Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 19
Áreitið getur stundum
verið rosalega mikið
og já, það horfa allir á
mann í búðinni.
Bassi
Mér finnst samt mjög
mikilvægt að fólk eins
og ég fái pláss í sam-
félaginu og platform til
að sýna að það er allt í
lagi að vera öðruvísi.
Binni Glee
Gunnar og Sæmundur eru tvíeggja tvíburar og þykja afar líkir. Gunnar er
einni klukkustund og 40 mínútum eldri en Sæmundur. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Patti, Bassi og
Binni hafa verið
Æðistrákarnir
frá því að fyrsta
serían fór í
loftið. Gunnar
og Sæmundur
hafa svo bæst í
hópinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/
EYÞÓR
Patti segir sömu söguna, að í
grunnskóla hafi hann verið kall-
aður hommi og faggi en einnig að
í menntaskóla hafi hann upplifað
mikið áreiti frá fótboltastrákum í
Menntaskólanum á Akureyri. „Það
er bara eitthvað sérstakt í gangi hjá
svona fótboltastrákum. Þeir eru
langverstir þegar kemur að þessu,“
segir hann.
„Já, ég er sammála, fótboltastrák-
ar og aðrir hommar, en ég held að
það sé hundrað prósent líka vegna
afbrýðisemi,“ bætir Bassi við.
„Það er fullt af fordómafullu fólki
á Íslandi en ég held að við sleppum
vel og höfum gert það undanfarin ár
af því við erum Æðistrákarnir,“ segir
Patti. „Fólk veit hverjir við erum og
hvernig við erum svo það býst við
að við séum öðruvísi en margir
strákar, klæðumst „stelpufötum“
og málum okkur og svona. Ég held
að fólk myndi frekar tala um það ef
ég væri ómálaður í gallabuxum og
hettupeysu,“ bætir hann við.
„Maður tekur sérstaklega eftir
fordómum því meira sem maður
ferðast um heiminn,“ segir Bassi.
„Ég hef alveg klætt mig öðruvísi
þegar ég er í útlöndum. Reyni að
vera í hettupeysu og helst bara með
einhverja píu til að leiða. Fann mjög
mikið fyrir því þegar við vorum í
Prag, bara hvernig var horft á mig,“
segir hann.
„Ég fann líka fyrir þessu í Prag.
Til dæmis þegar ég fór á kvennakló-
settið. Ég nota það alltaf alls staðar,
ekki af því ég upplifi mig sem konu
heldur af því að mér finnst það bara
betra og það hefur aldrei verið vesen
en í Prag var eins og ég væri ógeðs-
legur og væri að gera eitthvað rangt.
Konurnar voru bara alls ekki næs
við mig,“ segir Patti.
Hvaða máli skiptir hátíð eins og
Hinsegin dagar fyrir ykkur?
Binni: „Mér finnst mjög mikil-
vægt að við berjumst gegn for-
dómum. Því miður er enn þá hatur
í garð hinsegin fólks og það er mjög
mikilvægt að fræða fólk um hin-
seginleikann og að það átti sig á að
við erum manneskjur eins og allir
aðrir.“
Binni: „Það að halda Pride og
fagna fjölbreytileikanum gerir sjúk-
lega mikið fyrir samfélagið og hin-
segin fólk. Pride gerir mig stoltan
af sjálfum mér og það að finna alla
þessa ást er svo mikilvægt og geggj-
að. Sérstaklega eftir allt sem maður
hefur gengið í gegnum í öll þessi ár
eins og að koma út, vera accepted og
fleira.“
Patti: „Það er svo gott að sjá og
finna þessa samstöðu sem er á
Pride. Að vita að hérna á Íslandi
standi flestir með hinsegin fólki og
fagni fjölbreytileikanum.“
Bassi: „Við þurfum líka að vera
sýnileg. Það er alltaf verið að tala
um að hinsegin fólk sé að troða sér
og sínu út um allt og sé með svaka-
lega sýniþörf en við þurfum að gera
þetta, vera loud and proud, það er
ekki langt síðan það var bara varla
hægt að vera hommi hérna. Páll
Óskar var bara ridiculed (hafður að
háði) fyrir það að vera eins og hann
var.“
Patti: „Það hefði ekki verið eins
fyrir okkur að koma út fyrir fimm-
tíu árum, við hefðum bara verið
teknir af lífi fyrir það að vera eins
og við erum. Við hefðum bara verið
eins og einhver dýr í sirkus og það
má ekki gleyma því að við höfum
þessi réttindi og erum svona frjáls
af því að fólkið á undan okkur er
búið að berjast fyrir okkur.“
En hvernig hefur líf ykkar breyst
síðan þið urðuð raunveruleika-
stjörnur?
Patti: „Við höfum prófað að gera
hluti sem við hefðum aldrei gert ef
við værum ekki í Æði og við fáum
að gera endalaust af skemmtilegum
hlutum. Það er alltaf verið að bjóða
okkur í hitt og þetta og það er sjúk-
lega gaman.“
Bassi: „Það er nefnilega ógeðs-
lega gaman að vera með okkur og
það er alltaf gaman hjá okkur, ekki
bara þegar við erum on camera.
Og það er sérstaklega skemmti-
legt þegar við erum að djamma, þá
erum við hver öðrum ruglaðri. Ég á
það til að hverfa, Patti fer í sleik við
einhverjar gellur og Gunnar slúðrar
stanslaust.“
Patti: „Annars er ég bara að lifa
drauminn. Alveg frá því ég var lítill
hef ég horft á raunveruleikaþætti og
nú er ég bara raunveruleikastjarna.“
Gunnar: „Lífið breyttist mjög
mikið eftir að Æði-þættirnir fóru
af stað og eftir að ég varð raun-
veruleikastjarna. Ég get varla farið
út í búð lengur án þess að einhver
þekki mig eða að starað sé á mig. Ég
myndi samt líka stara á mig.“
Bassi: „Áreitið getur stundum
orðið rosalega mikið og já, það
horfa allir á mann í búðinni. Ég er
til dæmis bara alveg hættur að fara
í Hagkaup í Skeifunni, það er bara
of mikið, ég fer bara í litlar búðir í
staðinn.“
Patti: „Já, ég líka. Þegar allir
eru að fylgjast með manni verður
maður líka svo meðvitaður um sig,
ég myndi aldrei fara í Hagkaup til
dæmis án þess að vera málaður og
vel til hafður.“
Sæmundur: „Við Gunnar höfum
alltaf verið mjög lokaðar per-
sónur og ekki hleypt mörgum inn
í líf okkar svo ég hefði aldrei getað
ímyndað mér að við værum á
þessum stað í dag. Mér finnst enn
þá frekar skrítið að við séum í sjón-
varpinu og að fólk þekki okkur úr
þættinum.“
Gunnar: „Ég er samt mjög sáttur
með það sem við erum að gera í
dag og að fólk fái að sjá okkur eins
og við erum, ég held að það séu ekki
margir hommatvíburar á Íslandi
sem eru svona fabjúlus.“
Binni: „Það hefur mjög mikið
breyst hjá okkur eftir að Æði byrj-
aði, aðallega það að f leira fólk er
farið að þekkja mig og maður fær
sjúklega mikla athygli en þetta er
öðruvísi upplifun en þegar ég var
snappari. Þá var ég mestmegnis
með börn sem fylgjendur en í dag
eru það allir. Mér finnst samt líka
mjög mikilvægt að fólk eins og ég fái
pláss í samfélaginu og platform til
að sýna að það er allt í lagi að vera
öðruvísi og hinsegin. Mér líður eins
og ég sé búinn að gera góða hluti
fyrir samfélagið sem opinber hin-
segin manneskja.“
Haldið þið að það skipti miklu
máli fyrir ungt fólk að eiga fyrir-
myndir eins og ykkur?
Patti: „Já, ég held það og ég vona
að við séum að gera það vel. Bara
það að krakkar alist upp við það að
við séum sjáanlegir og séum í sjón-
varpinu gerir það að verkum að það
sem við erum og hvernig við erum
verður normalt.“
Binni: „Ég fann það alveg þegar
ég byrjaði með Snapchat að maður
hefði áhrif en þetta byrjaði smátt
og áður en ég vissi af var ég kominn
með 35 þúsund fylgjendur. Mér
fannst ég vera að gera eitthvað rétt
því ég fékk svo mörg skilaboð frá
fólki um að ég hefði hjálpað því að
finna sjálft sig og að ég hafi verið
ástæðan fyrir að þau þorðu að koma
út úr skápnum. Það er það besta
sem maður heyrir þegar maður er
svona opinber manneskja.“
Patti, Bassi, Binni, Gunnar og
Sæmundur eru allir að vinna á
Hrafnistu ásamt því að starfa á sam-
félagsmiðlum og í sjónvarpinu. Þeir
segja allir afar mikilvægt að hafa
rútínu í sínu daglega lífi og hana fái
þeir í vinnunni á Hrafnistu. „Það er
svo mikilvægt að þurfa að vakna á
morgnana og mæta eitthvert,“ segir
Binni.
Næst á dagskrá hjá strákunum er
ný sería af Æði, sería fimm.
Er þetta alltaf jafn gaman?
Patti: „Já, þetta er geggjað og við
getum ekki beðið!“ n
Helgin 19LAUGARDAGUR 6. ágúst 2022 FRÉTTABLAÐIÐ