Skessuhorn


Skessuhorn - 06.07.2022, Síða 8

Skessuhorn - 06.07.2022, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 20228 Slegist í gríni ÓLAFVÍK: Lögregla var um helgina kölluð að tjald- svæðinu í Ólafsvík og til- kynnt um slagsmál. Þegar hún mætti á staðinn kom í ljós að þar voru ungir menn vissulega að slást, en það reyndist vera leikur. -mm Leiddu hjólin í göngunum HVALFJ: Á laugardaginn þurfti lögregla að hafa afskipti af tveimur hjólreiða- mönnum sem leiddu reiðhjól sín í gegnum Hvalfjarðar- göngin. Slíkt er stranglega bannað. Hjólreiðafólk sem hyggst fara þar í gegn þarf að húkka sér far með bíl fyr- ir sig og hjól sín, en ella að hjóla fyrir Hvalfjörð. -mm Íslandsmót barna og unglinga BORGARNES: Íslandsmót barna og unglinga í hesta- íþróttum verður haldið á félagssvæði hestamannafé- lagsins Borgfirðings í Borg- arnesi dagana 3.-6. ágúst. Keppt verður í Barnaflokki, Fimikeppni A, tölti T3, tölti T4, fjórgangi V2 og í Ung- lingaflokki í Fimikeppni A, tölti T1, tölti T4, fjórgangi V2, fimmgangi F2, gæðinga- skeiði PP1 og 100 m flug- skeiði. Opnuð verður Face- book síða fyrir mótið þar sem nánari upplýsingar verða birtar. -sþ Naloxone nefúði verður aðgengilegur LANDIÐ: Heilbrigðis- ráðuneytið í samvinnu við Landspítalann vinnur að því að gera lyfið Naloxone í nefúðaformi aðgengilegt um allt land, þannig að tiltekn- ir aðilar hafi það til reiðu þegar á þarf að halda. Lyf- ið er notað þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeðferð vegna ofneyslu ópíóða sem valdið getur öndunarstoppi og dauða. Landspítali bauð lyfið út fyrr í vor sem var forsenda þess að unnt væri að dreifa því gjaldfrjálst til notenda. Frá og með 1. júlí mun heilbrigðisráðuneytið greiða allan kostnað vegna lyfsins sem þar með verð- ur notendum að kostnaðar- lausu. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 25. júní – 1. júlí Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 18 bátar. Heildarlöndun: 39.147 kg. Mestur afli: Mardís AK 4.144 kg. í þremur löndunum. Arnarstapi: 26 bátar. Heildarlöndun: 68.196 kg. Mestur afli: Grímur AK 6.844 kg. í fjórum róðrum. Grundarfjörður: 18 bátar. Heildarlöndun: 135.018 kg. Mestur afli: Runólfur SH 50.207 kg. í einum róðri. Ólafsvík: 45 bátar. Heildarlöndun: 193.280 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarna- son SH 63.536 kg. í tveimur löndunum. Rif: 33 bátar. Heildarlöndun: 255.857 kg. Mestur afli: Magnús SH 108.236 kg. í fjórum róðrum. Stykkishólmur: 24 bátar. Heildarlöndun: 122.152 kg. Mestur afli: Fúsi SH 18.895 kg. í fjórum löndunum Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Runólfur SH – GRU: 50.207 kg. 26.júní 2. Hringur SH – GRU: 48.178 kg. 28.júni 3. Magnús SH – RIF: 36.036 kg. 28. júní 4. Ólafur Bjarnason SH – ÓLA: 33.013 kg. 28. júní 5. Ólafur Bjarnason SH – ÓLA: 30.523 kg. 27. júní. -dóh Slökkvilið Stykkishólms var ræst út á þriðjudag í liðinni viku þegar eld- ur kom upp í gámi á svæði Íslenska gámafélagsins. Einar Þór Strand slökkviliðsstjóri segir í samtali við Skessuhorn að eldurinn hafi kom- ið upp í pressugámi og telur hann að eitthvað hafa farið í gáminn sem ekki þoldi pressun, en gámurinn var merktur fyrir almennt sorp. Má því rekja eldsupptökin til rangr- ar flokkunar. Einar segir að gengið hafi fljótt og vel að slökkva eldinn og ekki hafi orðið mikill skaði, en vissulega hafi þó málning sviðnað af gámnum. sþ Björgunarsveitir á Vesturlandi voru í tvígang kallaðar út síðast- liðinn miðvikudag vegna fólks sem slasast hafði á gönguleiðinni að fossinum Glym í Botnsdal. Klukk- an þrjú var fyrra útkallið en þá hafði kona, sem var á göngu að fossinum, hrasað og slasast á fæti. Fyrstu hópar frá björgunarsveit- um voru komnir á vettvang um klukkutíma síðar og hófust handa við að hlúa að konunni sem var á ferð með nokkuð stórum göngu- hópi. Í fyrstu var talið að konan væri óbrotin og beðið eftir meiri mannskap til að hefjast handa við að bera hana niður um 500 metra að stað þar sem sexhjól gat tekið við og flutt hana áfram að sjúkrabíl til frekari aðhlynningar. Síðar kom í ljós að hún var ökklabrotin og sótti þyrla LHG hana og flutti á sjúkrahús. Þegar fleiri hópar voru á leið á vettvang vegna fyrra útkallsins barst Neyðarlínu önnur tilkynning frá gönguleiðinni að Glym. Maður hafði hrasað um tíu metra niður í gilið og var talinn illa slasaður. Þá var með hæsta forgangi óskað eftir frekari aðstoð frá björgunarsveit- um á Vesturlandi og einnig voru sveitir kallaðar út frá höfuðborgar- svæðinu. Nokkru síðar var björg- unarsveitarmaður, sem var á leið í fyrra útkallið, kominn að mannin- um sem reyndist þá minna slasað- ur en talið var og gat fylgt honum niður að bílastæði þaðan sem hann fór á eigin vegum á slysadeild. mm Líkt og bæjarbúar á Akranesi hafa orðið varir við þá hafa verið í gangi miklar framkvæmdir á veg- um Veitna í bænum; á Suðurgötu, Háholti og Skagabraut. „Þær hafa ekki allar gengið samkvæmt áætlun en slíkt er alltaf viðbúið þegar vinna er skipulögð við lagnir sem grafnar eru í jörð og ekki alltaf ljóst hvað er undir,“ segir í tilkynningu frá Veit- um. Suðurgata „Þegar framkvæmdir hófust í janú- ar leit út fyrir að um frekar einfalt verkefni væri að ræða, tengja átti nýjar byggingarlóðir inn á núver- andi veitukerfi auk þess að leggja nýjan háspennustreng að væntan- legri spennustöð á Sementsreit. Þegar gröftur hófst í götu kom í ljós að gera þurfti meira því ljóst varð að einnig þurfti að endurnýja kaldavatnslagnir, leggja nýjar regn- vatnslagnir og skipta um öll niður- föll. Slíkar breytingar kalla á nýja hönnun sem er tímafrek auk þess sem stærra verkefni tekur auðvitað lengri tíma. Að ljúka þessum verk- um núna kemur í veg fyrir að við þurfum að grafa þarna aftur á næstu árum. Nú er gert ráð fyrir að þessum fyrri hluta framkvæmda á Suður- götu ljúki í ágústmánuði. Þá verð- ur hafist handa við seinni áfangann sem nær frá Merkigerði að Suður- götu 117. Stefnt er að því að ljúka honum á fjórum mánuðum.“ Háholt Þá segir í tilkynningu Veitna að í Háholti hafi upphaflega staðið til að skipta út frárennslislögn í stíg og götu og bæta við regnvatnslögn. „Í ljós kom að kaldavatnslögn lá of nærri núverandi frárennslislögn og þurfti því að skipta henni út sem og frárennslislögn að byggingu við götuna, sem var fallin saman. Stefnt er á að byrja að steypa götuna milli Háholts 17-23 í næstu viku og að síðari hlutinn muni klár- ast í lok júlí.“ Skagabraut „Takmarkanir á umferð á Skaga- braut áttu að taka stuttan tíma en í ljós kom að tengi kaldavatnslagn- ar voru öðruvísi en talið var. Erfið- lega hefur gengið að fá rétta tegund af tengi og því ekki hægt að tengja kalda vatnið. Því verki þarf að ljúka áður en vinna hefst við hitaveitu- lagnir. Stefnt er á að vinnu við stíg- inn ljúki í lok júlí en ekki er alveg ljóst hvenær hægt verður að ljúka tengingum á kalda vatninu. Öllum sem koma að þessum framkvæmdum er það ljóst að þær hafa haft mikil áhrif á byggingar- aðila og íbúa sem búa í grennd við þær. Starfsfólk Veitna þakkar þeim fyrir gott samstarf og skilning.“ mm Það nýtur mikilla vinsælda að ganga að fossinum Glym. Það er þó hættuleg gönguleið eins og rækilega sannaðist í síðustu viku. Tvö óhöpp með skömmu milli- bili á gönguleiðinni að Glym Veitur útskýra tafir á nokkrum framkvæmdum á Akranesi Suðurgata – Háholt – Skagabraut Hluti Suðurgötu hefur verið lokaður frá því í janúar og íbúar í nágrenninu langþreyttir á ástandinu. Nú boða Veitur að framkvæmdum þar eigi að ljúka í ágúst. Slökkvilið Stykkishólms er hér búið að slökkva eldinn. Ljósm. sá Eldur kviknaði í gámi í Stykkishólmi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.