Skessuhorn - 01.06.2022, Síða 12
MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 202212
Bjartmar Þór Unnarsson úr Reyk-
holtsdal dúxaði við útskrift úr
Borgarholtsskóla í síðustu viku.
Bjartmar útskrifaðist af náttúru-
fræðibraut og var hlaðinn verð-
launum þegar haldið var heim.
Hann hlaut m.a. viðurkenningu
fyrir góðan árangur í íslensku,
bestan árangur í nýsköpun, góð-
an árangur í náttúrufræðigrein-
um, fyrir einstaka ástundun og
frábæran árangur í námi á afreks-
íþróttasviði. Bjartmar æfir körfu-
bolta með Fjölni í Reykjavík og
segist hafa verið mikið á æfingum
samhliða skólagöngu sinni ásamt
því að sinna hlutverki þjálfara.
Aðspurður segist Bjartmar hafa
reynt að nýta tímann vel til að
ná þessum árangri: ,,Ég vann oft
langt fram á kvöld og reyndi að
nýta tímann eins vel og ég gat.
Vinur minn dúxaði í Menntaskóla
Borgarfjarðar í fyrra svo ég gat
ekki annað en reynt að gera það
líka.“
Bjartmar stefnir svo á nám í
sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands
næsta haust. Hann segist hafa
haldið uppá áfangann með smá
veislu og skellti sér svo til Dan-
merkur. sþ
Björgunarbátasjóði Björgunar-
sveitarinnar Lífsbjargar í Snæ-
fellsbæ barst vegleg gjöf á dögun-
um þegar Fiskmarkaður Íslands hf.
færði sjóðnum peningagjöf að upp-
hæð ein milljón króna. Tilefnið
var 30 ára afmæli FMÍS. Það var
Guðmundur Smári Guðmunds-
son stjórnarformaður FMÍS sem
afhenti styrkinn. Stjórn björgunar-
bátasjóðsins veitti styrknum við-
töku og sagði Halldór Kristins-
son við það tækifæri, um leið og
hann þakkaði fyrir veglega gjöf,
að sjóður inn fengi fjórða nýja bát-
inn sem smíðaður yrði fyrir björg-
unarsveitir umhverfis landið.
Ásamt Halldóri veittu þeir Eggert
Arnar Bjarnason, Magnús Guðni
Emanúels son og Viðar Páll Haf-
steinsson styrknum viðtöku.
þa
Landbúnaðarháskóli Íslands stóð í
byrjun vikunnar fyrir viðburði þar
sem kynntur var afrakstur vinnu á
námsbraut sem nefnist „Hagnýtt
og heildstætt skipulag.“ Nemend-
ur voru þær Díana Berglind Val-
þórsdóttir, Elísabet Bjarnadóttir og
Þóra Margrét Júlíusdóttir. Kynntu
þær samstarfsverkefni sitt, en að
þessu sinni var viðfangsefnið ný
framtíðarsýn fyrir Borgarnes.
Arna Mathiesen arkitekt var leið-
beinandi á námskeiðinu. Hún seg-
ir að nemendur fái í gegnum þetta
námskeið færi á að spreyta sig sem
hönnuðir á skipulagi, ekki ósvipað
og þegar tekið er þátt í skipulags-
samkeppnum. „Þetta er ólíkt dag-
legu amstri skipulagssviða sveitar-
félaganna að því leyti að nemend-
um er lyft á efra sjónarhól þar sem
ögranir samtímans standa í röðum
– og nemendurnir læra á ýmis tól
sem eru fyrir hendi til að fá yfir-
sýn, tileinka sér gagnrýna hugs-
un og þeir þjálfast í að setja fram
nýjar hugmyndir. Hér er pláss til
að hugsa út fyrir kassann, að hugsa
óháð, og jafnvel leggja fram ögr-
andi spurningar varðandi forsendur
sem virðast hafa legið í kortunum
lengi, en væri jafnvel vert að endur-
skoða í ljósi þess nýjasta í fræðun-
um, með sjálfbæra þróun að leiðar-
ljósi,“ segir Arna.
Hún segir að markmiðið hafi ver-
ið að kanna hvernig framtíðarsýn
Borgarness gæti sem best samrýmst
markmiðum sjálfbærrar þróunar,
en áhersla Borgarness á heilsuefl-
ingu er einmitt á þessum nótum.
„Þegar litið er á heimsmarkmið
Sameinuðu þjóðanna í þessum efn-
um sjáum við vel að nánast allt sem
hægt er að gera til að sporna við
loftslagsbreytingum og varðveislu
og framþróun vistkerfa lýtur að
hinu byggða umhverfi. Höfuðatriði
í sjálfbærnihugsun er að byrja ekki á
neinu nýju sem gæti fært hlutina til
verri vegar, en kappkostað frekar að
endurnýta og bæta þá innviði sem
til eru en ekki virka nægilega vel
sem stendur.“
Uppbygging án vaxtar
Tillaga nemendanna kallast „Upp-
bygging án vaxtar.“ Í lýsingu á til-
lögum þeirra segir:
„Leggja þeir til að þróa miðbæ
fyrir fjölskrúðugt mannlíf á flæm-
um sem nú er lögð undir upp und-
ir 500 bílastæði, bensínstöðvar og
sjoppur miðsvæðis í bænum. Form
bygginganna svipar til byggða-
mynsturs gamla hluta Borgarness
sem er þekkt fyrir einstakan sjarma.
Nemendurnir sýndu teikningar,
kort og módel með nýrri byggð á
tveimur til þremur hæðum sem
gæti rúmað 6.700m2 verslunar-
og þjónustuhúsnæði, en ennfrem-
ur 34.600m2 fyrir íbúðarhúsnæði
sem gæti rúmað u.þ.b. 1.470 íbúa.
Hér gæfist kostur á minni íbúðum,
sem henta betur eldri kynslóðinni
sem kæmust þá úr íþyngjandi ein-
býli sem hentar betur barnafjöl-
skyldum. Einnig væri þetta góð-
ur kostur fyrir unga fólkið sem
ekki hefur efni á sérbýli, eins og
er ráðandi íbúðagerð í Borgarnesi
í dag. Starfsemi sem er opin fyrir
almenning á fyrstu hæð gæti lokk-
að fólk til að fara ferða sinna fót-
gangandi með tilheyrandi heilsu-
eflingu og um leið ljáð útirýmun-
um líf. Hér yrði líka til sýnis og
sölu allt það besta sem Borgar-
nes og Borgarbyggð hefði upp á
að bjóða. Nýi miðbærinn myndi
þannig lokka fólk til að staldra við
og njóta Borgarness á annan hátt
en er í dag. Verkefni nemendanna
sýnir hvernig þjóðveginum yrði
þá breytt í líflega bæjargötu með
hægri umferð, hjóla- og göngu-
stígum á leið í gegnum byggðina
með gróðri og blómlegri þjónustu,
mörkuðum og torgum. Þetta er
leið sem farin hefur verið í bæjum
í Noregi með góðum árangri, en
reynslan sýnir að þegar þjóðveg-
ur flyst út úr bæjum flyst þunga-
miðja verslunar út úr, og byggð-
in dreifist með tilheyrandi áskor-
unum og óþarfa bílakeyrslu. Hver
veit hvort Borgarbyggð setji þró-
un miðbæjarins í forgang áður en
ráðist verður í dýrar nýjar innviða-
framkvæmdir sem stækka bæinn að
óþörfu?“
Tillögur nemendanna má sjá í
glugga á neðstu hæð Digranesgötu
2 í Borgarnesi, væntanlegs ráðhúss,
og er öllum velkomið að skoða.
mm
Snemma að morgni uppstigningar-
dags var björgunarsveit í Hafnar-
firði kölluð út vegna vélarvana báts
sem rak hratt að landi. Einn var um
borð í bátnum sem var staddur um
1,5 kílómetra frá landi rétt vestur
af Straumsvík. Björgunarbátur frá
Hafnarfirði var komin á vettvang
um hálftíma eftir að útkall barst og
náði áhöfn hans að taka vélarvana
bátinn í tog og draga hann til hafn-
ar. Mikill forgangur var á útkall-
inu þar sem bátinn rak hratt að
landi. Allt gekk þó vel og var hann
kominn til hafnar klukkutíma eft-
ir að kallað hafði verið eftir aðstoð.
Meðfylgjandi mynd frá Lands-
björgu var tekin þegar björgunar-
báturinn kemur með bátinn í togi
inn í höfnina í Hafnarfirði.
Síðastliðinn mánudag voru
björgunarsveitir kallaðar út vegna
vélarvana báts sem staddur var vest-
ur af Hjörsey á Mýrum. Útkallið
var fljótlega afturkallað.
mm
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir úr
Borgarnesi kom fram með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands síðast-
liðinn miðvikudag sem sigur-
vegari í keppninni Ungir einleik-
arar. Sinfóníuhljómsveitin stend-
ur fyrir keppninni ásamt Lista-
háskóla Íslands en í ár voru fjór-
ir sigurvegarar, tvær söngkonur,
trompetleikari og klarínettuleik-
ari. Önnur söngkonan forfallaðist
svo einungis þrír sigurvegarar stigu
á svið með Sinfóníuhljómsveitinni.
Hanna Ágústa fór síðust á svið
og heillaði Eldborgarsalinn upp úr
skónum. Söng hún ljóð, óperuarí-
ur og í einni aríunni dansaði hún
um sviðið, enda með bakgrunn í
samkvæmisdönsum. Brá hún sér í
hlutverk dansara og ekkju í aríum
sínum með leikrænum tilburðum.
,,Þetta var alveg ótrúlega gaman og
enginn smá heiður að fá að syngja
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Maður hefur alltaf horft með aðdá-
un á sigurvegara þessarar keppni
svo það er mjög óraunverulegt að
standa svo þarna sjálf,“ segir Hanna
Ágústa aðspurð um upplifun sína á
sviðinu. Hanna Ágústa hefur síðast-
liðin fjögur ár stundað söngnám og
óperuleikstjórn í Tónlistarháskól-
anum í Leipzig í Þýskalandi en
mun útskrifast þaðan í sumar. Eft-
ir útskrift stefnir hún á að flytja til
Íslands og kenna söng ásamt því að
sinna verkefnum í listinni.
sþ
Bjartmar Þór með verðlaun og viður-
kenningarskjöl.
Bjartmar Þór dúxaði í Borgó
Hanna Ágústa í sveiflu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Söng og dansaði með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
Fiskmarkaður Íslands
gefur til Lífsbjargar
Snör viðbrögð björgunarfólks
í Hafnarfirði
Kynntu tillögu að hagnýtu og heildstæðu
skipulagi fyrir Borgarnes
Nemendurnir ásamt Örnu Mathiesen arkitekt sem var leiðbeinandi á nám-
skeiðinu. Ljósm. LbhÍ.