Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 56
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Þótt komið sé fram yfir
verslunarmannahelgi er
sumarið alls ekki búið og
alltaf tími til að njóta, hvort
sem er heima eða í sumar-
bústaðnum. Við fengum
Sindra Frey Kristinsson á
Aurora veitingastaðnum á
Icelandair hótel á Akureyri
til að töfra fram einn af
sínum uppáhalds grillréttum
fyrir helgina.
Sindri Freyr er uppalinn á Ólafs-
firði og hefur alltaf haft mikinn
áhuga á mat og matreiðslugerð.
„Móðir mín, Ágústa Kristjáns-
dóttir, einn besti heimiliskokkur
sem ég þekki, ýtti mikið undir
þennan áhuga minn og stóð ég oft
uppi á kolli og aðstoðaði hana við
eldamennsku heimilisins sem lítill
strákur og lærði mikið af henni.
Þegar ég var ellefu ára fluttum
við til Akureyrar, þar kláraði ég
Lundarskóla en leið mín lá síðan í
Verkmenntaskólann í grunnnám
fyrir kokkinn.
Eftir grunnnámið vann ég hluta-
vinnu á Strikinu ásamt því að klára
stúdentspróf frá Verkmenntaskól-
anum á Akureyri á viðskipta- og
hagfræðibraut. Ég komst svo á
námssamning í matreiðslu hjá
Strikinu, vann þar undir Garðari
Kára og lærði mikið þar. Útskrifað-
ist svo sem kokkur í desember
2016. Þaðan fór ég til London og
vann í eitt ár á Texture sem var
á þeim tíma einnar Michelin
stjörnu-staður og lærði helling af
Agnari Sverrissyni sem var eigandi
staðarins. Í byrjun árs 2018 fór ég
að vinna hjá Bláa Lóninu á Moss
restaurant og var þar næstu fjögur
ár og vann mig upp sem aðstoðar-
yfirmatreiðslumann þar. Í maí á
þessu ári bauðst mér að flytja aftur
norður og taka við sem yfirmat-
reiðslumaður hér á Aurora, sem ég
þáði, og er því kominn aftur norður
í heimahagana,“ segir Sindri sem
nýtur sín til fulls í matargerðinni
fyrir norðan nálægt heimahög-
unum.
Árstíðabundnir matseðlar
Þegar kemur að því að velja hráefni
og áherslur í matargerðinni er
Sindri með puttann á púlsinum.
„Áherslan í matargerð liggur
í að vinna með árstíðabundinn
matseðil. Við tökum ekki sérstaka
matreiðslustefnu, eins og ítalskt
eða nýnorrænt, heldur vinnum
við með matseðlana árstíða-
bundið og hvaða hráefni er best
hverju sinni. Sem sagt léttan og
ferskan mat á sumrin þar sem
við notum ekki mikið af smjöri
Ómótstæðilegur grillaður lax með mangósalsa
Sindri Freyr
velur ferskt og
léttara hráefni
á sumrin og
nýtur þess að
grilla sjávarfang
með léttu og
fersku meðlæti
sem bragð er af.
MYND/AÐSEND
Grillaði laxinn lítur einstaklega vel út með mangósalsa.
og rjóma í matargerðina. Við
munum síðan með haustinu færa
okkur í hápunktinn í árstíðinni
sem liggur í berjum og öllu því
sem íslensk náttúra hefur upp á
að bjóða. Meðal annars munum
við bjóða upp á villibráðarseðil
í október og jólaseðil um miðjan
nóvember.“
Metnaðurinn í matargerðinni
er mikill og Sindri horfir fram í
tímann þegar kemur að uppsetn-
ingu matseðilsins.
„Í janúar 2023 munum við koma
með vetrarseðil sem verður tölu-
vert þyngri. Þar ætlum við okkur
að vinna meira með smjör, rjóma
og langtímaeldun sem vetrar-
stemningin hefur upp á að bjóða.
Með páskunum munum við fara
aftur yfir í létta máltíð og þegar
það líður á sumarið færum við
okkur í sumarlegri seðil.“
Allir matseðlarnir eru þróaðir af
Sindra og eru með hans fingrafari.
„Þetta eru matseðlar sem hafa
þróast í hausnum á mér í gegnum
ferilinn og ég fæ tækifæri til að
láta ljós mitt skína í gegnum
matinn.“
Nýtur sín í matargerðinni
„Það sem mér finnst skemmtilegast
við þetta fag er hversu fjölbreytt
það er. Enginn dagur er leiðinlegur
því maður er mjög sjaldan að gera
sömu hlutina aftur og aftur.
Uppáhaldshráefnið mitt í
augnablikinu núna eru tómatar
yfir sumartímann, þar sem þeir
eru bragðbestir, og hægt að nota
þá á ótrúlega fjölbreyttan hátt.
Svo finnst mér ferskur fiskur alltaf
góður og eitthvað sem er á heims-
mælikvarða hér á Íslandi.
Við höfum reyndar oft verið
heppnari með veðrið hér fyrir
norðan á sumrin heldur en í ár,“
segir Sindri með bros á vör og er
spenntur fyrir að töfra fram kræs-
ingar fyrir matargesti helgarinnar.
„Við teymið á Aurora rest-
aurant erum ótrúlega spennt fyrir
komandi tíma.“
Sindri deilir með lesendum
einum af sínum uppáhalds grill-
rétti sem steinliggur. Hér er á
ferðinni sumarlegur og ómótstæði-
lega ljúffengur lax með grilluðu
guacamole, mangósalsa og jógúrt-
sósu með dilli og gúrku sem allir
ættu að ráða við.
Grillaður lax með
guacamole, mangósalsa og
jógúrtsósu
Fyrir fjóra
Mangósalsa
2 mangó
2 rauðir chili
2 meðalstórir skalotlaukar
50 g ólífuolía
Börkur af 1 sítrónu
Börkur af 1 appelsínu
10 g ferskt kóríander (má sleppa)
Safi úr 1 límónu
Salt eftir smekk
Mangóið er skorið með steininum
og síðan skorið í litla bita. Chili er
skorið til helminga og fræhreinsað,
saxað fínt og bætt saman við
mangóið. Skalotlaukurinn er skor-
inn fínt niður og blandað saman
við mangóið og chili. Sítrónan og
appelsínan eru svo raspaðar saman
við mangóblönduna og ólífuolíu
bætt við. Kóríander er fínt saxað og
bætt saman við og smakkað til með
salti. Öllu er blandað vel saman í
restina og geymt í kæli.
Grillað avókadóguacamole
3 þroskuð avókadó
6 kirsuberjatómatar
1 skalotlaukur
Salt eftir smekk
Ólífuolía
Avókadó er opnað og steinninn
tekinn úr. Olían er borin á avó-
kadóið og heilu kirsuberjatómat-
ana og svo skellt á heitt grillið,
grillað á sitt hvorri hliðinni í 2 mín-
útur. Svo er þetta sett saman í skál
og maukað með gaffli þar til gróft
mauk hefur myndast. Laukurinn er
fínsaxaður og blandað saman við,
þetta er svo smakkað til með salti
og jafnvel smá ólífuolíu.
Jógúrtsósa
150 g grísk jógúrt
½ gúrka
10 g ferskt dill
2 msk. mangó chutney
Salt eftir smekk
Gúrkan er flysjuð og skorin endi-
langt í fjóra bita og kjarninn
skorinn úr henni. Gúrkan er svo
skorin í litla bita og blandað saman
við jógúrtina ásamt mangó chut-
neyinu. Dillið er fínt saxað og bætt
saman við. Smakkað til með salti.
Njótið vel. n
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
astaxanthin
Viltu einstaka vörn gegn geislum
sólar og bætt rakastig húðarinnar?
Öflug virkni fyrir glóandi húð
6 kynningarblað A L LT 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR