Fréttablaðið - 06.08.2022, Page 43
Isavia leitar að reyndum verkefnastjóra sem er sjálfstæður í
vinnubrögðum og hefur áhuga á að starfa í spennandi og líflegu umhverfi.
Viðkomandi mun starfa í öflugu fagteymi sem sér um rekstur og viðhald
bygginga og brauta á Keflavíkurflugvelli og mun vinna í miklu samstarfi
við aðra verkefnastjóra deildarinnar. Verkefnastjóri mun sinna rekstri
og viðhaldi kerfa eins og loftræsikerfa, kælikerfa, ofanvatnskerfa,
eldsneytiskerfa o.fl.
Þá hefur viðkomandi verkstjórn með tilteknum stærri viðhaldsverkefnum
og fjárfestingaverkefnum deildarinnar sem felur í sér mikil samskipti við
verktaka og hönnuði.
Helstu verkefni:
• Umsjón með viðhaldi og rekstri loftræsikerfa, kælikerfa,
ofanvatnskerfa, eldsneytiskerfa o.fl.
• Gerð verk-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana
• Vinna við útboðslýsingar og öflun verðtilboða
• Samskipti við verktaka og hönnuði og umsjón og eftirlit með
verkum þeirra
• Úttektir á verkefnum og verkum
• Skýrslugerð, gagnasöfnun og úrvinnsla gagna
• Vinna með verkbeiðnakerfi, umsjónarkerfi fasteigna
og skjalastjórnunarkerfi
• Umsjón með innkaupum vegna verkefna, kostnaðareftirlit og
yfirferð reikninga
• Þátttaka í innra starfi deildarinnar og umbótaverkefnum
• Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
• Vélfræðingur, véliðnfræðingur, véltæknifræðingur, vélaverkfræðingur,
byggingartæknifræðingur eða sambærileg menntun
• Fag- og iðnmenntun kostur og reynsla af viðhaldsverkefnum,
rekstri og umsjón kerfa er er mjög æskileg
• Lágmark tveggja ára reynsla af verkefnastjórn og reynsla af
ástandsgreiningu, gerð verk- og kostnaðaráætlana æskileg
• Æskilegt er að starfsmaður hafi góða fagþekkingu og innsýn í rekstur
og viðhalda á kerfum eins og hreinlætis- og hitakerfa, loftræsikerfa,
vatnsúða- og snjóbræðslukerfa, vatnsveitu, fráveitu- og
ofanvatnslögnum, kælikerfum og eldneytiskerfum
• Góð samskiptahæfni og þjónustulund
• Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og mæltu máli ásamt reynslu
af framsetningu gagna í kynningum
Isavia óskar eftir að ráða verkefnastjóra í bygginga- og samgöngudeild.
Leitað er að einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum og hefur
góða fagþekkingu á sviði bygginga og viðhalds. Verkefnastjóri ber ábyrgð
á frágangi innan- og utanhúss á Keflavíkurflugvelli og hefur umsjón
með tilteknum verkefnum í rekstri og viðhaldi á húsnæði flugvallarins.
Viðkomandi vinnur náið með öðrum verkefnastjórum deildarinnar sem
hver ber ábyrgð á sínu fagsviði.
Helstu verkefni:
• Verkefnastjórn á fagsviði Bygginga og viðhalds
• Gerð ástandsmats á byggingarhlutum og mannvirkjum
• Fagleg ráðgjöf með viðhaldsverkefnum og verkefnum viðhaldsflokks
• Gerð verk-, kostnaðar- og framkvæmdaáætlana
• Samskipti við verktaka, aðrar deildir og fagsvið
• Umsjón með innkaupum vegna verkefna, kostnaðareftirlit og
yfirferð reikninga
• Vinna með útboðslýsingar og öflun verðtilboða
Menntunar- og hæfniskröfur
• Byggingafræði, byggingatækni-, eða verkfræðimenntun
• Fag- og iðnaðarmenntun kostur
• Reynsla af verkefnastjórn, ástandsgreiningu,
gerð verk- og kostnaðaráætlana
• Góð fagþekking á sviði bygginga og viðhalds
• Mikið frumkvæði og góð samskiptahæfni
• Góð tölvuþekking
• Góð þekking á helstu teikniforritum kostur
Lagnir og kerfi
Öflugir verkefnastjórar óskast
Reglulegt viðhald
og framkvæmdir
Hlutverk deildar bygginga og brauta er að tryggja að rekstur og viðhald húsnæðis sé skilvirkt með hagkvæmni að leiðarljósi
og í samræmi við þarfir viðskiptavina og notenda sem fara um Flugstöðina og Keflavíkurflugvöll. Byggingar á ábyrgðarsviði
deildarinnar telja tæplega 140.000 fermetra og er flugstöðin stærsta byggingin (70.000 m2) og er nú þegar hafin stækkun á
henni um 20.000 fermetra.
Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum.
Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu.
Saman náum við árangri.
Við bjóðum upp á hollan og góðan mat í mötuneytum okkar og allt starfsfólk hefur aðgang að heilsu- og
líkamsræktarstöðvum sér að kostnaðarlausu.
Frekari upplýsingar um störfin veitir Ágúst Kristinn Björnsson
deildarstjóri Bygginga og brauta, agust.bjornsson@isavia.is.
Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli
Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst
Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi
um hæfni viðkomandi í starfið.
Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.