Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 72
Fólkið hér skilur ekki
hvaða þýðingu þetta
hefur, Íslendingar eru
þeir einu sem skilja
mig.
Írski auglýsingaljósmyndar-
inn Cat Gundry Beck er búsett
á Íslandi en stödd í heima-
landinu um þessar mundir.
Hún er miður sín yfir að vera
fjarri eldgosinu í Meradölum
og segir Íslendinga vera eina
fólkið sem skilur það.
ninarichter@frettabladid.is
Eldgosamyndir írska ljósmyndarans
Cat Gundry Beck síðan í fyrra röt-
uðu á forsíðu The New York Times,
The Guardian og CNN, ásamt fleiri
stórum miðlum. Myndirnar ger-
breyttu ferli ljósmyndarans, sem
sérhæfir sig öllu jöfnu í tísku og aug-
lýsingaljósmyndun og öfluðu henni
tækifæra hjá stórum útgáfum á borð
við breska Vogue.
„Þetta var glatað,“ segir hún og
hlær aðspurð hvernig tilfinningin
hafi verið þegar hún fékk fyrstu
fregnir af nýju gosi í Meradölum.
„Þetta hefur verið undirliggjandi
ótti hjá mér, að vera erlendis þegar
eldgos hefst.“
Cat, eins og hún er jafnan kölluð,
ræddi við Fréttablaðið í mars um
hvernig eldgosið í Geldingadölum
bylti ferlinum og gaf henni gjafir
sem héldu áfram að gefa.
„Ég veit ekki hvernig ég hefði
brugðist við ef ég hefði misst af
þessu í fyrra. En ég hef alltaf haft
þetta á bakvið eyrað þegar ég bóka
ferðir frá Íslandi.“
Oftast rólegur tími á Íslandi
Hún segist ekki hafa haft slíkar
áhyggjur þegar hún bókaði mán-
aðarlanga ferð til heimalandsins
Írlands yfir sumarið, en lítið hafi
bent til gosóróa þegar hún fór.
„Þetta er yfirleitt mjög rólegur tími
hjá mér á Íslandi af því að allir eru
í sumarfríi. Þetta fer svo allt aftur
í gang í september þegar tökurnar
fyrir jólavertíðina fara af stað.“
Cat segist hafa ætlað að nota fríið
í að byggja upp viðskiptasambönd
á Írlandi. Hún bókaði f lug heim til
Íslands þann 18. ágúst en taldi ólík-
legt að hún myndi nota það.
„Það kostaði aðeins 34 evrum
meira að bóka báðar leiðir svo að
ég sló bara til. Ég var orðin hand-
viss um að nota ekki f lugið en svo
breyttist bara allt.“
Fékk símtal um hánótt
Íslenskur vinur Cat er sonur tveggja
jarðfræðinga og starfar sem leið-
sögumaður. „Hann kenndi mér flest
allt sem ég veit um Ísland og er mjög
vel að sér um jarðfræði og sagnfræði.
Ég bað hann einhvern tímann um að
hringja í mig ef eitthvað gerðist, hve-
nær sem það væri.“
Vinurinn stóð við sitt og hringdi
í Cat um hánótt aðfaranótt 3. ágúst.
„Ég svaraði: Er eitthvað byrjað? En þá
var það bara eldur í mosa. Þá fór ég
bara aftur að sofa. Daginn eftir var ég
að borða hádegismat á skrifstofunni
hérna á Írlandi og þá fékk ég skilaboð
frá vini mínum sem sagði að eldgos
væri hafið. Það braut algjörlega í mér
hjartað.“
Cat segist hafa verið svo miður sín
að hún hafi þurft pásu frá samfélags-
miðlum. „Þetta var stærsta FÓMÓ
lífs míns. Ég var í spjallþræði með
stórum hópi ljósmyndara á Íslandi
og ég þurfti bara að logga mig út,
þau voru að skipuleggja ferð með
klukkustundar fyrirvara.“
Flugsætin orðin ofurdýr
Cat segist hafa getað bókað flug um
helgina en verðið sé komið upp úr
öllu valdi og sömuleiðis hafi hún
skuldbundið sig í verkefni á Írlandi
sem hún eigi erfitt með að aflýsa.
„Þetta er erfið staða og ég get ekki
bókað neitt fram í tímann þegar
þetta er svona. Ég get bara óskað
þess að það sé enn þá gos þegar ég
kem heim til Íslands.“
Cat segist hafa verið á stefnumóti
að kvöldi gosdags en hún hafi verið
gersamlega miður sín. „Hann var
samt mjög almennilegur þegar ég
sagði honum frá þessu,“ segir hún og
hlær. Hún segist upplifa aftengingu
við samlanda sína þegar komi að
gosinu. „Fólkið hér skilur ekki hvaða
þýðingu þetta hefur, Íslendingar eru
þeir einu sem skilja mig.“
Cat segist ætla að fá sér húðflúr
með eldfjallinu. „Það verður svona
táknrænt fyrir mig, en núna er ég
smávegis reið við eldfjallið. Mér líður
eins og unglingi hérna, eins og eng-
inn skilji mig,“ segir hún glettin. „En
Ísland minnir alltaf á sig og núna skil
ég enn betur hversu djúp Íslands-
tengingin mín er.“ n
Með brostið
hjarta vegna
eldsumbrota
Ferill Cat Gundry Beck gerbreyttist eftir gosið í Geldingadölum í fyrra og ljósmyndir hennar birtust á forsíðum stærstu fréttamiðla heims. MYND/KARIM ILYA
Cat þurfti að taka hlé frá samfélagsmiðlum í vikunni. MYND/CAT GUNDRY BECK
NETFLIX
Uncoupled
Aðalhlutverk: Neil Patrick
Harris, Tisha Campbell, Brooks
Ashmanakas, Emerson Brooks
ninarichter@frettabladid.is
Árið er 2000 og undirrituð, þá ungl-
ingur, trúir ekki sínum eigin augum
þegar Ríkissjónvarpið hefur sýn-
ingar á framhleypnum þáttum sem
eru fullir af útlitsáhyggjum, tísku og
klúrum kynlífssögum í stóra eplinu,
New York. Fullnægingar, kynsjúk-
dómar og typpastærðir eru ræddar
kinnroðalaust. Aðalpersónan Car-
rie er frekar óþolandi en aukaper-
sónur þeim mun dásamlegri.
Tuttugu og tveimur árum síðar
birtist Neil Patrick Harris okkur í
hlutverki fasteignasalans Michael í
þáttunum Uncoupled. Hann leikur
þar mann hvers tilfinningalíf hryn-
ur þegar kærasti hans til 17 ára fer
frá honum. Líkt og Carrie er Michael
frekar óþolandi og himnarnir forði
ykkur frá því að sitja við hliðina á
svona sjálfsupptekinni og sívælandi
manneskju í matarboði, jafnvel þó
að það sé á Manhattan í kringum
allt sem samfélagið kennir okkur að
þrá. En hliðarpersónur eru dásam-
legar, sögusviðið skemmtilegt og
framvindan kvik. Og enn ræðum
við kynsjúkdóma og typpastærðir,
en nú er sögumaður ríkur, vel
menntaður hommi og sögusviðið
hans nærsamfélag.
Vinir Michaels skapa kjölfestu og
styðja vel við söguna, ásamt því að
fá úr drepfyndnum línum að spila.
Þar er veðurfréttamaðurinn Billy,
sjálfsöruggur og sígraður og rúllu-
kragapeysutýpan Stanley sem er
einmana listaverkasali. Samstarfs-
kona og vinkona Michaels er Suz-
anne, á köflum svolítið klisjukennd
hliðarpersóna sem er þó auðvelt að
falla fyrir.
Þættirnir vinna vel með kyn-
slóðabilið og hvernig hlutir eins
og tækniframfarir eða þekking
á sögunni getur teygt þetta kyn-
slóðabil lengra en við kærum okkur
um. Sérstaklega er þetta persónum
mikilvægt þegar kemur að hinsegin
sögunni, sem er líka saga mannrétt-
indabaráttu og HIV faraldurs.
Þæt t ir nir er u langsamlega
skemmtilegustu miðlífskrísuþættir
sem birst hafa á streymisveitum í
langan tíma. Michael kemur úr ára-
tuga sambandi og lendir á markað-
inum eins og George in the Jungle
gerði forðum, og prófar Grindr í
fyrsta sinn. Ómögulegar aldurs- og
útlitskröfur eru augljósar en þætt-
irnir fara ekki í að gagnrýna það
heldur samþykkja það og sýna án
spurninga eða svara.
Líkt og í Beðmálum um aldamót-
in er aðalpersónan Michael að leita
að ástinni, eða einhverju sem líkist
henni, fer á stefnumót og hittir fal-
lega skapaða rekkjunauta og lendir
í vandræðum sem margir fullorðnir
geta tengt við. n
NIÐURSTAÐA: Þegar svona þættir
birtast verður maður næstum því
þakklátur fyrir leiðindaveður til
að fá hina fullkomnu afsökun fyrir
glápaþoni.
George in the Jungle á Grindr
Emerson Brooks, Neil Patrick Harris og Brooks Ashmanakas í Uncoupled.
MYND/SKJÁSKOT
36 Lífið 6. ágúst 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR