Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 40

Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 40
| bjarmi | október 202140 skoðuð sem vandamál en þekkt er frá meginlandinu. „Tvöföld klaustur“ voru ekki óalgeng þ.e. með bæði munkum og nunnum og þá ekki síður undir stjórn konu. Klaustrafólk bjó gjarnan í litlum tveggja manna kofum á svæði klaustursins en með sameiginlegan matsal. Munkar ferðuðust oft tveir saman og veittu þá hvor öðrum andlega fylgd og aðhald á vegi trúarinnar. Út frá andlegri fylgd (spiritual direction) meðal kelta (anamcara) þróuðust skriftirnar síðar á meginlandi Evrópu. Hér verður látið hjá líða að fjalla nánar um hinn merka þátt Íra í að endurkristna stór svæði á meginlandi Evrópu og að varðveita forna mennta­ og menningarhefð. Hvernig þeir gátu auðveldlega stofnað klaustur á meginlandinu og sinnt þar kirkjulegu starfi ber því vitni að þeir voru hluti af hinni almennu kirkju og boðuðu sama fagnaðarerindi og aðrir þrátt fyrir sín sérkenni. Það verður einnig látið ógert að fjalla um merkilega hefð pílagrímaferða, ekki síst sjóferða. Þar gætti áhrifa frá klaustrafólki fyrir botni Miðjarðarhafsins sem hélt út í eyðimörkina í trúarlegum tilgangi. Hliðstæðu slíkra „eyðimarka“ var leitað á afskekktum útskögum eða fjarlægum eyjum. SAMHENGI VIÐ UMHVERFI OG ELDRI HEFÐIR Helgi staða og ýmissa náttúrufyrirbæra og helgun rýma og svæða eru miðlæg í keltneskum hefðum. Þessu skyld er elskan að átthögunum og ættfólki. Jafnframt er virðingin fyrir náttúrunni sem sköpun Guðs áberandi þáttur keltneskrar hefðar. Áherslan á heilaga þrenningu féll vel að þessari hugsun. Sumt af þessu kann að hafa einhverjar tengingar við eldri trúarhefðir en um margt má finna hliðstæður víðar í kristninni. Fyrir tíma háskólaguðfræðinnar var ekki óalgengt að fjallað væri um að náttúran hefði sakramentislegt gildi. Upplýsingin leysti svo manninn undan ábyrgð gagnvart Guði hvað snerti umgengni við náttúruna. Þekkt er hve friðsamlega kristni tók við af gömlum keltneskum trúarbrögðum. Sumir helgistaðir, svo sem Tara og Armagh, bjuggu að fornri helgi sem þá var túlkuð að einhverju leyti á nýjan hátt. Árnar á Írlandi voru forðum guðdómar og fornir helgir brunnar héldu í einhverjum tilfellum helgi í kristni með nýrri tileinkun eða túlkun. Í þessu samhengi verður hugsað til Guðmundar biskups Arasonar og atorku hans við að helga vatnsból vítt og breitt um Ísland samkvæmt því sem sögur og örnefni vitna um. Því hefur verið haldið fram að kristni á Írlandi hafi í upphafi að einhverju leyti tekið við fornum fræðsluhefðum drúída (fornírska, drui, fleirt. druid) og barda sem hafi verið fylltar nýju innihaldi og þróaðar áfram. Heimildir um þessar stéttir eða hópa eru þó fremur ungar og ótraustar svo erfitt er að fullyrða nokkuð í þessa veru. RÓMVERSKA HEFÐIN SÆKIR Á Þegar fjallað er um átök við rómversku hefðina er gjarnan vitnað til samþykktar kirkjuþingsins í Whitby (nú í Norður­ Jórvíkurskíri) í þáverandi konungdæmi Norðymbralands árið 664. Þá urðu fulltrúar keltnesku hefðarinnar að beygja sig undir þá rómversku á meginlandinu hvað snerti tímasetningu páskanna og krúnurakstur munka. Þessi samþykkt var þó fyrst og fremst svæðisbundin (kirkjan sem tengdist Lindisfarne) og snerti fremur form en grundvallaratriði kirkjuskipanar og trúarhátta. Það sem lesa má um keltneska kristni í annars nær sígildri kirkjusögu Magnúsar Jónssonar prófessors verður nú að teljast úrelt: „Þetta þing var haldið í Whitby árið 664, og var þar samþykkt, að taka kaþólska trú. […] Í lok aldarinnar gekk írska kirkjan undir katólsku kirkjuna, og á 8. öld þær kirkjur, sem eftir voru á Bretlandi.“ Írska kirkjan var frá upphafi hluti hinnar almennu (kaþólsku) kirkju og það er raunar ekki fyrr en á 12. öld sem hún gengst endanlega undir rómverska skipulagið á kirkjuþinginu í Kells árið 1152. Árið 664 hafði raunar meira en helmingur írskra kirkna, þ.e. Suður­Írland, þegar fallist á rómverska tímasetningu páska og krúnurakstur. Síðasta vígi gömlu páskatímasetningarinnar og keltneska krúnurakstursins mun hafa verið á Iona og allt til um 718. UMSKIPTIN Á ÍRLANDI Umskiptin í kirkjunni á Írlandi til hátta meginlandsins voru langt og flókið ferli sem stjórnaðist ekki aðeins af ytri þrýstingi heldur einnig innri þróun. Árið 1074 báðu leiðandi menn kirkjunnar í Dyflinnarskíri erkibiskupinn af Kantaraborg að vígja biskupsefni sitt. Einhver aðdragandi mun hafa verið að þessum atburði sem opnaði fyrir áhrif ensku kirkjunnar á þessu norsk­írska svæði sem náði suður fyrir Dyflinni. Kirkjuþing marka áfanga á þessari vegferð en misjafnlega gekk að koma samþykktum þeirra í framkvæmd. Þing í Cashel árið 1101 er talið fyrsta meiri háttar skrefið í átt til þess að koma kirkjunni á Írlandi undir reglur meginlandsins. Áhersla á einlífi presta og að fólk mætti ekki giftast og skilja án afskipta kirkjunnar fékk þó lítinn framgang. Meiri árangur virðist hafa náðst með kröfunni um skírlífi ábóta. Næsta skref var kirkjuþingið í Ráith Bressail (Rathbreasail) árið 1111 undir forsæti framandi manns (Anglo­Norman) sem hafði verið skipaður biskup í Limerick. Þarna var gengið frá því að heildarskipulag kirkjunnar á Írlandi væri bundið við afmörkuð landsvæði, tvö erkibiskupsdæmi með 12 biskupsdæmum hvort. Lykilmaður í mikilli uppstokkun í kirkjunni á Írlandi á 12. öld er kallaður Malachy (1094­1148). Hann gegndi ýmsum mikilvægum áhrifastöðum í kirkjunni og fékk skýrt umboð frá páfanum. Hann varð góðvinur Bernhards frá Clairvaux og lést raunar í Clairvaux á leið til Rómar. Árið 1142 stofnaði Malachy klaustur í Mellifont af reglu sistersíana en þar var um að ræða fyrstu kynningu á Írlandi á klausturreglum meginlandsins. Þessi regla varð mjög áhrifamikil á Írlandi en hún var einkar andsnúin allri aðlögun að írskum hefðum.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.