Morgunblaðið - 13.05.2022, Side 15

Morgunblaðið - 13.05.2022, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022 Í gegnum tíðina hefur verið tekið á tímabundnum áskor- unum af skynsemi og festu. Við teljum mik- ilvægt að viðhalda fjárhagslegum stöð- ugleika sem Sjálf- stæðisflokkurinn hef- ur tryggt síðustu áratugi á Nesinu. Nýr listi sjálfstæðismanna á Seltjarn- arnesi hefur lagt fram raunhæfa tillögu að nýjum leikskóla. Við ætl- um að brúa bilið að loknu fæðing- arorlofi og tryggja leikskólapláss fyrir nýja íbúa Gróttubyggðar. Fyrirsjáanleiki mun auðvelda for- eldrum skipulag. Skipulagsferli vegna breytinga á leikskólalóðinni er langt komið, en þangað til nýr leikskóli opnar og inntaka 12 mán- aða barna verður raunhæfur val- möguleiki, ætlum við að fjölga val- kostum og koma þannig til móts við foreldra með heimgreiðslum að loknu fæðingarorlofi þar til börn fá leikskólavist. Grunnþjónusta í forgrunni Þegar rætt er um gott bæj- arfélag eins og Seltjarnarnes er margt sem þarf að hafa í huga. Sveitarfélagið er til fyrir íbúana en ekki öfugt og fara þarf með fjár- muni íbúa af skynsemi. Bæjar- félagið þarf að þjónusta af kost- gæfni og alúð, hafa augun á boltanum og vaðið fyrir neðan sig þegar kemur að rekstri. Þess vegna teljum við mikilvægt að for- gangsraða grunnþjónustu, upplýs- ingaflæði og virku samráði við íbúa framarlega. Fallegur bær Vestast á Nesinu er mikill kraft- ur í uppbyggingu þar sem nýtt hverfi Gróttubyggðar rís. Þar er von á ríflega 300 nýjum íbúum í skemmtilegri blandaðri byggð. Eins má nefna glæsilegt Nátt- úruminjasafn Íslands í húsnæðinu sem áður var ætlað Lækn- ingaminjasafni. Við tökum þessum jákvæðu verkefnum sannarlega fagnandi. Í spjalli okkar við íbúa hefur ver- ið lögð áhersla á aukið viðhald mannvirkja og leiksvæða. Listi Sjálfstæðisflokksins á Nesinu er skipaður fjölbreyttum hópi fólks með víðtæka þekkingu og reynslu úr ólíkum áttum. Við höfum þegar forgangsraðað brýnustu verkefnum og viljum setja upp áætlun í sam- vinnu við íbúa og láta til okkar taka. Við ætlum að eiga jákvæð og uppbyggileg samskipti við íbúa og starfsfólk. Kjósum skynsemi, ábyrgð og nýjan kraft á laugardaginn. Eftir Þór Sigur- geirsson og Dagbjörtu Snjó- laugu Oddsdóttur » Við ætlum að eiga jákvæð og upp- byggileg samskipti við íbúa og starfsfólk. Kjósum skynsemi, ábyrgð og nýjan kraft á laugardaginn. Þór er oddviti Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi. Dagbjört Snjólaug er frambjóðandi í 5. sæti í sama flokki. Dagbjört Snjólaug Oddsdóttir Skýr og raunhæf forgangs- röðun – það er Nesið Þór Sigurgeirsson Húsnæðisskortur og gegndarlaus óða- verðbólga á fasteigna- og leigumarkaði eru orðin að þjóðar- meinsemd og helsta efnahagsvanda þjóð- arinnar. Ungu fólki er nú nánast ókleift að koma þaki yfir höf- uðið og ástandið fer sífellt versnandi. Frá hausti 2020 og til árs- ins 2021 nam hækkun íbúðar- húsnæðis í Reykjavík 17 prósent- um og á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs hækkaði meðalkaupverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu um fimm milljónir. Samkvæmt grein- ingu Húsnæðis- og mannvirkja- stofnunar fækkaði íbúðum til sölu um 74 prósent frá því í maí 2020 og fram að síðustu áramótum. Afleiðingar ofþéttingar Upphaf þessarar óheillaþróunar ber augljóslega að rekja til skipulagsstefnu borgaryfirvalda. Með nýju aðalskipulagi, ár- ið 2013, var stefnan tekin á þessa óheillaþróun með of- þéttingu byggðar. Hún hefur síðan haft í för með sér skipulegan lóðaskort, margföldun á verði byggingarlóða, afar einhæfan húsa- og íbúðakost og sífellt kostnaðarsamari og flóknari skilyrði borgaryfirvalda fyrir lóðaúthlutun og bygging- arrétti. Þessi stefna hefur bók- staflega elt uppi öll þau víti sem varast ber. Það er afleitt því það er ekki hlutverk borgaryfirvalda að kynda verðbólgubál og stuðla að húsnæðisskorti, heldur að forð- ast slíka óáran. Íbúaspá og lóðaúthlutun Ef við gerum ráð fyrir að íbúum Reykjavíkur fjölgi um tvö prósent á ári hefur þeim fjölgað um 61.000 árið 2040. Við þyrftum því að byggja 25.000-30.000 íbúðir á tíma- bilinu eða a.m.k. 2.000 íbúðir á ári. Borgaryfirvöld hafa hins vegar gert ráð fyrir að í Reykjavík verði byggðar 1.000 íbúðir á ári og það hafa þau ekki einu sinni staðið við. Þrátt fyrir þetta viðmið að- alskipulagsins um 1.000 íbúðir á ári hefur þeim íbúðum á kjör- tímabilinu sem skilgreindar eru „í byggingu“ fækkað jafnt og þétt allt þetta kjörtímabil. Það lætur nærri að íbúðum „í byggingu“ hafi fækkað um nær þriðjung á tveim- ur árum. Borgaryfirvöld úthlutuðu einungis 450 byggingarlóðum á síðasta ári. Sú úthlutun hefði þurft að vera ríflega þrefalt meiri. Að kjósa með fótunum eða í kosningum Þetta forystuhlutverk borgaryf- irvalda í húsnæðisskorti og óða- verðbólgu á fasteignamarkaði hef- ur svo haft í för með sér mikinn flótta fyrirtækja, stofnana og borg- arbúa frá höfuðborginni og í nær- liggjandi sveitarfélög með tilheyr- andi umferðarþunga, tímaskatti og mengun. Tölur Hagstofunnar tala skýrustu máli um þessa þróun: Á síðustu árum hefur íbúafjölgun verið 10 prósent í Árborg á sama tíma og hún hefur verið eitt til tvö prósent í Reykjavík. Þetta kallast að kjósa með fótunum. Enginn skyldi ætla að núverandi borgaryfirvöld snúi af þessari óheillabraut, Hún er kjarninn í þeirra hugmyndafræði. En við sjálfstæðismenn ætlum að snúa af þessari braut svo aftur sjái til sól- ar í Reykjavík. Við ætlum tafar- laust að úthluta nægum fjölda lóða í nýjum hverfum fyrir fjölbreytta byggð á hagkvæmu verði. Hættum því að kjósa með fótunum og kjós- um Sjálfstæðisflokkinn á laugar- daginn. Það er ekki eftir neinu að bíða, kjósandi góður – því lengi getur vont versnað. Eftir Mörtu Guðjónsdóttur » Það er ekki hlutverk borgaryfirvalda að kynda verðbólgubál og stuðla að húsnæðis- skorti, heldur að forðast slíka óáran. Marta Guðjónsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og skipar 4. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Húsnæðisskortur og fasteignaverðbólga borgaryfirvalda Kosningar til borg- arstjórnar í Reykjavík og sveitarstjórna um allt land skipta gríðar- lega miklu máli. Á undanförnum árum hafa sífellt fleiri verk- efni færst til sveitarfé- laganna og ákvarðanir sem teknar eru á sveitarstjórnarstiginu hafa ekki bara veruleg áhrif á daglegt líf íbú- anna heldur líka á þjóðfélagið allt, bæði hvað varðar vöxt og viðgang efnahags- og atvinnulífs, sam- gangna, menntamála, menningar og hvers kyns velferðarþjónustu. Af þessum sökum þarf enginn að velkjast í vafa um að það skiptir verulegu máli hverjir veljast til að leiða starf sveitarstjórna í þessum mikilvægu verkefnum. Það á jafnt við í stórum bæjum og fámennari sveitarfélögum. Reykjavíkurborg hefur svo auðvitað sérstöðu sem langstærsta sveit- arfélagið. Ég er í hópi þeirra sem telja að verulegra breytinga sé þörf á vettvangi borgarmál- anna. Áframhaldandi samsuða fjölmargra flokka undir leiðsögn Samfylkingarinnar er ávísun á óbreytt ástand og við blasir að eini raunhæfi mögu- leikinn til að ná fram breytingum er að sjálfstæðismenn nái sterkri stöðu í kosningunum. Sjálfstæðisflokkurinn býður fram öflugan hóp frambjóðenda með skýra sýn á framtíðaruppbyggingu borgarinnar og þjónustu sem virk- ar. Í hópnum eru bæði ein- staklingar sem hafa mikla reynslu á sviði borgarmála og nýir frambjóð- endur, sem geta miðlað af fjöl- breyttri reynslu sinni af ólíkum sviðum samfélagsins. Borgar- stjóraefni listans, Hildur Björns- dóttir, er sterkur stjórnmálamaður og hefur á undanförnum fjórum ár- um sýnt hvað í henni býr með ákveðnum og málefnalegum mál- flutningi. Ég skora á borgarbúa að nýta sér kosningaréttinn og veita frambjóð- endum Sjálfstæðisflokksins braut- argengi. Hvert atkvæði skiptir máli. Hvert atkvæði skiptir máli Eftir Birgi Ármannsson Birgir Ármannsson » Sjálfstæðisflokk- urinn býður fram öflugan hóp frambjóð- enda með skýra sýn á framtíðaruppbyggingu borgarinnar og þjón- ustu sem virkar. Höfundur situr á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Staðan er góð í Garðabæ. Við sjálf- stæðisfólk höfum í gegnum tíðina lagt fram skýr fyrirheit til kjósenda fyrir kosn- ingar og svo nýtt kjörtímabilið til þess að standa við þau. Þannig höfum við byggt upp virkt sam- tal íbúa sem taka virkan þátt í að móta okkar áherslur. Nú höfum við lagt fram 100 áherslur í stefnuskrá okkar. Við viljum halda áfram á sömu braut og áður og sækja end- urnýjað umboð íbúa til að leiða bæinn áfram til móts við nýja tíma. Það er eftirsóknarvert að búa í Garðabæ því fólk veit að hér er gott, öflugt og traust samfélag. Tölurnar tala sínu máli, í bæinn flykkist fólk á öllum aldri og ánægja með þjónustuna mælist hærri en í nær öllum öðrum sveit- arfélögum. Svona framþróun ger- ist ekki af sjálfu sér. Það þarf að hlusta eftir því hvað skiptir íbúa máli, móta heildstæða sýn og láta verkin tala. Traust og ábyrg fjármálastjórn Það er ánægjulegt að umfjöllun um fjárhagsstöðu sveitarfélaga er að aukast í aðdraganda kosninga. Í allri slíkri umfjöllun er nið- urstaðan á þann veg að Garðabær stendur mjög sterkt að vígi í sam- anburði við önnur sveitarfélög. Skuldahlutfall sveitarfélagsins er lágt og ekkert sveitarfélag skilar eins miklu sjóðstreymi úr rekstri. Góð staða fjármála hefur þýtt að okkur hefur tekist að halda álög- um á íbúa lágum. Heilbrigður rekstur hefur líka þýtt að okkur hefur tekist að veita mjög góða þjónustu, eins og íbúar hafa stað- fest í könnunum, en samt sem áð- ur skilað afgangi. Sá afgangur hefur gert okkur kleift að fjár- festa án óhóflegrar skuldsetn- ingar. Í því felst meðbyr og geta til að byggja upp innviði og það leiðir til þess að við getum gert meira með minni tilkostnaði. Spennandi áherslur fyrir íbúa Í stefnuskrá okkar sjálfstæð- isfólks eru mörg mikilvæg fram- faramál fyrir bæjarbúa. Við ætl- um t.d. að halda áfram að lækka álagn- ingarhlutfall fast- eignagjalda og þróa frekar afslætti á gjöldum til einstakra hópa. Þetta er mögu- legt á grunni sterkrar fjárhagsstöðu. Við viljum að Garðbæingar njóti fyrsta flokks heil- brigðisþjónustu sem mætir nútímaþörfum vaxandi bæjarfélags. Við viljum nýta vel- ferðartækni til að efla heimaþjón- ustu enn frekar. Við leggjum áherslu á að fá aðra heilsugæslu- stöð í bæinn og bjóða rekstur hennar út til einkaaðila. Við viljum vinna á sömu nótum með hjúkr- unarheimili og sérhæfða dagdval- arþjónustu í huga. Við viljum halda áfram á þeirri vegferð að styðja við heilsueflingu bæjarbúa og það gerum við með markvissu samstarfi við hin öflugu félög í bænum. Við ætlum að leggja áherslu á uppbyggingu íbúða á einni hæð, t.d. í Hnoðraholti og Hleinum, fyr- ir fólk sem vill minnka við sig hús- næði. Góður árangur er ekki tilviljun Þegar kosið er í bæjarstjórn þá erum við að velja fólk sem tekur ákvarðanir um margt það sem stendur okkur næst. Ég leiði stolt- ur öflugan hóp einstaklinga sem bjóða sig fram til góðra verka í bænum okkur. Við í Sjálfstæð- isflokknum í Garðabæ erum þakk- lát fyrir það traust sem bæjarbúar hafa sýnt okkur og vonumst til að fá skýrt og sterkt umboð til áframhaldandi góðra verka og sóknar. Við trúum því og treystum að íbúar Garðabæjar vilji halda áfram á þeirri vegferð sem hafin er. Byggjum áfram á traustum grunni í Garðabæ Eftir Almar Guðmundsson Almar Guðmundsson » Það er eftirsóknar- vert að búa í Garða- bæ því fólk veit að hér er gott, öflugt og traust samfélag. Tölurnar tala sínu máli, í bæinn flykk- ist fólk á öllum aldri. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.