Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 29
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til 21. ágúst 2022.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Forstjóri
Festi auglýsir starf forstjóra laust til umsóknar. Festi er eitt stærsta
fyrirtæki landsins og leitar að öflugri manneskju sem býr yfir framsýni
og krafti til að leiða félagið áfram inn í framtíðina.
Frá samruna Festi og N1 árið 2018 hefur tekist að byggja upp leiðandi
fyrirtæki í verslun og þjónustu á landsvísu. Þessi árangur hefur skilað
hluthöfum góðri og stöðugri ávöxtun af fjárfestingu í félaginu sem er
að stórum hluta í eigu lífeyrissjóða.
Forstjóri stýrir daglegum rekstri félagsins í samvinnu við það öfluga
starfsfólk sem hjá því starfar. Forstjóri mótar stefnu í samstarfi við
stjórn og gegnir lykilhlutverki í aðlögun félagsins að síbreytilegu
rekstrarumhverfi. Spennandi tækifæri eru framundan og má þar nefna
umhverfismál, orkuskipti, stafræna umbreytingu, þróun fasteignasafns
og lóða og vaxandi þátttöku félagsins í daglegu lífi hins mikla fjölda
viðskiptavina þess.
Rétta manneskjan í starf forstjóra Festi þarf að búa yfir
• Víðtækri reynslu af stjórnun og rekstri
• Stefnumótandi hugsun
• Drifkrafti, metnaði og getu til að byggja upp liðsheild
• Sterkri samfélagsvitund
• Brennandi áhuga á umhverfinu, viðskiptum og íslensku samfélagi
• Lipurð og færni í mannlegum samskiptum
Festi hf. er í dag eignarhaldsfélag fimm rekstrarfélaga
og snýr starfsemi félagsins að fjárfestingum og
stoðþjónustu við Bakkann vöruhótel, ELKO, Festi
fasteignir, Krónuna og N1. Hlutabréf Festi hf.
eru skráð í Kauphöll Íslands. Starfsfólk Festi og
rekstrarfélaga eru samtals 2.000 á starfsstöðvum um
allt land. Velta félagsins árið 2021 var 101 milljarður.
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
2019 - 2022