Fréttablaðið - 06.08.2022, Page 24
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Ljónagosbrunnur Samúels er heimsþekktur og ákaflega tilkomumikill. Stundum er látið renna um hann vatn.
Hliðið að listasafninu að Brautarholti í Selárdal er glæst og tilkomumikið og
sýnir glöggt hversu stórt listamaðurinn Samúel hugsaði í listsköpun sinni.
„Samúel var skapandi og frjór
listamaður, þrátt fyrir að hafa ekki
verið viðurkenndur listamaður í
lifanda lífi af elítunni fyrir sunnan.
Engu að síður voru verk Samúels
vinsæl og það var oft gestkvæmt
hjá honum, eins og enn er raunin
því hingað gera sér margir sérstaka
ferð til að líta verk Samúels eigin
augum, jafnt Íslendingar og erlend-
ir ferðalangar,“ upplýsir Kári.
„Aðdráttarafl Samúels er mikið.
Hér má sjá fjölmörg olíumálverk
og landslagsmyndir sem hann
málaði og rammaði inn sjálfur í
sína útskornu ramma. Hann setti
upp höggmyndagarð, skar út í tré
og gerði líkön, meðal annars af
Péturskirkjunni í Róm og ind-
versku musteri, þar sem hann
studdist við myndir úr bókum
og af póstkortum, enda fór hann
aldrei til útlanda. Líkön Samúels
voru listavel gerð, úr hundruðum
ef ekki þúsundum smáhluta, og
dylst engum að á bak við þau lágu
margar vinnustundir, þolinmæði
og djúpstæð sköpunargleði,“
greinir Kári frá.
Kirkja Samúels, og safn hans að
Brautarholti, eru fágæt listaverk í
sjálfu sér, umvafin einstakri nátt-
úrufegurð.
„Í kjölfar aukins ferðamanna-
straums til Íslands hafa ljós-
myndir af verkum Samúels dreifst
um allan heim, enda vinsælt
hjá gestum safnsins að taka þar
myndir. Þá eru verk Samúels
áberandi í margvíslegu kynningar-
efni um Vestfirði; handbókum,
tímaritum og bókum,“ segir Kári
á þeim kynngimagnaða stað sem
Selárdalur Samúels er.
Heillandi heimur
Um aðra helgi, dagana 12. til 14.
ágúst, verður Listahátíð Samúels
haldin með pomp og prakt í Selár-
dal, en hátíðin er haldin annað
hvert ár.
„Hátíðin er heillandi heimur
þar sem boðið verður upp á
ýmsar listauppákomur, tónleika,
gönguferðir, flugdrekasmiðju,
leik, brennusöng og dýrindis mat
í boði 27 Mathúss. Hægt er að
fara í gönguferð með leiðsögn um
nágrennið, taka þátt í flugdreka-
smiðju fyrir fjölskylduna í umsjá
Fjólu Eðvarðsdóttur, keppa á
Íslandsmóti í listrænni flugdreka-
gerð og flugdrekaflugi, og sækja
sýningar á steypuverkum Samú-
els og sjá kvikmyndina Steyptir
draumar í kirkjunni,“ útskýrir Kári
og heldur áfram:
„Um tónlistina í dalnum sjá Skúli
mennski, Between Mountains og
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, sem
syngur við undirleik Francisco
Javier Jauregui. Loks verður fjöru-
ferð og brennusöngur með eðal
Bílddælingum og DJ Mjalti bóndi
sér um að koma hátíðargestum í
góðan gír.“
Safnbygging Samúels fékk sitt
upphaflega hlutverk sem listasafn
aftur þegar opnuð var þar fyrsta
sýningin sumarið 2020.
„Í sumar opnuðum við nýja sýn-
ingu um sögu steypuverka Samú-
els, sem Gerhard König tók saman.
Í kirkjunni hafa auk þess verið
haldnir tónleikar, leiksýningar og
gamanmál, og þar er sýning um
sögu viðgerðanna. Auk þess býður
staðurinn upp á einstaka náttúru,
fallegt útsýni, hvítar strendur og
djúpblátt haf, og það er mjög sér-
stök upplifun að dvelja í Selárdal,“
segir Kári, fullur tilhlökkunar.
Hátíðarpassi frá föstudegi til
sunnudags kostar 7.000 krónur. n
Nánari upplýsingar á samuels-
safn. is og Facebook-síðu Lista-
safns Samúels. Miðasala á tix.is.
Dagskráin á Listahátíð
Samúels 2022:
Föstudagur 12. ágúst
n 20.00 „Steyptir draumar“ –
heimildarmynd um Samúel
sýnd í kirkjunni.
n 21.00 DJ Mjalti bóndi í
kirkjunni.
Laugardagur 13. ágúst
n 12.00 Hátíð sett. Kaffi og
meðlæti.
n Gönguferð í Verdali eða
Vatnahvilft undir leið-
sögn Sólveigar Ólafs-
dóttur.
n Gerhard König segir frá
uppbyggingu og viðgerð-
um og steypuverkum
Samúels.
n Smiðja í flugdrekagerð
fyrir börn og fullorðna.
Umsjón Fjóla Eðvarðs-
dóttir.
n 17.00 Íslandsmót í list-
rænni flugdrekagerð og
flugdrekaflugi - Flugdreka-
keppni.
n 18.30 Verðlaunaafhending
í flugdrekakeppni.
n 19.00 Kvöldmatur að hætti
og í boði 27 Mathúss.
DJ Mjalti bóndi – dinner-
tónar.
n 20.00 Skúli mennski – tón-
leikar í kirkjunni.
n 21.00 Between Mountains
– tónleikar í kirkjunni.
n 21.30 Fjöruferð.
n 22.00 Brenna og brekku-
söngur með eðal Bílddæl-
ingum. DJ Mjalti bóndi sér
um nóttina.
Sunnudagur 14. ágúst
n 13.00 Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir og Francisco
Javier Jauregui – söngur og
gítarleikur í kirkjunni.
n 14.00 Hátíð slitið.
Kári G. Schram er formaður Félags
um Listasafn Samúels.
Samúel lagði
mikið upp úr fal-
legum smáatrið-
um í byggingum
sínum, eins og
sjá má í hliðum,
handriðum
og svölum
listasafnsins.
MYNDIR/AÐSENDAR
Það er töfrandi upplifun að verja tíma í undraveröld Samúels í Selárdal og víst að hvergi sést annað eins og hans.
Gestir Listahátíðar Samúels munu njóta andagiftar hans, fagurrar náttúru, viðburða, tónlistar, matar og gleði.
Listamaðurinn sjálfur, Samúel Jónsson, við líkan sitt af
Péturskirkjunni í Róm. Líkanið má nú sjá í kirkju Samúels.
2 kynningarblað A L LT 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR