Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Síða 2

Skessuhorn - 06.07.2022, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20222 Útgáfan í sumar SKESSUHORN: Nokk- ur er spurt um útgáfudaga Skessuhorns í sumar. Það skal upplýst að blaðið kemur út alla miðvikudaga í sumar, utan eins. Það kemur ekki út blað vikuna eftir verslunar- mannahelgi, miðvikudaginn 3. ágúst. Starfsfólk á ritstjórn verður í sumarleyfi frá 27. júlí til og með 2. ágúst. -mm Hreppslaug vígð SKORRAD: Nýtt laugarhús við Hreppslaug var vígt síð- degis í gær, um svipað leyti og Skessuhorn fór til prentunar. Þar stóð til að hafa stutta athöfn þar sem Guðni Th Jóhannesson for- seti Íslands var væntanleg- ur. Við segjum frá vígslunni á vef Skessuhorns og í næsta blaði. -mm Eldur í gámi BORGARNES: Vegfarandi tilkynnti um eld í gámi við húsnæði Steypustöðvarinn- ar við Engjaás í Borgarnesi aðfararnótt sl. föstudags. Að sögn Bjarna Kr. Þorsteins- sonar slökkviliðsstjóra er ekki vitað nákvæmlega um eldsupptök, en gámurinn er mikið skemmdur og all- ur skakkur eftir hitann sem myndaðist. Það vildi slökkvi- liðinu til happs að þessa nótt var stafalogn því drjúgur eldsmatur var í grennd við gáminn. Bíll stóð í einung- is tveggja metra fjarlægð, byggingar hefðu mögu- lega verið í hættu og plast- kúlur sem voru í grennd við gáminn hefðu getað orsakað mikinn eld á svæðinu. -gj Mesta verð- bólga í þrettán ár LANDIÐ: Verðbólga mælist nú 8,8% og hefur ekki verið hærri síðan árið 2009. Verðbólga án húsnæð- isþáttarins er 6,5%. Hækkun verðlags miðað við neyslu- verðsvísitölu er 1,41% síð- asliðinn mánuð. Verð á mat og drykkjarvörum hækk- aði um 0,8% (áhrif á vísi- töluna 0,11%), kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkaði um 2,9% (0,56%) og verð á bensíni og olíum hækkaði um 10,4% (0,39%). -mm Sandara- og Rifsaragleði S N Æ F E L L S B Æ R : Helgina 7.-9. júlí fer Sand- ara- og Rifsaragleði fram í Snæfellsbæ. Dagskrá verð- ur fyrir alla aldurshópa um helgina í Rifi, á Hellissandi og í Ólafsvík. Hátíðin hefst á uppistandi með Ara Eld- járn í Frystiklefanum í Rifi á fimmtudagskvöld en lýk- ur með sveitaballi í Félags- heimilinu Röst á Hellissandi á laugardagskvöldinu. Veg- leg fjölskyldudagskrá verð- ur á föstudegi og laugardegi. -sþ Eftir vægast sagt viðburðaríkt vor og fyrri hluta sumars er nú lítið eitt að slakna á dagskrá hátíða og viðburða. Við hvetjum fólk til að nýta hásumarið til hreyfingar og útiveru, hvert á sínum forsendum. Í dag verður skýjað en úrkomu- lítið, en bjart með köflum á Norð- ur- og Austurlandi. Fer að rigna suðvestan- og vestanlands seint um kvöldið með vaxandi suð- austanátt. Hiti yfirleitt á bilinu 10 til 16 stig. Á fimmtudag er spáð suðvestan og vestan 8-13 m/s, rigning eða skúrir, en styttir upp austanlands fyrir hádegi. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Austfjörðum. Á föstudag verður vestan 5-13 m/sek og súld eða dálítil rign- ing með köflum, en yfirleitt þurrt á Austfjörðum og Suðaustur- landi. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast suð- austanlands. Á laugardag verð- ur sunnanátt og rigning, en að mestu þurrt á norðaustanverðu landinu. Á sunnudag verður vest- læg eða breytileg átt og dálítil rigning. Í liðinni viku var spurt á vef Skessuhorns: „Þú værir dæmd/ur til vistar á eyðieyju; hvaða drykk tækir þú með þér?“ Þetta er nátt- úrlega mjög mikilvægt að vita. Niðurstaðan var býsna afger- andi, því 74% völdu að hafa með sér vatn. 14% hafa áfengi með í för og gera þannig ráð fyrir að vatn til að blanda það með finn- ist á eyjunni. Nú 5% hafa með sér ávaxtasafa, 3% gos, 3% orkudrykk og 2% velja eitthvað annað. Í næst viku er spurt: Notarðu verkjalyf? Landsmót hestamanna stend- ur nú yfir á Gaddastaðaflötum á Rangárvöllum. Þar er hvert ann- að glæsihrossið tekið til kost- anna og áhorfendur fá nú í fyrsta skipti í fjögur ár að líta heilstæð- an afrakstur ræktunar og þjálfun- ar. Athygli á sunnudaginn vakti árangur Kristínar Eirar Hauks- dóttur Holaker frá Skáney. Hún sat hestinn Þyt og saman náðu þau eftirtektarverðum árangri í forkeppni barna, með einkunn- ina 8,798. Kristín Eir og Þytur eru Vestlendingar vikunnar. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Veðurhorfur Nú birtir yfir Akraneskirkju þar sem Garðar Jónsson málari vinn- ur að því þessa dagana að heil- mála kirkjuna að utan. Ekki mun verða skipt um lit á þessu 126 ára guðshúsi Akurnesinga. Blaðamað- ur Skessuhorns leit við á sólríkum degi í síðustu viku og smellti mynd af Garðari þar sem hann stóð uppi í spjóti og málaði kirkjuturninn. sþ Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda áform um að endurskoða verði ný kosninga- lög sem reynst hafa meingölluð. Nú stendur meðal annars til að taka til endurskoðunar ákvæði um hæfi kjörstjórna. Þau hæfisskilyrði gerðu sveitarfélögum, sérstaklega þeim fámennari, lífið leitt í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga síðasta vor, eins og fram kom í fréttum á fyrri hluta árs. Í kosningalögum sem tóku gildi í byrjun árs voru m.a. gerðar miklar breytingar á því fyr- irkomulagi sem verið hefur á fram- kvæmd kosninga. Við undirbún- ing sveitarstjórnakosninga 14. maí sl. komu svo í ljós ýmsir ágallar á nýju lögunum. Voru nokkrir þeirra það alvarlegir að bregðast þurfti við þá þegar og var lögunum breytt í tvígang. Aðgerðir Mílu við að bæta fjar- skiptaskilyrði í Grundarfirði fela m.a. í sér að tæpt hundrað heim- ila mun eiga kost á tengingu eftir lagningu ljósleiðara í sumar. Enn- fremur batna skilyrði farsíma (4G og 5G síðar) þegar framkvæmdum lýkur, en Míla rekur fjarskiptakerfi Símans. Á fundi skipulags- og umhverfis- nefndar Grundarfjarðarbæjar í lok síðasta mánaðar var tekið fyr- ir erindi frá Mílu um að staðsetja farsímabúnað á þaki grunnskólans í bænum til þess að bæta farsíma- samband á svæðinu. Samhliða er gert ráð fyrir uppsetningu á 5G búnaði og þar með uppfærslu á 4G stöð sem staðsett er á símstöðinni. Byggingafulltrúi bæjarins hafði óskað eftir því að Míla myndi gera grein fyrir hollustuháttum og hugs- anlegum áhrifum sem slíkir sendar/ bylgjur geta haft á fólk og umhverf- ið og fylgdu gögn frá Mílu þar að lútandi með erindinu. Í fundar- gerð nefndarinnar kemur fram að Míla lagði fram mælingar og gögn Geislavarna ríkisins sem sýna gildi langt undir viðmiðunarmörkum. Almennt sé hægt að segja að þeir sem noti farsíma fái mun hærri geislun frá sínum eigin farsíma en frá farsímasendum, segir í gögnum Mílu. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti, með vísan í framlögð gögn, að veita Mílu leyfi til að koma fyrir 5G sendi á þaki grunnskólans.. gj/ Ljósm. mm. Boðað er að breytt verði gölluðum kosningalögum Þrátt fyrir hina fjölmörgu galla sem nýju kosningalögin fólu í sér voru þau afrakstur víðtæks samráðs á vettvangi hins opinbera. Vinnu- hópur Alþingis skilaði niðurstöð- um árin 2016 og 2018 og einnig var skipaður starfshópur sem skil- aði niðurstöðum í september 2020. Þá var formlega lagt fram frum- varp sem fékk hefðbundna með- ferð þingsins, þar sem allir helstu hagsmunaaðilar voru kallaðir að borðinu. Þrátt fyrir þennan mikla undirbúning og yfirlegu samþykkti Alþingi frá sér gölluð lög sem það hefur í þrígang þurft að breyta í snatri til að bregðast við ágöllum. Í raun væri sérstakt rannsóknar- efni hvernig Alþingi gat samþykkt frá sér svo gölluð lög sem raun ber vitni. Farið yfir lögin í heild Samkvæmt minnisblaði í Samráðs- gáttinni á nú að bregðast við ágöll- um nýrra kosningalaga. Endur- skoða þarf ákvæði um hæfi kjör- stjórna og kjörstjóra, en ákvæðið leiddi til þess að í mörgum kjör- stjórnum voru kjörstjórnarmenn vanhæfir og þurftu að víkja úr kjör- stjórnum og oft á tíðum gekk erf- iðlega að manna kjörstjórnir. Var þetta sérstaklega algengt í minni sveitarfélögum. „Skoða þarf hvort kveða þurfi með skýrari hætti á um ýmis atriði er varðar utankjör- fundaratkvæðagreiðslu, s.s. varð- andi upphafsdag hennar og opn- unartíma á kjördag. Einnig þarf að skoða hvort breyta eigi ákvæðum um fjölda atkvæðakassa hjá emb- ættum sýslumanna og um flutn- ing þeirra til yfirkjörstjórna o.fl., en ábendingar þess efnis hafa kom- ið frá sýslumönnum. Þá þarf jafn- framt að skoða ákvæði sem kveður á um að ytri umslög utankjörfundar- atkvæða, svokölluð sendiumslög, séu aðeins merkt með kennitölu og kjördeild, m.a. með hliðsjón af ákvæðum um rafræna kjörskrá. Mikillar óánægju gætti með þetta hjá kjörstjórnum þar sem þær töldu nauðsynlegt að á sendiumslögun- um kæmi fram bæði nafn og heim- ilisfang kjósanda til að unnt væri að forflokka utankjörfundaratkvæði niður á kjördeildir og innan kjör- deilda. Var það mat margra yfir- kjörstjórna að þetta kallaði á mun meiri vinnu og yki villuhættu,“ seg- ir í minnisblaðinu. Loks segir: „Framangreind upp- talning er ekki tæmandi, heldur er um að ræða þau atriði sem kvað mest að við undirbúning og fram- kvæmd kosninganna í maí sl. Fara þarf yfir lögin í heild, styrkja laga- heimildir og breyta ákvæðum ef til- efni er til,“ segir í skjali á Samráðs- gátt frá dómsmálaráðuneytinu. mm Frá kjörfundi í Logalandi í Borgarfirði síðastliðið vor. Kjörnefndarkonurnar Elísabet Halldórsdóttir og Jónína Eiríksdóttir töldust hæfar, áttu ekki fjarskylda ættingja eða venslafólk á framboðslistum í Borgarbyggð. Farsímasamband verður bætt í Grundarfirði Akranes- kirkja máluð

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.