Fréttablaðið - 06.08.2022, Side 74
Belgíski gjörningalistamaður-
inn Floris Boccanegra segist
nú aðeins þurfa aðgang að
frystigeymslu til þess að láta
drauminn um að skila tonni
af frosnu jökulvatni upp á Ok
í september.
toti@frettabladid.is
„Undirbúningurinn fyrir gjörning-
inn gengur vel,“ segir belgíski lista-
maðurinn Floris Boccanegra sem
sér fram á að geta í næsta mánuði
látið tveggja ára draum sinn um
að skila tonni af frosnu jökulvatni
á topp fyrrverandi jökulsins Ok
rætast með táknrænum gjörningi.
„Núna þarf ég eiginlega bara að
fá aðgang að frysti yfir nótt til þess
að geta breytt bráðnuðu jökulvatni
aftur í ís. Ég hef þegar haft sam-
band við nokkra aðila á Íslandi en
ekki enn tekist að finna frysti og
er að vonast til þess að finna stóra
fiskvinnslu eða verslanakeðju í
Borgarnesi eða Reykjavík sem
gætu hjálpað mér. Vegna þess að
þar ættu að vera nógu stórar
frystigeymslur,“ segir
Floris, sem reiknar
með að þurfa einn
rúmmetra undir 30
korkkassa.
„Ég þarf frystinn ekki til
þess að geyma klakann heldur
bara búa hann til. Ég myndi
þá koma með vatnið snemma að
kvöldi og láta það frjósa yfir nótt-
ina á meðan ég er sofandi. Ég myndi
síðan sækja klakann næsta morgun
og ferja hann upp á Ok.“
Floris sagði fyrst frá hugmynd
sinni að gjörningnum um þver-
sagnarkennt samband ferðafólks
og fagurrar náttúru í Fréttablað-
inu snemmsumars 2020
og að hann hygðist,
i n n b l á s i n n
af grísku goðsögninni um Sísífús
skila íslenskri náttúru tonni af ís
upp á Ok.
Floris segist þurfa fjórar nætur
til þess að frysta þessa táknrænu
kolefnisjöfnun sína en hann ráð-
gerir að flytja ísinn upp á tind Oks
frá mánudeginum 5. september
til föstudagsins 9. september. „Ég
reikna með að þetta verði 40 ferðir
á toppinn,“ segir listamaðurinn
sem ætlar að bera 25 kíló af frosnu
jökulvatni upp á fjallið í hverri
ferð í sérstaklega einangruðum
bakpoka.
Hann biður þau sem mögulega
gætu hugsað sér að hjálpa honum
við frystinguna um að senda tölvu-
póst á boccanegrart@gmail.com. n
Floris þarf fjórar nætur í frysti
Floris hefur reiknað út að hann þurfi 30 kassa til þess að frysta skilagjaldið
sem hann ætlar að færa íslenskri náttúru upp á tind Oks. MYNDIR/FLORIS
Einn af
klakaköss-
unum 30.
Floris segist
reyna að vekja
sem flesta til
umhugsunar
með list sinni
sem hverfist
iðulega um
myrkari hliðar
tilverunnar; rán-
yrkju, hungurs-
neyð og hnatt-
ræna hlýnun.
MYND/AÐSEND
ninarichter@frettabladid.is
Bandaríski stórleikarinn Woody
Harrelson ritaði norður-írsku ung-
barni skemmtilegt ljóð á Twitter í
vikunni.
Aðdragandi málsins er mynd sem
móðir barnsins birti af dótturinni
ásamt mynd af leikaranum. Móð-
irin ritaði: Hvernig í ósköpunum
er dóttir mín alveg eins og Woody
Harrelson?“
Myndbirtingin vakti mikil við-
brögð og mörg þúsund manns lýstu
velþóknun sinni með því að
„læka“ hana. Að lokum rataði málið
til Harrelson sjálfs sem brást við
með því að rita lítið ljóð, sem hann
kallaði: Óðinn til Coru.
Á ensku er ljóðið svona: „You‘re
an adorable child, f lattered to be
compared, you have a wonderful
smile, I just wish I had your hair.“
Á íslensku er beinþýðingin á
þessa leið: „Þú ert yndislegt barn,
og ég er heiðraður af líkingunni, þú
hefur dásamlegt bros, en ég bara
vildi að ég hefði hárið þitt.“
Woody Harrelson er fæddur árið
1961. Hann er bæði leikari og leik-
skáld og hefur verið tilnefndur til
fjölda verðlauna á farsælum ferli.
Meðal hans þekktustu verka er The
People vs. Larry Flynt sem af laði
honum tilnefningar til Óskars-
verðlauna, The Messenger og Three
Billboards Outside Ebbing, Misso-
uri. n
Woody Harrelson orti tvífara ljóð
Woddy Harrelson brást fallega við
því að vera líkt við Coru litlu og orti
henni lítið fallegt ljóð á Twitter.
Cora hefur ærna ástæðu til að brosa
breitt enda skartar hún hári sem tví-
fari hennar, Woody Harrelson, þráir.
LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2022 LAUGARDAGUR
Öflugur fasteignaleitarvefur
með einföldu og notendavænu
viðmóti sem býður upp á ítarlegar
upplýsingar um fasteignir,
þróun verðlags og fróðleik um
fasteignamarkaðinn.
Ný og öflug
fasteignaleit
Finndu réttu eignina fyrir þig á frettabladid.is