Morgunblaðið - 13.05.2022, Side 8
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Reykjavík Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri árið 2014.
Reykjavíkurborg hafnar því alfarið
að borgarstjóri eða starfsmenn
Reykjavíkurborgar hafi gerst brot-
legir við lög en Loftkastalinn ehf.
hefur kært borgarstjóra og tvo
starfsmenn borgarinnar til héraðs-
saksóknara.
Félagið lagði fram kærurnar
vegna meintra brota á sveitar-
stjórnarlögum, stjórnsýslulögum,
hegningarlögum og upplýsinga-
lögum „fyrir að stuðla ekki að
framfylgd í samræmi við skipulags-
lög og skipulagsreglugerð“.
Í skriflegu svari frá Reykjavíkur-
borg vegna fyrirspurnar blaðsins
kemur fram að kærurnar hafi ekki
borist borgarstjóranum Degi B.
Eggertssyni eða starfsmönnum.
„Hvorki borgarstjóra né um-
ræddum starfsmönnum Reykjavík-
urborgar hafa borist þær kærur
sem fjallað er um í frétt Morgun-
blaðsins sem birtist í blaðinu og á
mbl.is. Reykjavíkurborg geti því
eðli málsins samkvæmt ekki tjáð sig
um kærurnar.
Því er þó alfarið hafnað að borg-
arstjóri eða starfsmenn Reykjavík-
urborgar hafi brotið lög í málinu. Í
því samhengi er vísað til úrskurðar
Landsréttar frá 18. febrúar 2022 í
máli nr. 6/2022 og úrskurðar úr-
skurðarnefndar umhverfis- og auð-
lindamála frá 30. september 2020. Í
báðum tilfellum er málatilbúnaði
Loftkastalans hafnað,“ segir í svari
frá samskiptasviði borgarinnar.
Hafna því alfarið að
lög hafi verið brotin
- Hafa ekki fengið
kærurnar í hendur
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022
Mest selda
liðbætiefni
á Íslandi.
ÍDagmálum Morgunblaðsins
ræddi borgarstjóri um mikilvægi
þess að meirihlutinn fengi tækifæri
til að sitja áfram þar sem urmull
spennandi verkefna biði. Þetta þótti
ýmsum kúnstugt,
meðal annars Hildi
Björnsdóttur, odd-
vita sjálfstæðis-
manna, sem benti á
að hann hefði talað
með nákvæmlega
sama hætti fyrir
fjórum árum.
- - -
Hildur sagði að
borgarstjóri
segði til dæmis nú að
hefja þyrfti fram-
kvæmdir við borg-
arlínu á næsta kjör-
tímabili, en fyrir
síðustu kosningar
hafi verið talað um „að fram-
kvæmdir við borgarlínu mundu hefj-
ast á þessu kjörtímabili. Þær eru
ekki hafnar.
- - -
Það var talað um að Miklabraut
ætti að fara í stokk, alveg eins
og hann talar um núna. Sú fram-
kvæmd er ekki hafin og skyndilega
er Samfylking farin að tala um
Miklubraut í göng.
- - -
Það var talað um að leysa leik-
skólavandann. Hann er ekki
leystur.
- - -
Það var talað um að bregðast við
húsnæðisvandanum. Jú, hér var
byggt, en það var ekki byggt nóg.
- - -
Þannig að það sem ég vil leggja í
dóm kjósenda: Dæmið þennan
meirihluta af verkum þeirra. Hvers
vegna ætti þeim að takast, á næstu
fjórum árum, að framkvæma allt
það sem þau lofuðu fyrir fjórum ár-
um og tókst ekki? Hvers vegna ætt-
um við að gefa þeim meiri tíma?“
Dagur B.
Eggertsson
Endurvinnsla
óefndra loforða
STAKSTEINAR
Hildur
Björnsdóttir
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stjórnun makrílveiða og kvótaskipting var um-
ræðuefni á fundi strandríkja í London í vikunni.
Ekki var gengið frá samkomulagi um skiptingu á
fundinum, en ákveðið að hittast á nýjan leik á
tveimur fundum í júnímánuði. Kristján Freyr
Helgason, sem fór fyrir íslensku nefndinni, segir
að fundurinn hafi eigi að síður verið á jákvæðum
nótum og fulltrúar strandríkjanna skipst á skoð-
unum. Hann segir að samtalið hafi verið gott á
fundinum og fram hafi komið vonir um heildstæð-
an samning fyrir árið 2023.
Síðast var rætt um stjórnun makrílveiða á fundi
í lok mars og var þá lögð fram skýrsla vísinda-
manna um dreifingu makríls og fleira. Búast má
við að strandríkin kynni kröfur sínar á júnífund-
unum.
Fundurinn var haldinn í höfuðstöðvum NEAFC
í London og auk Íslands áttu Færeyjar, Bretland,
Evrópusambandið, Grænland og Noregur fulltrúa
á fundinum. Sex manns voru í íslensku nefndinni,
fulltrúar matvælaráðuneytis, utanríkisráðuneytis,
Hafrannsóknastofnunar og Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi. aij@mbl.is
Vonir um samning fyrir 2023
- Jákvæðni á fundi um
stjórnun makrílveiða
Morgunblaðið/Líney
Uppsjávarskip Heimaey við bryggju í Þórshöfn,
en skipin eru nú flest á kolmunna við Færeyjar.
Lögfræðingafélagið á Sjöundá
Ranglega stóð í blaðinu í gær, bls 12, að Lögmannafélag Íslands hefði staðið
að leiðangri vestur á Rauðasand, á vettvang sakamálsins á Sjöundá. Hið
rétta er að Lögfræðingafélag Íslands átti þar allan heiðurinn. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT