Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 2

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 2
Geschäftsführer RAMIS GmbH In der Kirchtanne 27 – 64297 Darmstadt – Deutschland e-mail: omar@ramis.is – Tel.: +49(0)6151 6011809 Mobile: +49(0)160 7870499 und (+354)822 0623 Fax: (+354)533 3430 – www.norvik.is Bjarmi 2. tbl. 115. árgangur, október 2021. ISSN 1026-5244 Útgefandi: Salt ehf í samstarfi við Samband íslenskra kristniboðsfélaga Ritstjóri: Ragnar Gunnarsson Ritnefnd: Vigfús Ingvar Ingvarsson, Böðvar Björgvinsson og Helena Leifsdóttir Prófarkalestur: Þorgils Hlynur Þorbergsson og Vigfús Ingvar Ingvarsson Afgreiðsla: Háaleitisbraut 58-60, 108 Reykjavík, sími 533 4900 Kennitala Salts: 600678 0789, reikningsnúmer 0117 26 017476 IBAN: IS18 0117 2601 7476 6006 7807 89, SWIFT: NBIIISRE Vefslóðir: www.bjarmi.is, www.sik.is og www.saltforlag.is. Netpóstur: ragnar@sik.is Árgjald kr.4.950 (þrjú tölublöð). Rafræn áskrift kr. 2.950. Gjalddagi 1. júní. Verð í lausasölu kr. 1.750. Forsíðumynd: Hreinn Hákonarson Umbrot og hönnun: Samskipti ehf. Prentun: Litróf bjarmi.is Sófakær? Með tilkomu kórónuveirunnar, sam­ komutakmarkana og smitvarna á háu stigi breyttist margt, þar á meðal kirkjulegt starf, og skorður voru settar á líf okkar og samfélag manna á meðal. Þessi hrina tók um eitt og hálft ár og ekki er útséð um að öllu sé lokið. Þegar hætta er á ferðum geta yfirvöld sett margvíslegar hömlur á líf okkar sem minnir okkur á trúsystkini okkar víða úti í heimi sem búa við það að vera skilgreind sem hættuleg eða samfélagið og kirkjan sem þau tilheyra, sem aftur réttlæti þær hömlur sem settar eru á viðkomandi. Þetta er athyglisverður vinkill og alvarleg staðreynd en ekki aðalefni þessara orða. Ef við horfum okkur nær spyrjum við okkur eflaust: Hvað nú? Fer líf okkar að mörgu leyti í svipað horf eða hefur eitthvað breyst að ráði? Ná kirkjur og kristileg starfsemi að endurræsa sig svo að öflugt starf fari aftur að stað eða erum við orðin sófakærir áhorfendur margvíslegrar afþreyingar og fræðslu? Ætli tíminn leiði það ekki í ljós. Við eigum ekki að festast í hinu liðna en stórvirki Guðs í fortíðinni, bæði hjálpræðissögunni og eigin lífi, minna okkur á hver hann er og hvers hann er megnugur. Jafnframt minnir það okkur á að tilgangur lífsins er ekki afþreying og seta í sófa eða stól fyrir framan skjáinn. Ekkert slæmt er í sjálfu sér við þannig líf og sumum býðst lítið annað. Skjáir og netið bjóða til dæmis margvíslega fræðslu og uppbyggingu. En við getum orðið of sófakær og gleymt okkur þar, eins og reyndar í mörgu öðru sem fyllir huga og hjarta. Tilgangur lífsins er þó umfram allt annað að þekkja skapara okkar sem elskar okkur og þráir samfélag við okkur, að lifa með frelsara okkar sem kaus veg þjáningar og kross okkar vegna, er upprisinn og lifir, nálægur með opinn faðminn og að lifa lífinu í krafti andans þar sem við berum Jesú Kristi vitni og þjónum náunganum í kærleika. Boðskapurinn um Jesú og lífið með honum skiptir sköpum. Ekki aðeins fyrir okkur sjálf heldur og fyrir þau sem kringum okkur eru. Seta í sófa tímunum saman fyrir framan skjá getur dregið okkur frá öðru fólki, fjarlægt vitnisburðinn og svæft trú okkar. Líf margra er aumt því þeir þekkja ekki Jesú eða hafa ýtt honum til hliðar. Við þurfum ekki að endurheimta lífið eins og það var fyrir covid. En við þurfum að endurnýja eða endurheimta líf okkar með Jesú og sækja okkur þá hvatningu og styrk sem við þurfum eða leyfa Drottni að ýta við okkur, kveikja eldinn og gera okkur brennandi í andanum. Að vera brennandi þýðir m.a. að Drottinn fær að brenna burt það sem hindrar verk hans í lífi okkar. Eitt og annað hindrar aðgang andans að hjörtum okkar og í starfi því sem við stöndum fyrir í Guðs ríki. Mætti þessi vetur verða tími iðrunar og hreinsunar, endurnýjunar og blessunar. Tími þar sem Jesús fær að komast að með nýjum hætti og við vöxum og styrkjumst í honum. Komandi vetur verður aldrei eins og í fyrravetur, dagurinn í dag aldrei eins og gærdagurinn. En „með Jesú í bátnum getum ég brosað í stormi“ og við hvert með öðru. Munum það þegar við setjumst í sófann. Lífið er meira en sófinn, „lífið er mér Kristur.“ Ragnar Gunnarsson

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.