Fréttablaðið - 06.08.2022, Blaðsíða 80
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Magrétar Erlu
Maack
n Bakþankar
Ég fæ alls konar hugmyndir en hef
því miður ekki tíma til að útfæra
þær allar. Ef einhvern vantar biss-
nesshugmynd þá eru hér nokkrar,
ég tek 10% af innkomu:
Ég hef verið gríðarlega dugleg að
fara í dýragarða í sumarfríinu. Ég
er kannski bara rosalega óheppin
en við höfum lent í því að slöngur,
froskar, gaupur og fleiri spenn-
andi dýr fela sig. Því datt mér í hug
dýragarður með eingöngu feludýr. Í
rauninni væru afar fá dýr í garð-
inum, jafnvel engin dýr ef alvöru
fúskari tekur þessa hugmynd, bara
starfsfólk sem segir: „Æj, já, þessi
eyðimerkurmús er næturdýr og
sefur á daginn. Já, þessi höggormur
er oftast undir steininum þarna aft-
ast.“ Búrin væru risastór og gestum
væri sagt að dýrin væru feimin.
Eitt myndi slá í gegn – ceviche-
staður með Subway-uppsetningu.
Já, lúðu? Kóríander? Chili? Gjös-
sovel. Ferskur fiskur, hröð þjónusta.
Viðskiptamódel ísbílsins er æði.
Við þurfum fleiri bílafyrirtæki.
Þynnkubíllinn væri bíll með tveim-
ur rúmum þar sem hægt væri að
fá saltlausn í æð. Húðflúrsbíll væri
mjög sniðugur, myndi slá í gegn
á útihátíðum og gæti líka komið
í steggjapartíið, stórafmælið og
auðvitað brúðkaupið. „Ef þið viljið
fá ykkur tattú með #MagnBet22 þá
er Tattúbíllinn hér fyrir utan.“ Gæti
líka verið smart í jarðarfarir.
Talandi um jarðarfarir: Útfarar-
þjónusta sem sérhæfir sig í partí-
jarðarförum. Ég held að eftir nokkur
ár verði mikill markaður fyrir öðru-
vísi jarðarfarir – sambland af minn-
ingarpartíi og erfidrykkju – ekki
eitthvað „fyrst erum við í þessu húsi
og allir eiga að vera stilltir og á eftir
er matur sem er búinn að standa og
bíða“. Skemmtiatriði, ræður, partí
þar sem við njótum augnabliksins.
Þá er ég búin að koma þessum
hugmyndum út í kosmósið og nú er
bara að bíða. n
Topp hugmyndir
úrvalið er hjá okkur
Allt fyrir skólann
Fögnum
fjölbreyti-
leikanum