Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 26
Eftirspurnin eftir
því að komast í golf
er gríðarleg og það eru
fleiri og fleiri sem vilja
kynna sér golfíþróttina.
Hulda Bjarnadóttir
Fimm ný fæðubótarefni frá
Good Routine eru komin
á markað á Íslandi og hafa
slegið í gegn undanfarin
misseri. Þessi vönduðu fæðu
bótarefni eru gerð úr nátt
úrulegum innihaldsefnum
og geta stuðlað að bættri
heilsu á ólíkan hátt, meðal
annars með því að vernda
þvagfærakerfið, styrkja
ónæmiskerfið og bæta
meltingu.
Good Routine framleiðir gæða
fæðubótarefni með náttúrulegum
innihaldsefnum og einstakri
blöndun og samvirkni inni-
haldsefna. Fæðubótarefnin eru
kröftug og virka hratt, hafa hátt
næringargildi og upptaka þeirra í
líkamanum er góð. Þau innihalda
auk þess engin algeng ofnæmis- eða
aukaefni.
Fæðubótarefnin eru framleidd á
Spáni eftir einkaleyfisvörðum og
vísindalega skrásettum formúlum
Secom®, en hér er um að ræða
einstaklega vandaðar vörur og
háþróuð bætiefni.
Loksins á Íslandi
Núna fást fimm af vörum Good
Routine á Íslandi. Þær eru: Com-
fort-U®, sem veitir þvagfæra-
kerfinu stöðuga vernd, Daily-D3
2000 IU®, sem er D3-vítamín af
náttúrulegum uppruna, Synergize-
Your-Gut®, sem er fyrir þarma-
heilsu og heilbrigða þarmaflóru,
Pure Omega-3, sem er kraftmikið
ómega-3 í gelhylkjum, og C-Your-
Immunity®, sem inniheldur
C-vítamín, quercetin, hesperidin
og bromelain í einu hylki og hjálpar
fólki sem er viðkvæmt fyrir kulda
og hitabreytingum. Von er á fleiri
vörutegundum frá vörumerkinu
bráðlega.
Ásamt því að sérhæfa sig í fæðu-
bótarefnum leggur Good Routine
einnig mikla áherslu á að stuðla að
vitundarvakningu um að góðar
venjur séu lykilatriði þess að líða
vel alla daga. Það spannar allt frá
hreyfingu og næringu til andlegrar
heilsu.
Vönduð og spennandi fæðubótar-
efni með mikla virkni
Unnur Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur
verið að prófa nýju fæðubótarefnin
frá Good Routine undanfarnar
vikur og er mjög ánægð með virkni
þeirra. Hún hefur verið að nota
Daily-D3 2000 IU®, Synergize-
Your-Gut® og C-Your-Immunity®.
„Ég hef tekið þetta inn í um 3-4
vikur og þetta eru mjög góð bæti-
efni. Ég hef ágætis þekkingu á fæðu-
bótarefnum því ég hef alltaf hugsað
vel um mig og ég fann það strax að
þetta er frábær vara,“ segir hún.
„Ég frétti af þessum fæðubótar-
efnum í gegnum vinafólk og sá
þetta í verslunum og fannst þetta
strax mjög spennandi. Ég hef
alltaf verið áhugamanneskja um
bætiefni, eins og ég segi, svo ég var
ánægð með að fá að prófa eitthvað
nýtt og spennandi,“ segir Unnur.
„Mér finnst virkilega hafa verið
vandað til verka og þetta er mjög
fjölbreytt lína af fæðubótarefnum
svo ég á eftir að prófa fleiri efni, en
þetta lofar mjög góðu hingað til og
mér finnst allt við þetta merki mjög
faglegt.“
Betri melting og þarmaflóra
„Maður vill alltaf hugsa vel um sig
og nú er ég orðin amma, svo ég þarf
að hugsa vel um ónæmiskerfið og
meltinguna og mér finnst áhrifin af
Synergize-Your-Gut® sérstaklega
eftirtektarverð og jákvæð,“ segir
Unnur. „Ég hef tekið eftir því að
meltingin hefur orðið betri og það
sé meira jafnvægi á þarma flórunni.
Það kom mér eiginlega á óvart hvað
ég finn mikið fyrir þessu, sérstak-
lega þar sem ég hef ekki notað þetta
lengi.
Ég myndi virkilega mæla með
þessum fæðubótarefnum. Ég hef
mikla trú á þessum vörum og
góða tilfinningu fyrir þeim,“ segir
Unnur. „Ég held líka að þau sem
fylgjast með í vítamínheiminum
eigi eftir að sjá það fljótt hvað þetta
er vönduð og flott vara.“ n
Good Routine fæðubótarefnin
fást í Hagkaup, Lyfjum & heilsu,
Apótekaranum og Krónunni.
Good Routine bætti meltinguna til muna
Unnur Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Engey kids, hefur verið að
prófa nýju fæðubótarefnin frá Good Routine undanfarnar vikur og er mjög
ánægð með virkni þeirra. MYND/AÐSEND
Synergize-Your-Gut® hjálpar til við þarmaheilsu og heilbrigða þarmaflóru. MYND/AÐSEND
Það er í nógu að snúast hjá
Huldu Bjarnadóttur, forseta
Golfsambands Íslands. Golf
íþróttin er í örum vexti hér á
landi og hápunktur golfsum
arsins verður í Vestmanna
eyjum um helgina þar sem
Íslandsmótið fer fram.
gummih@frettabladid.is
Hulda er vitaskuld mætt í eyjuna
fögru en keppni hófst þar á
fimmtudag og stendur yfir alla
helgina.
„Við reiknum með hörkuspenn-
andi keppni á glæsilegum velli
þeirra Eyjamanna. Aðstaðan hér er
frábær. Það er búið að stækka golf-
skálann, barna- og unglingastarfið
er frábært og bæjaryfirvöld eru
með góðan stuðning,“ sagði Hulda
í samtali við Fréttablaðið.
Hulda segir að ekkert lát sé á
fjölgun iðkenda í golfinu hér á
landi.
„Nýjustu tölur staðfesta að enn
fjölgar þeim kylfingum á Íslandi
sem kjósa að skrá sig í golfklúbba.
Milli áranna 2021-2022 varð 5%
fjölgun og í dag eru skráðir um
23.500 iðkendur í golfi á Íslandi.
Þegar rýnt er nánar í tölur kemur
í ljós að fjölgunin er mest í yngstu
aldurshópunum upp að 19 ára
aldri og endurspeglar sú þróun þá
markvissu og öflugu vinnu innan
golfklúbbanna að fjölga ungu
fólki, tryggja endurnýjun iðkenda
og um leið að tryggja þátttak-
endur í keppnishaldi þeirra yngri
í golfíþróttinni. Maður var svolítið
spenntur að sjá iðkendatölurnar
eftir Covid af þeirri ástæðu að það
voru allir heima og ekki að fara í
golfferðir til útlanda. Íþróttin er
gríðarlega vinsæl og það eru fleiri
og fleiri sem vilja kynna sér hana,“
segir Hulda.
Erum með puttann á púlsinum
Almenningur hefur hópast á golf-
velli landsins og Hulda segist með-
vituð um að oft reynist vera erfitt
að fá hreinlega rástíma.
„Við erum alveg með puttann
á púlsinum að fylgjast með. Á
álagstímum er erfitt að komast að.
Eftirspurnin eftir því að komast
í golf er gríðarleg en golfvellirnir
hér á landi eru margir og ég veit til
þess að klúbbar fyrir utan höfuð-
borgarsvæðið, eins og á Reykja-
nesi, fyrir austan fjall og vestur
fyrir Hvalfjarðargöng eru enn þá
spenntir fyrir því að taka á móti
fleiri kylfingum.“
Það bárust heldur betur ánægju-
leg tíðindi á dögunum þegar Perla
Sól Sigurbrandsdóttir úr GR gerði
sér lítið fyrir og sigraði á Evrópu-
meistaramóti 16 ára og yngri,
European Young Masters, sem
fram fór í Finnlandi. Sigurinn var
sögulegur þar sem þetta er í fyrsta
sinn sem íslenskur kvenkylfingur
sigrar á þessu móti.
„Þetta var magnað hjá henni.
Hún er 15 ára gömul og á svo
sannarlega framtíðina fyrir sér.
Það er gaman að segja frá því að
völva Vikunnar spáði því að það
kæmi fram rísandi stórstjarna í
kvennagolfinu. Það eru margir
rosalega góðir hlutir að gerast í
afreksstarfinu. Til að mynda ná
ekki allir að taka þátt í Íslandsmót-
inu í ár og ekki síst í karlaflokki þar
sem þeir eru erlendis að keppa á
mótum.“
Hulda hefur setið í embætti
forseta Golfsambandsins frá því
í nóvember í fyrra en hún tók við
því af Hauki Erni Birgissyni og
varð um leið fyrsta konan til að
gegna forsetaembættinu.
„Þetta er búinn að vera mjög
ánægjulegur tími og maður fyllist
gríðarlegu stolti að sjá hversu vel
golfklúbbarnir halda utan um
starf golfhreyfingarinnar í heild
sinni á Íslandi. Það er sama hvert
maður kemur á landsbyggðina.
Alls staðar er unnið mjög metn-
aðarfullt starf þar sem fólk brennir
af áhuga að bjóða fleiri að spila
og vera með í sportinu. Það hefur
gefið mér mikið að fá að kynnast
fólkinu aðeins betur sem starfar
við golf á Íslandi í dag og auðvitað
öllum kylfingunum.“
En hvernig stendur forsetinn sig
sjálfur með kylfurnar?
„Ég náði á dögunum mínum
besta hring og það í sjálfu meistara-
móti. Mikið spil er að skila sér hjá
forsetanum. Forgjöfin stendur í 12,3
núna. Maður er að para fleiri holur
og einstaka fuglar detta inn.“ n
Íþróttin er gríðarlega vinsæl
Hulda Bjarnadóttir er forseti Golfsambands Íslands. MYND/AÐSEND
4 kynningarblað A L LT 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR