Bjarmi - 01.10.2021, Side 14
| bjarmi | október 202114
sér að sjá um verkefnið ásamt mannskap
frá Finnlandi og Noregi. Einnig keyptum við
vinnu af grænlenskum iðnaðarmönnum.
Húsið var fullgert á sjö mánuðum,
á tímum Covid upplifðum við eitt stórt
kraftaverk, langþráður draumur um
trúboðshús sem fékk heitið „Hús friðarins“
var orðið að veruleika.
Hvað getur þú sagt okkur meira um
húsið?
Í húsinu er salur fyrir samverustundir, eldhús,
gestaherbergi, tvö salerni og lítil skrifstofa.
Lítil kirkja í Finnlandi sendi 30 stóla og við
keyptum felliborð og ýmislegt annað til
að geta haldið veislur, kaffihúsakvöld og
kvennakvöld.
Hollensku hjónin sem ég sagði ykkur
frá sjá um húsið, þau fá að nýta aðstöðuna
fyrir biblíulestra á föstudagskvöldum
og samkomur á sunnudögum. Eftir að
húsið var tekið í notkun hefur áhugi fólks
aukist á starfinu, allt að 20 manns sækja
biblíufræðsluna á föstudögum.
Svo er fram undan að vígja húsið?
Já, bæn mín til Drottins hefur verið sú að
leyfa mér að sjá hugsjónina rætast um
trúboðshús í Grænlandi áður en ég verð 70
ára, ég verð sjötug í desember nk. Í byrjun
október ætla ég að fara til Grænlands ásamt
teymi fólks til að fagna saman og vígja
húsið. Ég trúi því að Guð muni sjá um þetta
dýrmæta starf, senda trúboða og kennara
til að starfa á meðal fólksins í Tasiilaq.
Við þökkum Ernu fyrir viðtalið og
biðjum góðan Guð að blessa starfið í
Tasiilaq.
EFTIR AÐ
HÚSIÐ VAR
TEKIÐ Í
NOTKUN
HEFUR
ÁHUGI
FÓLKS
AUKIST Á
STARFINU,
ALLT AÐ
20 MANNS
SÆKJA
BIBLÍU
FRÆÐSL UNA
Á FÖSTU
DÖGUM