Fréttablaðið - 06.08.2022, Síða 27
Vilt þú bætast í hóp
leiðtoga borgarinnar?
Upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Lóa Birna Birgisdóttir sviðsstjóri
mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar (loa.birna.birgisdottir@reykjavik.is).
Umsóknarfrestur er til og með 25. ágúst 2022.
Umsjón með ráðningu hefur ráðningastofan Intellecta. Umsókn óskast útfyllt á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf. Skipuð verður 3ja manna hæfnisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum í samvinnu við Intellecta. Öllum umsóknum verður svarað
að ráðningu lokinni. Sviðsstjórar heyra beint undir borgarstjóra og falla launakjör þeirra undir kjaraákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Um störf
sviðsstjóra gilda reglur um réttindi og skyldur stjórnenda sem heyra undir borgarstjóra Reykjavíkurborgar. Ráðið er af borgarráði í starf sviðsstjóra til
fimm ára. Ítarlegri upplýsingar um störfin og hæfniskröfur má finna á www.intellecta.is.
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs. Menningar-, íþrótta- og
tómstundasvið er nýtt sameiginlegt svið innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar sem er í undirbúningi en borgarráð hefur samþykkt
að sameina menningar- og ferðamálasvið og íþrótta- og tómstundasvið í eitt svið. Hið nýja svið mun starfa með menningar-,
íþrótta- og tómstundaráði.
Skipulag sviðsins er í mótun og mun nýr sviðsstjóri koma að undirbúningi við skipulag þess. Fyrirhugað er að nýtt sameiginlegt
svið beri ábyrgð á skipulagi, rekstri og þjónustu menningarstofnana, íþróttamannvirkja, hátíða og margvíslegum stuðningi og
samstarfi við menningar-, íþrótta- og tómstundalífið.
Reykjavíkurborg auglýsir laust til umsóknar starf sviðsstjóra velferðarsviðs. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar fer með ábyrgð á
velferðarþjónustu borgarinnar, þ.m.t. almennri félagsþjónustu og sértækri þjónustu við fatlað fólk, aldraða og börn og fjölskyldur
þeirra. Velferðarsvið starfar með velferðarráði og barnaverndarnefnd.
Ein af megináherslum sviðsins næstu fimm árin er innleiðing nýrrar velferðarstefnu Reykjavíkurborgar en einkunnarorð hennar eru
Reykjavík – fyrir okkur öll. Stafræn umbreyting á þjónustu, innleiðing laga um farsæld barna og aukið samráð við hagsmunaaðila
eru á meðal fjölmargra verkefna í aðgerðaráætlun velferðarstefnunnar.
Sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs
Sviðsstjóri velferðarsviðs
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára