Skessuhorn - 06.07.2022, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 6. JÚLÍ 2022 17
Rokk í Reykholti er tónleikadag-
skrá 16. júlí næstkomandi sem
helguð verður hljómsveitinni The
Evil Pizza Delivery Boys. Hljóm-
sveitin var unglingahljómsveit
sem starfaði að mestu í Borgar-
firði og nærsveitum af og til á árun-
um 1988 til 1991. Hún tók tvívegis
þátt í Músíktilraunum og gerði eina
breiðkassettu. Einnig hitaði hljóm-
sveitin upp á sveitaböllum fyrir
goðsagnir einsog Síðan skein sól og
lék á fjölmörgum tónleikum í Borg-
arnesi. Oftast lék hún eigið efni en
einnig dansiballaprógramm.
Stofnmeðlimir The Evil Pizza
Delivery Boys voru Gísli Magnús-
son, Símon Ólafsson, Guðmund-
ur Svanberg Sveinsson og Óskar
Víekkó. Síðar léku með hljóm-
sveitinni Guðveig Eyglóardóttir,
Halldóra Björk Friðjónsdóttir og
Þórður Magnússon.
Á tónleikunum í Reykholti verða
staðfestir gestir, auk veislustjór-
ans gímaldins: Hafþór Ólafsson
sem mun túlka hlutverk karl for-
söngvarans, Guðveig Eyglóardótt-
ir, Sonja Lind, Halldóra Björk sem
munu syngja sín lög og annarra
og trommuleikarinn Guðmundur
Svanberg Sveinsson.
Tónleikarnir verða í Reykholts-
kirkju og hefjast klukkan 16 laugar-
daginn 16. júlí. Miðaverð er 3000
krónur. -fréttatilkynning
Laugardaginn 23. júlí koma Systur
fram á Hinseginhátíð Vesturlands
í Ólafsvík að lokinni gleðigöngu,
en gangan hefst kl. 14:00. Félag-
ið Hinsegin Vesturland mun halda
aðra Hinseginhátíð Vesturlands
í Snæfellsbæ helgina 22. – 24. júlí
2022. Félagið var stofnað í febr-
úar 2021 og hélt fyrstu Hinseg-
inhátíð Vesturlands í Borgarnesi
9.-11. júlí á síðasta sumri. Talið er
að um 1200 manns hafi sótt hátíð-
ina. Ákveðið var í upphafi að hátíð-
in myndi flakka á milli sveitarfé-
laganna á Vesturlandi til að auka
sýnileika hinsegin fólks um allan
landshlutann og mun nú fara fram í
Snæfellsbæ 22. – 24. júlí. Hápunkt-
urinn og stærstu dagskrárliðirnir
verða laugardaginn 23. júlí, en þá
verður gleðiganga í Ólafsvík, sem
og tónlistar- og menningardagskrá
fyrir alla fjölskylduna. Meðal dag-
skrárliða verða Systur (Elín, Beta
og Sigga), Bolli og Bjalla úr Stund-
inni okkar og Hljómsveitin Eva.
Föstudaginn 22. júlí verða Systur
með fyrstu opinberu tónleikana frá
því að þær tóku þátt í Eurovision.
Tónleikarnir verða í Frystiklefan-
um í Rifi en Systur hafa á undan-
förnum vikum verið að semja og
taka upp ný lög og ráðgera að senda
frá sér smáskífuna Dusty Road í
ágúst nk. Tónleikagestir geta því
átt von á að heyra mikið af nýjum
lögum í bland við vel þekkt kóver
lög og svo auðvitað Með hækkandi
sól.
Tónleikarnir í Frystiklefanum
hefjast kl. 20:30 föstudaginn 22.
júlí og miðaverð er 3.900 krónur.
Miðasala á https://www.thefreezer-
hostel.com/
mm
The Evil Pizza Delivery Boys spilar á tónleikum á Hótel Borgarnesi.
Ljósm. Sigurdór Guðmundsson.
The Evil Pizza Delivery Boys
með tónleika í Reykholti
Systur verða á Hinseginhátíð
Vesturlands í Snæfellsbæ
ar eftir faraldurinn ef ekki er haldið
áfram markvissu starfi til að draga
úr þeirri einangrun.“
Hún segir að einstaklingar sem
nú mynda hópinn Saman á Skaga
hafi sumir hverjir áður ekki til-
heyrt neinum hópi félagslega.
„Margir voru nokkuð einangraðir
í sínu lífi og með sína fötlun. Um
leið og hópurinn hefur orðið sterk-
ari verður hann sýnilegri í samfé-
laginu og hafa einhver íþróttafélög
m.a. séð möguleika í því að bjóða
upp á íþróttaæfingar fyrir þennan
hóp. Fyrir það erum við rosalega
þakklát og vonum við að það verði
hvatning fyrir fleiri félög að gera
það. Það að geta boðið upp á fjöl-
breytta viðburði er ekki framkvæm-
anlegt nema með velvilja einstak-
linga, félaga og fyrirtækja sem hafa
reynst boðin og búin til að aðstoða
við að gera upplifun hópsins sem
eftirminnilegasta. Ég vil þakka
þeim sérstaklega fyrir. Þá má ekki
gleyma starfsfólki og stjórnendum
sveitarfélaganna sem að verkefn-
inu standa. Þeir hafa komið verk-
efninu á skrið og eiga miklar þakk-
ir skildar. Um leið rís þó krafan um
að tryggja að framhald verði á þessu
góða starfi fyrir okkar viðkvæmustu
meðborgara, ekki eingöngu yfir
sumartímann, heldur einnig vetr-
armánuðina. Þar hafa m.a. heyrst
hugmyndir um jólaball, þorrablót,
árshátíð og mögulega leikhúsferð
fyrir hópinn,“ segir Hildur Karen.
Margir stigið út
úr skelinni
Fram að þessu hefur ríkið stutt
sveitarfélögin til verkefnisins, en
Hildur Karen segir að ekki megi
hætta þessu verkefni þó svo ríkis-
styrkir hætti að berast og verður
leitað til bæjaryfirvalda um að þetta
verkefni haldi áfram og verði fastur
liður í starfsemi bæjarfélagsins.
„Nú á þriðja ári þessa verkefnis,
sem snýst um að draga úr félagslegri
einangrun fullorðinna fatlaðra, hef-
ur komið í ljós að verkefnið skilar
árangri. Ljóst er að margir hafa
verið að skríða úr skelinni, stíga út
fyrir þæginda rammann sem hafði
þrengst ár frá ári og prófa hluti í
fyrsta sinn á ævinni eða fyrsta sinn
í langan tíma. Betur var mætt á
viðburðina 2021 heldur en 2020
og enn betur á það sem við höf-
um gert á þessu ári. Aðstandend-
ur hafa einnig tekið meiri þátt og
almenn ánægja hefur aukist, bæði
meðal þátttakenda en ekki síður
aðstandenda sem sáu meiri félags-
lega virkni hjá ættingjum sínum.
Ljóst er að verkefni sem þetta hef-
ur mikinn samfélags- og lýðheilsu-
legan ávinning og þarf því að halda
áfram,“ segir Hildur Karen. Máni
og Kristjana taka undir þau orð
hennar.
mm
Ívar Hrafn Jónsson og Kristín Þóra Jónhannsdóttir, á sjó með Björgunarfélagi
Akarness.
Áslaug Þorsteinsdóttir í sveitaferð á
Bjarteyjarsandi.
Stefán Trausti Rafnsson í heimsókn hjá
Fimleikafélagi Akraness.
Hreggviður Steinn Hendriksson á
Hvalasafninu í Reykjavík.
Aldís Helga Egilsdóttir á Hvalasafninu í Reykjavík.Jóhanna Nína Hafstein í sundlaugarpartíi í Bjarnalaug.
Máni Jóhannsson í Minigarðinum í
Reykjavík.
Emma Rakel Björnsdóttir, í keilu hjá
Keilufélagi Akraness.