Fréttablaðið - 06.08.2022, Qupperneq 12
Mér finnst þetta geggj-
að. Þetta sýnir að við
erum á réttri leið.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir,
framherji íslenska lands
liðsins, lítur svekkt til baka á
lokakeppni Evrópumótsins í
síðasta mánuði, en segir liðið
geta tekið margt gott með sér
frá mótinu í mikilvæga leiki
sem fram undan eru. Fram
herjinn telur íslenska liðið
vera á réttri leið.
helgifannar@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslenska kvennalands
liðið gerði jafntefli í öllum þremur
leikjum sínum í lokakeppni EM
á Englandi í síðasta mánuði. Það
dugði ekki til að komast upp úr
riðlakeppni mótsins og í átta liða
úrslit. Fréttablaðið ræddi við Berg
lindi Björgu Þorvaldsdóttur, fram
herja íslenska liðsins, um hennar
sýn á gengi stelpnanna okkar, nú
þegar tæpar þrjár vikur eru liðnar
frá síðasta leik riðlakeppninnar
gegn Frakklandi.
„Ég er bara enn þá pínu svekkt ef
ég á að vera hreinskilin. Maður hugs
ar til baka, sérstaklega um Belgíu og
Ítalíuleikina, leiðinlegt að geta ekki
klárað þá. En þetta var góð reynsla
og við tökum þetta með okkur inn
í undankeppni HM,“ segir Berglind,
en Ísland á einmitt mikilvæga leiki í
næsta mánuði gegn Belarús og Hol
landi í undankeppni HM 2023.
Ísland þurfti að sætta sig við að
ljúka leik að riðlakeppni lokinni og
horfa á átta liða úrslitin að heiman.
Berglind átti ekki auðvelt með það,
sérstaklega ekki er kom að því að
horfa á leik Belga gegn Svíum.
„Ég átti bara ógeðslega erfitt með
það. Ég gat ekki horft á fyrstu leikina
eftir að ég kom heim, var enn með
pínu óbragð í munninum. Og að sjá
Belgíu spila, þegar mér fannst við
eiga að vera að spila, það var mjög
erfitt,“ segir Berglind, en Ísland og
Belgía gerðu jafntefli í riðlakeppn
inni, í leik þar sem íslenska liðið var
ívið sterkari aðilinn. Hún skoraði
einmitt mark Íslands í leiknum.
Berglind sætti sig þó að lokum
við stöðuna og horfði á restina af
mótinu.
„Þetta var bara frábært mót.
Á völlunum sem við spiluðum á
hefðu stúkurnar alveg mátt vera
stærri, en þetta voru geggjaðir vellir.
Umgjörðin og allt í kringum þetta
var til fyrirmyndar. Það var fullt af
skemmtilegum leikjum. Öll liðin
eru að taka þvílík skref fram á við í
gæðum og öllu.“
Þorsteinn Halldórsson tók við
stjórn landsliðsins í upphafi síðasta
árs. Berglindi líkar að vinna með
honum.
„Mér finnst allir hafa náð að
aðlagast því. Hann hefur komið
inn í þetta með látum og gert vel.
Við erum bara gríðarlega sáttar við
hann.“
Sem fyrr segir á Ísland tvo mikil
væga leiki fram undan í undan
keppni HM í næsta mánuði. Sem
stendur er Ísland í öðru sæti síns
riðils með fimmtán stig, tveimur
stigum á eftir Hollendingum. Það er
því ljóst að leikurinn við þær appels
ínugulu verður hreinn úrslitaleikur
um það að komast beint í loka
keppni HM. Liðið sem hafnar í öðru
sæti þarf að fara í umspil.
„Ég er gríðarlega spennt. Eftir leik
inn gegn Frakklandi hugsuðum við
strax að við ætluðum að taka þetta
með okkur í þessa tvo leiki. Mark
miðið er bara að klára Holland og
komast beint á HM,“ segir Berglind.
Lokakeppni HM fer fram í Ástralíu
og NýjaSjálandi næsta sumar.
Í gær bárust þær gleðifréttir að
Ísland væri í fjórtánda sæti á nýjum
heimslista FIFA. Liðið stekkur upp
um þrjú sæti frá síðasta lista og hefur
aldrei verið ofar.
„Mér finnst þetta geggjað. Þetta
sýnir að við erum á réttri leið.“
Fyrr á þessu ári gekk Berglind í
raðir Brann í Noregi. Liðið er á toppi
deildarinnar með fimm stiga forskot
á Rosenborg, sem er í öðru sæti. Þrír
leikir eru eftir af hinu hefðbundna
deildartímabili í Noregi, áður en
deildinni verður skipt upp í tvo
hluta. Brann er því á góðri leið með
að tróna á toppi deildarinnar þegar
tvískiptingin á sér stað.
„Það hefur gengið gríðarlega vel.
Við erum komnar áfram í bikarnum
og Meistaradeildin er að byrja. Það
verður smá álag núna en mér líst
bara vel á þetta allt.“ n
Átti erfitt með að horfa á fyrstu
leikina eftir heimkomuna frá EM
Íslenska liðið tekur víkingaklappið með stuðningsmönnum eftir lokaleik sinn á EM gegn Frökkum. MYND/AÐSEND
Ísland mun leika
hreinan úrslitaleik við
Holland um efsta sæti
undanriðilsins og þar
með sæti í lokakeppni
HM.
12 Íþróttir 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Íslenska landsliðið á,
þegar tveir leikir eru eftir hjá liðinu í
undankeppni HM, góðan möguleika
á að tryggja sér beint sæti á HM.
Stelpurnar eru sem stendur í 2.
sæti síns riðils, tveimur stigum á
eftir toppliði Hollands og með leik
til góða.
Fram undan eru síðustu tveir leik
ir liðsins í riðlinum gegn Belarús á
heimavelli þann 2. september næst
komandi og síðan útileikur gegn
Hollandi í lokaumferð riðilsins.
Ísland vann nokkuð öruggan 50
sigur á Belarús í fyrri umferðinni
og gera verður kröfur á að liðið sigli
sigrinum heim á heimavelli.
En sama hvernig fer gegn Belarús
bíður liðsins alltaf úrslitaleikur
gegn Hollendingum sem mun ráða
úrslitum um það hvort það verði
Íslendingar eða Hollendingar sem
ná að tryggja beint sæti á HM 2023
á næsta ári. n
Í góðri stöðu fyrir
lokaleikina
Það styttist í næsta stóra verkefni
íslenska landsliðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Horfir lítið í styrkleikalistann
Íslenska kvennalandsliðið náði
nýjum hæðum á nýútgefnum
styrkleikalista Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins og situr
nú í 14. sæti listans. Aldrei áður
hefur kvennalandslið Íslands
verið svo ofarlega á listanum.
Nýútgefinn listi tekur meðal
annars mið af úrslitum á nýaf-
stöðnu Evrópumóti í knatt-
spyrnu sem fór fram í Englandi.
Þorsteinn kýs að horfa ekki of
mikið á röðunina á styrkleika-
listanum.
,,Við spáum lítið í þennan
heimslista en ég rak augun í
þessa staðreynd. Auðvitað er
þetta bara fínt í sjálfu sér þrátt
fyrir að við horfum lítið í þetta.
Þetta sýnir kannski bara að
við séum á einhverri vegferð
og góðri leið. Það er auðvitað
góðs viti að við séum á leiðinni
upp en ekki niður.“
Íslenska landsliðið færist
upp um þrjú sæti milli lista
en lægst hefur liðið verið í 22.
sæti. Það er landslið Bandaríkj-
anna sem situr á toppi listans
á undan Þjóðverjum sem eru í
2. sæti.
Nýkrýndir Evrópumeistarar
frá Englandi færast upp um
fjögur sæti á listanum, fara úr
fjórða sæti upp í það áttunda
eftir alveg magnaða frammi-
stöðu á heimavelli undir stjórn
Sarinu Wiegman.
aron@frettabladid.is
FÓTBOLTI Þorsteinn Halldórsson,
landsliðsþjálfari íslenska kvenna
landsliðsins í knattspyrnu, er mætt
ur aftur til starfa eftir verðskuldað
frí í kjölfar Evrópumótsins í knatt
spyrnu. Fram undan eru mikilvægir
leikir hjá landsliðinu, sem er í góðri
stöðu til að tryggja sér sæti á Heims
meistaramóti næsta árs.
„Ég var bara að snúa aftur til vinnu
eftir að hafa verið í sumarfríi frá því
að verkefni okkar á Evrópumótinu
lauk,“ segir Þorsteinn við Frétta
blaðið. „Á næstu dögum förum við á
fullt í að greina okkar frammistöðu
á EM og undirbúa næsta verkefni.
Auðvitað hef ég samt horft á leiki
okkar á mótinu en án þess þó að
hafa farið í mikla greiningarvinnu
á því sem fór fram í þeim leikjum.“
Frammistaða íslenska landsliðs
ins verði greind í þaula. „Við munum
fara náið yfir okkar frammistöðu á
EM og svo skiljum við bara við það.
Í kjölfar þess hefst undirbúningur
fyrir aðalmálið í dag og það eru
þessi lokaleikir okkar í undan
keppni HM.“
Þorsteinn er ánægður með Evr
ópumótið í heild sinni sem var mikil
skemmtun. „Ég held að þetta hafi
verið virkilega flott mót. Það mynd
aðist frábær stemning í kringum það
og vel staðið að öllu. Þetta var í raun
og veru flott í alla staði. Það mætti
segja að þetta hafi verið góð aug
lýsing fyrir kvennaknattspyrnuna.
Þarna var spilaður frábær fótbolti og
bara virkilega gaman fyrir okkur að
hafa verið hluti af þessu.“
Mættur aftur til starfa eftir verðskuldað frí
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands.
Tæpur mánuður er í næsta verk
efni landsliðsins sem hefur örlögin
í eigin hendi fyrir lokaleiki sína í
undankeppni HM gegn Belarús og
Hollandi.
„Við munum alltaf fá þennan
úrslitaleik í Hollandi, sama hvernig
fer í fyrri leiknum á móti Belarús.
Nú er það bara undir okkur komið
að hafa fókusinn á réttum stað og
tryggja okkur sæti á Heimsmeist
aramótinu, sama hvernig við förum
að því. Við þurfum bara að byrja á
því að vinna Belarús, spila góðan
leik þar. Fara svo til Hollands og ná
í góð úrslit.“ n