Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 31
Festa er metnaðarfullur og skemmtilegur
vinnustaður þar sem hægt er að hafa áhrif
og leiða verkefni með sýnilegum árangri.
Festa eru frjáls félagasamtök sem eru ekki
rekin í hagnaðarskyni. Drifkraftur Festu er
að íslenskt samfélag og atvinnulíf verði
leiðandi á sviði sjálfbærni. Aðild eiga yfir 170
fyrirtæki, stofnanir og sveitafélög. Samfélag
Festu er einstakt netverk leiðandi aðila á sviði
sjálfbærs reksturs og nýsköpunar. Okkar starf
er tilgangsdrifið, við eigum í uppbyggilegu
samstarfi og leggjum áherslu á gagnkvæman
stuðning ólíkra aðila í átt að settu marki.
www.samfelagsabyrgd.is.
Viltu taka þátt í 6. iðnbyltingunni - sjálfbærnibyltingunni?
Festa – miðstöð um sjálfbærni leitar að skapandi og drífandi samfélagsmiðla meistara og
verkefnastjóra í teymið hjá sér. Við leitum að manneskju með brennandi áhuga á fræðslu,
miðlun og sjálfbærni til að stýra samfélagsmiðlum Festu, ritstýra Fréttablaði Festu, uppfæra
heimasíðuna okkar og verkefnastýra afmörkuðum hreyfiaflsverkefnum.
Helstu verkefni:
• Dagleg umsjón með samfélagsmiðlum og heimasíðu Festu.
• Setja inn og framleiða efni fyrir samfélagsmiðla, s.s. textavinna og myndefni.
• Mótun markaðs- og fræðsluefnis.
• Umsjón og ritstjórn Fréttabréfs og ársskýrslu Festu.
• Verkefnastjórn.
• Samskipti við samstarfsaðila og félaga í Festu.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi.
• Þekking á helstu samfélagsmiðlum og hugbúnaði eins og Facebook Business Manager,
Canva, Crowdsignal og Mailchimp, eða sambærilegum.
• Hæfni til að greina gögn.
• Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til hnitmiðaðra textasmíða.
• Gott auga fyrir hrífandi og grípandi myndefni.
• Frumkvæði, fróðleiksfýsn, sjálfstæð vinnubrögð, skapandi og gagnrýnin hugsun.
Umsjón með ráðningarferlinu hafa
Garðar Óli Ágústsson (gardar@vinnvinn.is)
og Jensína Kristín Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Samfélagsmiðla- og
verkefnastjóri
Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og hnitmiðað
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Hildur J. Ragnars
dóttir (hildur@vinnvinn.is) og Garðar Ó.
Ágústsson (gardar@vinnvinn.is) hjá Vinnvinn.
Loftslagsráð er fulltrúaráð sem í eiga sæti
fulltrúar sveitarfélaga, launþega, neytenda,
viðskipta- og atvinnulífs, bænda, háskóla-
samfélagsins, umhverfisverndar samtaka og
ungs fólks. Formaður og varaformaður eru
skipaðir af ráðherra án tilnefningar.
Ráðið fer ekki með stjórnvaldsheimildir en
sækir umboð sitt til laga um loftslagsmál og
er ætlað að vera sjálfstætt í störfum sínum
og veita stjórnvöldum aðhald með faglegri
ráðgjöf. Það sinnir hlutverki sínu með því að
rýna áætlanir stjórnvalda, stuðla að upplýstri
umræðu, standa fyrir miðlun upplýsinga og
viðburðum um loftslagstengd málefni.
Loftslagsráð leitar að framkvæmdastjóra til að reka skrifstofu og sinna fjölbreyttum
verkefnum á sviði ráðsins. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga og metnað fyrir
loftslagsmálum, býr yfir góðri samskiptahæfni, reynslu af málefnavinnu og innsýn í stefnur og
strauma í íslensku samfélagi, atvinnulífi og stjórnsýslu.
Starfssvið:
• Yfirumsjón með þróun og rekstri skrifstofu Loftslagsráðs þ.m.t. fjárhags- og
starfsáætlanagerð, ábyrgð á bókhaldi og ráðstöfun fjármuna.
• Umsjón með framvindu verkefna ráðsins og starfsfólki og aðkeyptri sérfræðiþjónustu.
• Þjónusta sem ritari Loftslagsráðs sem felur í sér skipulag og þjónustu við fundi ráðsins,
undirbúning fundagagna og eftirfylgni.
• Fagleg greiningarvinna.
• Samstarf við hagaðila á sviði loftslagsmála, stjórnarráðið, önnur loftslagsráð og aðra
erlenda samstarfsaðila.
• Önnur verkefni sem formaður og varaformaður fela framkvæmdastjóra.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Meistaragráða sem nýtist í starfi.
• Þekking og reynsla á öllum þremur víddum sjálfbærni.
• Reynsla af vef- og samfélagsmiðlun og samskiptum við fjölmiðla.
• Reynsla af málefnavinnu og innsýn í stefnur og strauma í íslensku samfélagi,
atvinnulífi og stjórnsýslu.
• Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfileikar.
• Frumkvæði, drifkraftur og metnaður.
• Ögun í vinnubrögðum.
• Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku og ensku.
• Grunnþekking á áætlanagerð er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Framkvæmdastjóri