslands
sögunnar, Skaftáreldar. Hraunkvika lagði
tugi bæja í eyði og eitruð gjóska olli mengun
og búfjárdauða um land allt en talið er að
fimmtungur þjóðarinnar hafi látið lífið í
móðuharðindunum, sem drógu nafn sitt af
móðunni sem lá yfir landinu.
Svo slæmt þótti ástandið að til tals kom að
flytja alla þjóðina til Danmerkur. Embættis
mönnum var falið að skoða hugmyndina,
um hana voru skrifaðar álitsgerðir og
kostnaðurinn var metinn. Áfangastaðirnir
sem komu til greina voru Jótlandsheiðar,
Finnmörk og Kaupmannahöfn.
„Sagan endurtekur sig kannski ekki en
hún rímar,“ er haft eftir rithöfundinum
Mark Twain. Sótt, kuldakast og eldgos. Tene
virðist Köben 21. aldarinnar þar sem stór
hluti þjóðarinnar leitar nú skjóls í sjálf
skipaðri útlegð.
Niður til helvítis
Árið 1961 sendi ungur drengur rithöfund
inum C. S. Lewis, höfundi Narníubókanna,
bréf og spurði hann hvað gleði væri. Svarið
var óvænt. „Verur geta aldrei orðið fullkomin
sköpunarverk, aðeins fullkomnar verur – svo
sem góður engill eða gott eplatré,“ skrifaði
Lewis. „Hæsta stig gleðinnar er þegar vera
gerir sér grein fyrir því að það sem gerir hana
að ófullkomnu sköpunarverki er það sem
gerir hana að fullkominni veru.“ Hann segir
synd að til séu vondar manneskjur og vondir
hundar. Hluti af ágæti góðrar manneskju
felist hins vegar í því að hún sé ekki engill
og góðs hunds að hann sé ekki manneskja.
„Snotur tánögl er ekki mislukkað hár – og
væri hún með meðvitund gleddist hún yfir
því að vera góð nögl.“
Til að viðhalda byggð á Íslandi þurfa íbúar
eyjarinnar að horfast í augu við að hún er
ekki Majorca eða Tene heldur tánögl. Sú
staðreynd kann þó að vera annað og meira
en eitthvað sem við verðum einfaldlega að
gera okkur að góðu.
Þótt Ísland hafi í aldanna rás verið
afskekkt römbuðu hingað reglulega ferða
langar frá fjarlægum löndum. Í ferðabókum
erlendra manna frá 17., 18. og 19. öld voru
dregnar upp lýsingar af landi og þjóð sem
minna á skuggalegustu ævintýri. Íslend
ingum var lýst sem dónalegum villimönnum
sem bjuggu í moldarhreysum ofan í jörðinni.
Fullyrt var að frítt konuandlit væri hér sjald
séð. Íbúar voru sagðir skelfilegir dansarar;
karl og kona stóðu einfaldlega andspænis
hvort öðru og hoppuðu upp og niður án þess
að hreyfast úr stað. Síðast en ekki síst átti hér
að vera að finna logandi op ofan í jörðina
sem náði alla leið niður til helvítis.
Þegar gos hófst í Meradölum í vikunni
hækkaði gengi hlutabréfa í Icelandair um
3,21 prósent. Að sögn talsmanns flugfélags
ins snarfjölgaði heimsóknum á vef þess við
fréttir af gosinu.
Til Íslands kemur enginn til að sjá sól,
hvítar strandir, hallir eða suðræna sveiflu.
Það er í ófullkomleikanum sem fullkomleiki
þessa hrjóstruga lands er falinn; auðninni,
myrkrinu, kulda, eldi og ís. Við gosstöðv
arnar á Reykjanesi sést annað og meira en
rauðglóandi kvika. Þar blasir við hæsta stig
gleðinnar og sú staðreynd að Ísland er ekki
mislukkað hár. n
Ísland er tánögl
Á sama tíma og jörð hefur endur
tekið leikið á reiðiskjálfi um þvert
og endilangt landið – og rifnað
sums staðar upp með eldum úr
neðra, er íslensk pólitík með
rólegasta móti.
Raunar hefur hún verið harla litlaus um
langa hríð, svo mjög að besta slagorð stjórn
málanna á seinni árum fjallaði í grunninn
um það að slaka bara á og vera ekki með
vesen, heldur kjósa bara það gamla. Og það
gekk raunar eftir með góðum sigri Fram
sóknar til þings og borgar.
Aðrar breytingar eru óljósar, nema ef vera
kynni að hressilegur Sósíalistaflokkurinn
virðist vera að festa sig í sessi fyrir norðan
fimm prósentin og hefur tekist að hrista
nokkuð upp í umræðunni.
Af öðrum flokkum er fátt að segja. Sjálf
stæðisflokkurinn hangir yfir tuttugu pró
sentunum eins og hann á orðið að venjast, og
er ekki lengur sú kjölfesta í íslenskum stjórn
málum sem hann var lengst af síðustu öld
og fram á nýja, enda þarf hann endurtekið
á hækju Vinstri grænna að halda til að sitja
áfram að völdum.
Fyrir vikið hefur verið efast um hvort VG
standi lengur undir nafni, en jafnvel fyrr
verandi ráðherra f lokksins telur hann hvorki
lengur til vinstri né vera grænan. Hvað sem
því líður er fylgi f lokksins að festast undir tíu
prósentunum.
Samfylkingin hefur ekki náð sér á strik
undir forystu Loga Más Einarssonar, þótt
f lokkurinn hafi vissulega hækkað risið frá því
hann taldi einungis þrjá þingmenn – og þar
af engan í Reykjavík og Kraganum, enda lét
þáverandi formaður, Oddný G. Harðardóttir,
þegar af völdum og Logi tók við. Hvort arftaki
hans muni lyfta fylgi f lokksins er allsendis
óvíst.
Viðreisn hefur heldur ekki höfðað til þess
fjölda sem að var stefnt í upphafi, en hefur
þó sannarlega lækkað risið á Sjálfstæðis
flokknum. Við blasir að vandi Viðreisnar er
að ná ekki fylgi út fyrir sínar raðir.
Píratar hafa það bara gott, eru svolítið
komnir á sjálfstýringu í sínum pólitíska ein
leik, þótt þeir geti greinilega boðið öðrum
sviðið með sér. Og álíka sögu er að segja af
Flokki fólksins sem hefur fundið sína fjöl, en
raunar þá einu. Og svo er til Miðflokkur, en
það er reyndar orðið mjög tæpt.
En það vantar pólitík í þetta allt saman. Sér
stöðu. Sýn. Eldmóð. Og umfram allt kjark. n
Pólitísk ró
ARCTIC HEALTH
AHI.IS
JOÐ
HREIN ÍSLENSK FÆÐUBÓT
HÚÐ
EFNASKIPTI
SKJALDKIRTILL
TAUGAKERFI
Í POKUM FYRIR LÁGMARKS KOLEFNISSPOR
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR