Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 3 0. M A Í 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 125. tölublað . 110. árgangur .
SKÓLARNIR
EIGI AÐ VERA Í
FREMSTU RÖÐ
TELUR
KREPPU Í
VÆNDUM
KJARTAN MEÐ TVÖ
Í HARÐSÓTTUM
KR-SIGRI
VIÐSKIPTI 12 8. UMFERÐ 26MJÖLL NÝR FORMAÐUR 11
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Málefni Reykjavíkurflugvallar gætu
reynst erfið í meirihlutaviðræðum
Framsóknar og þriggja flokka
gamla meirihlutans í Reykjavík.
Skömmu fyrir kosningar kastaðist í
kekki milli ríkis og borgar um þau,
en Sigurður Ingi Jóhannsson,
innviðaráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, hafnaði frekari
uppbyggingu í grennd við völlinn
fyrr en nýr flugvallarkostur væri
fundinn og uppbyggður. Einar Þor-
steinsson tók undir þau sjónarmið
og sagði mikilvægt að borgin virti
samning frá 2019 þar að lútandi.
Fyrir helgina undirstrikaði Sig-
urður Ingi svo mikilvægi þessa
máls fyrir Framsókn og sagði tíma-
bært að „dusta rykið“ af áformum
um að reisa nýja flugstöð á Reykja-
víkurflugvelli,
sem kallar á svör
nýs meirihluta
eftir að hann
verður mynd-
aður.
Þau kunna þó
að koma fyrr, því
fyrir nýrri borg-
arstjórn liggur
að taka afstöðu
til lóðaúthlutunar
í Skerjafirði undir 140 íbúða fjöl-
býlishús, sem gengur í berhögg við
stefnu Framsóknar og fyrrnefndar
yfirlýsingar innviðaráðherra.
Hvað sem því líður eru meiri-
hlutaviðræður í Reykjavík sagðar
ganga vel, þar á meðal um skipu-
lagsmál, þótt mögulega sé nokkur
bjartsýni að þeim ljúki fyrir fyrsta
fund nýrrar borgarstjórnar hinn 7.
júní. »14
Flugvallarmálið
gæti tafið fyrir
- Meirihlutaviðræður sagðar ganga vel
Einar
Þorsteinsson
Fram er Íslandsmeistari kvenna í handknatt-
leik eftir að hafa unnið dramatískan sigur á
liði Vals í fjórða leik liðanna í úrslitum Ís-
landsmótsins á sunnudag. Leiknum lauk með
23:22-sigri Fram, sem vann einvígið saman-
lagt 3:1. Karen Knútsdóttir fór á kostum fyrir
leik liðanna í Vestmannaeyjum. Valur vann
úrslitaeinvígið 3:1 og er því Íslands- og bikar-
meistari annað árið í röð. »27
Fram og skoraði alls níu mörk. Þá varð karla-
lið Vals Íslandsmeistari í handknattleik á
laugardag eftir 31:30-sigur á liði ÍBV í fjórða
Morgunblaðið/Kristvin Guðmundsson
Fögnuðu Íslandsmeistaratitlinum í 23. sinn
Úkraínustjórn biðlaði ákaft til vest-
rænna ríkja í gær um að senda fleiri
vopn til þess að verjast innrás Rússa.
Rússneski herinn hefur hert sóknina
í austurhluta landsins síðustu dægur
og er við að ná borginni Severo-
donetsk á sitt vald, en það myndi
veikja mjög varnarstöðu Úkraínu-
hers og mögulega knýja fram und-
anhald hans.
Severodonetsk er ein síðasta
borgin í héraðinu Lúhansk sem enn
er á valdi Úkraínuhers, en það og
héraðið Donetsk mynda landsvæðið
Donbass, sem Rússar gera tilkall til
og vilja leggja undir sig. Að sögn
borgarstjóra þar er borgin nú raf-
magnslaus, en í símtölum við vest-
ræna blaðamenn þvertók hann fyrir
að Rússum hefði orðið ágengt við
hernám borgarinnar.
Í sömu mund fór Volodimír Sel-
enskí Úkraínuforseti til borgarinnar
Karkív í norðausturhluta landsins,
en það er í fyrsta sinn sem hann
kemur þangað síðan úkraínski her-
inn stökkti hersveitum Rússa á flótta
þaðan. Karkív er næststærsta borg
landsins og meðal hinna fyrstu sem
Rússar reyndu að leggja undir sig
eftir innrásina í febrúar, en án
árangurs. Þar er mikið af fólki af
rússneskum uppruna, en það hefur
flest snúist gegn rússneska innrás-
arhernum eða heldur sig til hlés.
Selenskí ráðfærði sig í gær við
herforingja þar og ræddi við
óbreytta hermenn, en hann sæmdi
einnig hermenn heiðursviðurkenn-
ingu fyrir framgöngu sína við vörn
borgarinnar og samnefnds héraðs.
„Ég er mjög stoltur af varnar-
mönnum okkar. Þeir hætta lífi sínu á
hverjum degi til þess að verja frelsi
Úkraínu,“ sagði Selenskí af því til-
efni.
Um leið notaði hann tækifærið til
þess að biðja vestræn ríki um meiri
vopn til þess að halda aftur af sókn
Rússa, einkum eldflaugaskotpalla
sem eru mikilvirkari en þær fall-
byssur sem Úkraína hefur fengið til
varna fram að þessu. » 13
Rússar herða sóknina en
Úkraína biður um vopn
- Selenskí forseti heimsækir vígstöðvarnar í grennd Karkív
AFP
Úkraína Selenskí Úkraínuforseti
hélt í gær á vígstöðvarnar til að
kynna sér stöðuna af eigin raun.