Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 70
Í ár var leikið í þágu
stuðningsfélagsins Ein-
stakra barna.
Metfjöldi keppir í
kvennaflokki á mótinu
í Vestmannaeyjum.
Ólafur Pálsson olafur@vf.is - Páll Ketilsson pket@vf.is
Golffréttir og umfjöllun alla daga
Heimamaðurinn Bjarni Þór Lúð-
víksson, 18 ára klúbbmeistari Nes-
klúbbsins, stóð uppi sem sigur-
vegari á hinu árlega góðgerðamóti
Nesklúbbsins, Einvíginu á Nesinu,
sem fram fór á frídegi verslunar-
manna 1. ágúst. Gunnlaugur Árni
Sveinsson, GKG, og Bjarni Þór voru
tveir eftir í lokin og hafði Bjarni
betur eftir spennandi keppni á loka-
holunni.
Venju samkvæmt var nokkrum af
bestu kylfingum landsins boðið til
leiks og í ár var leikið í þágu stuðn-
ingsfélagsins Einstakra barna. Ein-
stök börn er stuðningsfélag barna og
ungmenna með sjaldgæfa sjúkdóma
eða sjaldgæf heilkenni. Félagið var
stofnað 13. mars 1997 af foreldrum
nokkurra barna en nú hefur félagið
stækkað ört og eru hátt í 500 fjöl-
skyldur í félaginu. Þorsteinn Guð-
jónsson, formaður Nesklúbbsins,
og Magnús Örn Guðmundsson frá
STEFNI, af hentu Guðrúnu Helgu
Bjarni Þór vann einvígið á Nesinu
Arnar Daði Svavarsson og Gunn-
laugur Árni Sveinsson, báðir úr
GKG, gerðu sér lítið fyrir og sigr-
uðu í sínum aldursf lokki á sterku
alþjóðlegu móti sem fram fór á
Lough Erne golfsvæðinu á Norður-
Írlandi en hönnuður þess er Sir
Nick Faldo.
Gunnlaugur Árni, sem er 17 ára,
sigraði í f lokki pilta 19 ára og yngri
en hann lék hringina þrjá á 5 högg-
um undir pari vallar og lék frábært
golf, 71-68-71. Gunnlaugur Árni
sigraði með 5 högga mun og var sá
eini sem lék undir pari.
Arnar Daði, sem er 13 ára, sigraði
í drengjaf lokki 15 ára og yngri.
Hann lék hringina þrjá á +8 eða 223
höggum. Arnar Daði sigraði með 6
högga mun. Aðeins þrír kylfingar
af 42 léku alla hringina undir 80
höggum.
Keppt var í ýmsum aldursflokkum
á þessu móti sem er boðsmót þar
sem landsmeisturum víðs vegar að
úr Evrópu er boðið að taka þátt. n
Afar flottur árangur hjá Gunnlaugi
Árna og Arnari Daða í Írlandi
Stærsta golfmót ársins,
Íslandsmótið í höggleik, hófst
á fimmtudag og stendur fram
á sunnudag í Vestmanna-
eyjum. Gríðarmikill undir-
búningur hefur staðið yfir
en völlurinn skartar sínu
fegursta og er tilbúinn að
taka á móti bestu kylfingum
landsins.
Íslandsmótið var í fyrsta sinn haldið
í Eyjum árið 1959 en þá var leikið á
9 holum sem voru útbúnar fyrir
mótið en heimamenn urðu að sjá
á eftir svæðinu að mótinu loknu.
Mótið fór síðast fram í Eyjum 2018
en þá sigruðu Guðrún Brá Björg-
vinsdóttir og Axel Bóasson, bæði
úr Golfklúbbnum Keili. Þar á undan
var mótið 2008 en þá vann Helena
Árnadóttir úr GA og Kristján Þór
Einarsson úr Mosfellsbæ. Árið 2003
vann Ragnhildur Sigurðardóttir,
GR, og Birgir Leifur Haf þórsson
en hann vann einnig 1996. Það var
hans fyrsti titill en hann hefur oft-
ast allra orðið Íslandsmeistari karla,
eða sjö sinnum. Karen Sævarsdóttir
úr GS vann þetta ár kvennaflokkinn
í Eyjum en það var hennar áttundi
titill í röð.
Núverandi Íslandsmeistarar eru
Aron Snær Júlíusson og Hulda Clara
Gestsdóttir, bæði úr GKG. Þau eru
bæði til leiks og munu fá harða
keppni. Metfjöldi er í kvennaflokki
á Íslandsmótinu, eða 44 keppendur
alls. Hlutfall kvenna hefur aldrei
verið hærra, eða 29%.
Frá árinu 2001 hefur meðalfjöldi
keppenda í kvennaflokki verið 26,
eða 18% af heildarfjölda keppenda.
Keppendafjöldinn í kvennaflokki í
ár er 54% yfir meðaltali síðustu ára.
Alls eru fjórir fyrrum Íslandsmeist-
arar á meðal keppenda og þar af
tveir atvinnukylfingar. Mótið í ár er
því eitt það allra sterkasta þar sem
flestir af forgjafarlægstu kylfingum
landsins í kvennaflokki eru á meðal
keppenda. Það er að miklu að keppa
fyrir atvinnukylfingana þar sem að
verðlaunaféð fyrir Íslandsmeistara-
titil hjá atvinnukylfingum í karla-
og kvennaflokki er 500 þúsund kr.
Verðlaunafé fyrir fyrsta sætið til
áhugakylfings er 90 þús. krónur.
kylfingur.is er í Eyjum og fjallar
ítarlega um mótið í máli og mynd-
um. n
Bestu kylfingarnir keppa
um þann stóra í Eyjum
„Þetta var bara fullkomið högg,“
sagði Arnar Snær Hákonarson,
Golfklúbbi Reykjavíkur, en hann
fór holu í höggi á 7. braut á fyrsta
keppnisdegi á Íslandsmótinu í golfi
í Vestmannaeyjum.
„Þetta voru 176 metrar með sex
járni. Strákarnir sögðu að boltinn
hafi endað 1-2 metra frá holu og
svo beint ofan í,“ sagði Arnar Snær,
sem lék hringinn á einum yfir pari.
Hann fékk fugl næstu tvær holur á
eftir þeirri sjöundu og var kominn
í forystu með öðrum í mótinu eftir
9 holur en náði ekki að fylgja því
eftir á seinni 9 holunum sem hann
lék á 4 yfir pari. Engu að síður góður
hringur. Með honum í ráshópi var
meðal annars Hlynur Geir Hjartar-
son sem fór holu í höggi á mánu-
daginn á sama velli en á 17. holu. n
Fullkomið högg hjá Arnari Snæ
Self yssing ur inn Hly nur Geir
Hjartarson er þekktur afrekskylf-
ingur og hefur leikið golf í tæp 30
ár. Hann náði loks draumahögginu
á æfingahring fyrir Íslandsmótið í
golfi í Eyjum. Hann fór holu í höggi
á hinni mögnuðu 17. braut.
Hlynur og tvær dætur hans, Heið-
rún Anna og Katrín Embla, keppa á
Íslandsmótinu.
Svona lýsti Hlynur drauma-
högginu á Facebook: „17. hola Vest-
mannaeyjum. 132 metrar, 9 járn.
Logn og sól. Eftir 28 ár í golfi og
mjög marga golfhringi kom loks-
ins að þessu. Þetta var geggjað og
ólýsanlega gaman og að gera þetta
með Gunnhildi konu minni var stór
plús. Kalli Haralds, framkvæmda-
stjóri GV, sagði að ég væri fjórði sem
nær að fara holu í höggi á 17. holu frá
upphafi.“ n
Loksins draumahögg hjá Hlyni Geir
Sigurvegarar
og mótshald-
arar í Einvíginu á
Nesinu.
Úrslit í Einvíginu 2022
Sæti
1. Bjarni Þór Lúðvíksson
2. Gunnlaugur Árni Sveinsson
3. Aron Snær Júlíusson
4. Perla Sól Sigurbrandsdóttir
5. Ólafía Þórunn Kristins-
dóttir
6. Ragnhildur Kristinsdóttir
7. Hlynur Bergsson
8. Birgir Leifur Hafþórsson
9. Guðrún Brá Björgvinsdóttir
10. Magnús Lárusson
Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er frábær og í afar glæsilegu umhverfi.Hlynur Geir glaður með dauma-
höggið á 17. braut.
Arnar Daði og Gunnlaugur Árni í góðum gír.
Arnar Snær brosir breitt með bolta
úr holu á 7. braut.
Harðardóttur, framkvæmdastjóra
Einstakra barna, ávísun að upphæð
kr. 1.000.000 í mótslok.
Fyrirkomulagið í Einvíginu var
þannig að fyrstu tvær holurnar voru
leiknar með því sniði að sá fellur úr
leik á fyrstu braut sem er fjærst holu
eftir þrjú högg og tvö högg á annarri
braut. Eftir það var farið í hið hefð-
bundna „shoot-out“ fyrir þá sem eru
með hæsta. n
34 Bílar 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐGOLF FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR