Bjarmi - 01.10.2021, Blaðsíða 30
30 | bjarmi | október 2021
gerir maður ráð fyrir því). Sá í forystu segir:
Ég stýri þessu, ég ber ábyrgðina – og þetta
hefur samstarfsfólk mitt heyrt mig segja ótal
sinnum.
Stundum átti ég engan þátt í að
skapa vandann, en það er ekki málið. Ég
ber hina endanlegu ábyrgð og þarf að
fá samstarfsfólk mitt til að komast að því
hvernig við komum okkur út úr vandanum.
Ég segi þetta oft upphátt til að minna mig á
að ásökun er ekki valkostur. Tökum ábyrgð
og höldum áfram.
Það er stórkostlegt hversu frelsandi það
getur verið. Og jákvæð aukaverkun er sú að
hópurinn stendur betur saman. Oft stígur
sá fram sem olli vandanum og tekur líka
ábyrgð.
Hvers vegna? Jú, af því að enginn
ásakaði hann. Gott fólk stendur frekar við
sitt heldur en hlaupast á brott eða fara í felur.
4. SLEPPUM AFSÖKUNUM
Tilfinningagreint fólk í forystu tekur ábyrgð
á öllu sem það gerði og gekk ekki upp.
Sein/n á fund? Okkur er tamara að kenna
umferðinni um en að segja að við lögðum
of seint af stað.
Þegar skýrslan er ekki tilbúin í tæka
tíð skulum við ekki segja að krakkinn
hafi orðið veikur eða við fengum lítinn
nætursvefn. Má vera að það sé rétt en er
einhver hjálp í því? Okkur tókst bara ekki
að klára hana í tíma.
Lélegur leiðtogi kemur með afsakanir,
góður leiðtogi tekur framförum.
Annaðhvort afsökum við eða tökum
framförum, þetta tvennt fer ekki saman.
Ef við hættum að afsaka okkur hefur
það víðtækari afleiðingar en á stöðu
okkar í augum samstarfsfólks okkar, við
sættum okkur við okkur sjálf. Við verðum
heiðarleg við okkur sjálf og líður illa sem er
uppspretta raunverulegra framfara.
Og jákvæða aukaverkunin: Þau sem
taka ábyrgð á mistökum sínum gera
smám saman færri mistök.
5. LEGGJUMST EKKI LÁGT
Annað einkenni tilfinningagreinds fólks er
að það neitar að skjóta – ódýrum skotum
eða öðrum. Þegar samræður falla niður á
ómerkilegt og lágt plan leiða þeir þær aftur
inn á æðra stig.
Það er freistandi að hrekja sérhverja
gagnrýni eða að leggjast jafn lágt og aðrir
gera. Einföld tilvitnun minnir mig aftur og
aftur á hvers vegna sú leið borgar sig ekki:
Farðu aldrei í slagsmál við svín. Þið
verðið bæði óhrein og svíninu líkar það vel.
Þetta á við svo ótal margt. Að halda
sig í réttri hæð og á réttri braut er ekki
alltaf auðvelt en er alltaf besta leiðin.
Grein þessi birtist á vefsíðu höfundar,
careynieuwhof.com, og birtist hér með
góðfúslegu leyfi hans. Þýðing: RG.
ÞAU SEM TAKA
ÁBYRGÐ Á
MISTÖKUM SÍNUM
GERA SMÁM
SAMAN FÆRRI
MISTÖK