Morgunblaðið - 13.05.2022, Qupperneq 17
Göngustígar Aðgengi fyrir
gangandi vegfarendur var
ekki gott, að sögn ritara.
UMRÆÐAN 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2022
Á hverfafundi á
Kjalarnesi 5. maí kom
í ljós að andstaða
borgarmeiri-
hlutaflokkanna við
Viðeyjarleið Ábyrgrar
framtíðar (x-Y) var
það mikil að þeir
vildu ekki láta skoða
lausnina. Fulltrúi Pí-
rata taldi þetta verstu
hugmynd sem hún
hefði heyrt og fulltrúi Viðreisnar
hélt að Viðeyjarleiðin væri ein-
göngu til að vekja athygli á „litlu
framboði“!
Þessi afstaða er sérstök í ljósi
þeirra tafa sem hafa orðið á
Sundabraut (nú síðast til 2026) en
skýrist líklega af því að þau vita
lítið um hvað Viðeyjarleið snýst.
Ég gerði því stuttan samanburð
á leiðunum.
Sundabraut verður stofnvegur
frá Sæbraut við Kleppsvík yfir á
Gufunes í fyrri áfanga. Í seinni
áfanga verður haldið áfram út á
Geldinganes, Álfsnes, yfir Kolla-
fjörðinn og inn á Vesturlandsveg.
Allar þveranir eru brýr og a.m.k.
þrenn gatnamót verða á leiðinni
fyrir aðra umferð.
Viðeyjarleið er hraðbraut með
gatnamótum í Viðey sem þrjár
stofnæðar tengjast við: Botngöng
frá Laugarnesi til Viðeyjar, hefð-
bundinn jarðgöng frá Brimnesi til
Viðeyjar og vegur á landfyll-
ingabrú frá Gufunesi til Viðeyjar.
Meiri stytting og
hraðari umferð
Viðeyjarleið býr til nær tvöfalt
meiri styttingu út á Kjalarnes en
Sundabraut eða 16 km í stað 9
km. Aðeins ein gatnamót eru á
Viðeyjarleið en þrenn á Sunda-
brautinni og því verður umferð
þar í senn hraðari og jafnari.
Ekki er hægt að byggja hálfa
brú og því þarf að hanna brýr
Sundabrautarinnar fyrir framtíð-
arumferð. Slík yfirhönnun hækkar
stofnkostnaðinn og þvingar
áfangaskiptingu á verkefnið þar
sem of lítil umferð er á nyrstu
brúnum til að réttlæta margar ak-
reinar.
Í Viðeyjarleið er
þessu öðruvísi farið.
Umferðarþunginn frá
Kjalarnesi er það lítill
að það liggur beinast
við að gera fyrst bara
ein göng og bíða með
seinni göngin þar til
umferðin vex.
Umferðarvanda-
málin á Sæbraut
og í Sundahöfn
Á Sæbraut verða
oft leiðinlegar umferðarteppur og
tveggja mínútna aksturskafli get-
ur breyst í 20 mínútna stíflu. Við-
eyjarleið býr til hjáleið fram hjá
þessum slæma kafla með því að
flytja umferðina til Viðeyjar.
Sundabraut vantar slíka hjáleið og
tengist á miðjan slæma kaflann.
Umferðarstíflur á Sæbraut munu
því halda áfram eftir að Sunda-
brautin er komin.
Laugarnes tengist Viðey með
botnstokki sem er undir sjáv-
arbotni og truflar því ekki ski-
paumferð.
Sundabrú fer yfir suðurenda
hafnarsvæðisins og mun því ávallt
takmarka þróun svæðisins síðar
meir.
Viðey
Með Viðeyjarleið mun Viðey
tengjast restinni af Reykjavík.
Saga Reykjavíkur er samofin eyj-
unni og myndi tengingin lyfta
þeirri sögu á hærri stall. Auðvelt
er að hafa hjólabraut í botn-
stokknum. Útivistarsvæðið í eyj-
unni kæmist þá í hjólafæri fyrir
alla Reykvíkinga, þeim til ánægju
og yndisauka.
Tvöfalt meiri stytting þýðir tvö-
falt meiri tekjur af veggjöldum og
færri gatnamót þýðir meiri tíma-
sparnaður. Viðeyjarleiðin líkist um
margt Hvalfjarðargöngum, sem
voru eitt arðsamasta samgöngu-
verkefni Íslandssögunnar og skil-
uðu fyrrverandi eigendum miklum
gróða. Fjármögnunin ætti því að
vera auðveld.
Sundabrautin er ekki eins hag-
kvæmt verkefni, með meira
flækjustigi og stórum óleystum
göllum. Þetta mun gera fjár-
mögnun erfiðari og langur tími
gæti liðið þar til farið væri í seinni
áfangann sem tengdi Sundabraut
við Esjusvæðið.
Hönnun stutt á veg komin
Margir telja Sundabrautina full-
hannað verkefni þar sem und-
irbúningur hefur staðið síðan
1973. Því fer þó fjarri, því flestum
eldri útfærslum hefur verið hent.
Fyrir 15 árum var innsta leiðin,
Eyjaleið, viðfangsefni lokaverk-
efnis greinarhöfundar í bygging-
arverkfræði, en þegar ákveðið var
að byggja íbúðir ofan á veglínuna
var þessi leið útilokuð. Eftir stóðu
bara dýrustu og óhagkvæmustu
útfærslurnar. Slík breyting hefði
því átt að kalla á heildarend-
urskoðun verkefnisins í víðara
samhengi. Það var ekki gert nema
að hluta og því var aldrei skoðuð
nein Viðeyjartenging. Valið stóð
aðeins á milli ofurdýrrar ganga-
leiðar frá Gufunesi á Laugarnes
og brúarleiðar yfir Sundahöfn.
Þetta leiddi til þess að ódýrari
leiðin, brúarleið sem skemmir
höfnina, var valin. Slíkt getur vart
talist ásættanlegt og engan ætti
að undra ef botnstokksleið eins og
er í Viðeyjarleiðinni verður skoðuð
frekar. Fleiri gallar eins og óleyst-
ur umferðarvandi Sæbrautar gætu
síðan kallað á enn frekari endur-
skoðun.
Enn er því mikil óvissa um hve-
nær hægt verður að byrja fram-
kvæmdina.
Öll vandamál Sundabrautar
leysast af sjálfu sér í Viðeyjarleið-
inni. Það yrði mikill missir ef slík
lausn, sem blasir við að sé mun
betri, er ekki einu sinni skoðuð.
Góðar lausnir eru þess eðlis að
þær vaxa hratt og festast ekki í
kerfinu eins og Sundabraut hefur
gert í hálfa öld.
Fólk sem vill sjá raunverulegar
breytingar þar sem leiðir eins og
Viðeyjarleið eru líka skoðaðar hef-
ur bara eitt mögulegt val í kom-
andi kosningum: X við Y fyrir
Ábyrga framtíð og alvörulausnir
fyrir Reykjavík.
Eftir Jóhannes
Loftsson
Jóhannes Loftsson
Höfundur er verkfræðingur
og oddviti Ábyrgrar framtíðar
í Reykjavík.
abyrg.framtid@abyrgframtid.is
Viðeyjar- eða Sundabraut?
»Viðeyjarleið gefur
tvöfalt meiri stytt-
ingu en Sundabraut og er
líklegri til að koma fyrr.
Vestast við Hraunbæinn eru tvö há-
hýsi af mismunandi aldri, bæði húsin
með eignaríbúðir fyrir eldri borgara.
Gangstígurinn að nýrra húsinu, 103
abc (vestasta), þrengist framan við
Hraunbæ 101 (sem ekki er íbúðar-
hús) þannig að ekki var hægt að
snjóhreinsa og/eða hálkuverja gang-
stíginn til að unnt væri að komast
skammlaust frá Hraunbæ 103 abc í
næstu biðstöð strætó (leið 5) mán-
uðum saman í vetur. Mér finnst
ósæmandi að bjóða eldri borgurum
upp á gangstétt með tæplega hálfri
breidd til að komast í strætó, sem
vegna smæðar sinnar hvorki er
hægt að ganga með göngugrind á
sumrin né snjóhreinsa á vetrum.
Mér finnst borgin eiga að bæta stíga
í nærumhverfinu, og þá hafa nær-
umhverfi eldri borgara í forgangi,
enda eru þeir hvað viðkvæmastir
fyrir hnjaski.
Gamlingi við Hraunbæ.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Gangstéttir við Hraunbæinn
AUÐVITAÐ ER
EÐLILEGT…
...að innheimta milljarða í innviðagjöld af ungu fólki en ekki af olíufélögum.
Kynslóðaskattar eru góðir fyrir rekstur borgarinnar.
Minni spilling – betri borg. Burt með meirihlutann.
BETRI BORG
Á
b
yr
g
ð
ar
m
að
u
r:
H
ilm
ar
Pá
ll
Jó
h
an
n
es
so
n