Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 6

Morgunblaðið - 30.05.2022, Side 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Það „að rétta upp hönd“ í kennslustund gæti brátt heyrt sögunni til, eftir að sigurhugmynd Nýsköp- unarkeppni grunnskólanna leit dagsins ljós. Hug- myndin, sem ber nafnið Hjálparljós, eftir þær Hildu Rún Hafsteinsdóttur og Thelmu Sif Róbertsdóttur, úr 7. bekk í Sandgerðisskóla, er snjallari lausn til að biðja um aðstoð. „Við vorum einhvern tímann í tíma og vorum orðar þreyttar í hendinni þannig að okkur datt þetta í hug,“ segir Hilda en uppfinningin lýsir sér þannig að ýtt er á takka sem kveikir ljós, til marks um að mann vanti að- stoð. Ljósið er grænt í fjórar mínútur en verður þá gult. „Þá veit kennarinn að maður er búinn að bíða lengi,“ útskýrir Thelma. Að öðrum fjórum mínútum liðnum breytist ljósið á nýjan leik og verður rautt. „Svo byrjar það að blikka þegar það er búið að vera mjög lengi.“ Kennarinn sér því hvaða nemendur hafa beðið lengst eftir aðstoð „Síðan getur maður unnið annað verkefni á meðan,“ segir Thelma en báðar hafa þær lent í því að vera orðnar þreyttar í báðum höndum eftir biðina löngu. Fartölvur að launum Hilda segir þær vinkonurnar hafa sent inn hugmynd í mars, eftir að kennarinn þeirra, Ragnheiður Alma Snæ- björnsdóttir, hvatti þær og aðra í bekknum til að taka þátt í keppninni. Hugmyndin var síðan á meðal 25 hugmynda sem var boðið í vinnustofu og aðalkeppnina í Háskólanum í Reykjavík. Þar unnu þær aðalverðlaun. Að launum fengu þær hvor um sig viðurkenningaskjal og fartölvu að verðmæti 155 þúsund krónur frá Elko, sem styrkir keppnina. Sjö aðrar hugmyndir unnu til verðlauna í keppninni og hlaut Ásta Sigríður Ólafsdóttir, kennari í Víðistaða- skóla, hvatningarverðlaun kennara. Ljósmynd/Mennta- og barnamálaráðuneytið Verðlaun Vinkonurnar Thelma Sif og Hilda Rún ásamt menntamálaráðherra og þjónustustjóra Elko. Hjálparljós í staðinn fyrir að rétta upp hönd í tíma - Lærir meðan maður bíður - Minni þreyta í höndum Hjálparljós Hugmyndin ásamt plakati til útskýringar. Þóra Einarsdóttir óperusöngkona vann á föstudaginn mál gegn Ís- lensku óperunni fyrir Landsrétti. Landsréttur staðfesti þá með dómi sínum að Íslenska óperan hefði brotið gegn kjarasamningi sem hún gerði við stéttar- félög FÍH (Félag íslenskra hljóm- listarmanna) og FÍL (Félag ís- lenskra leikara) árið 2000, m.a. með því að greiða söngvurum lægri greiðslu en lág- marksgreiðslur samningsins og með því að neita að greiða yfirvinnu eða launatengd gjöld. Héraðsdómur hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að um frjálsan verksamning væri að ræða og þar af leiðandi frjálst að semja undir lágmarksviðmiðum kjara- samningsins. Þóra sagði í samtali við mbl.is í gær að dómur Héraðsdóms hefði sett alla samninga um verkefn- aráðningar sviðslistafólks í uppnám og skapað mikla óvissu meðal söngvara um hver réttarstaða þeirra væri gagnvart Íslensku óp- erunni. Þar sem málið hafði mikið fordæmisgildi fékk Þóra leyfi til að áfrýja dómnum til Landsréttar og sneri Landsréttur dómnum við og staðfesti að Íslenska óperan hefði ekki farið að lögum við samnings- gerð við söngvara fyrir uppsetningu verksins Brúðkaups Fígarós. Féllst Landsréttur á rök og kröfur Þóru Einarsdóttur að öllu leyti. Mikið fordæmisgildi Ljóst þykir að dómurinn muni hafa fordæmisgildi og að sögn Þóru er málið mikilvægt réttindamál fyr- ir söngvara. Að hennar mati sýnir niðurstaðan að söngvarar líkt og aðrar starfsstéttir eiga rétt á að njóta lágmarkskjara og -réttinda. „Þetta hefur mikið fordæmisgildi fyrir allar þessar verkefnaráðningar þegar stofnanir hafa samninga við stéttarfélög,“ sagði Þóra. „Þetta hefur mikla þýðingu fyrir mig per- sónulega, ég er náttúrlega búin að vera að standa í þessu núna í þrjú ár.“ Sagði Þóra að það væri einnig mikill léttir eftir niðurstöðu héraðs- dóms. Sagði hún frábært að málinu væri lokið og það væri komin rétt niður- staða í málið, en nánar er fjallað um það á mbl.is. tomasarnar@mbl.is Málið hafi haft mikla þýðingu fyrir sig - Þóra hafði betur fyrir Landsrétti Þóra Einarsdóttir Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Þriðjudagurinn 31. maí mun marka ákveðin tímamót í sögu Noregs og Íslands, en þá verður síðasta síldar- tunnan afhent Síldarminjasafni Ís- lands á Siglufirði. Á sunnudag fór fram mótttaka í norska sendiráðinu á Fjólugötu, þar sem meðal annars utanríkisráðherra ávarpaði gesti. Viðstaddur var einnig Petter Jonny Rivedal, sem bjargaði tunnunni þeg- ar hana rak á land nærri heimkynn- um hans við Hrífudal í Noregi. Hefur Petter Jonny varðveitt tunnuna í kjallara sínum í nær 40 ár. Viðstaddur móttökuna var einnig Björn Bjarnason, fyrrverandi mennta- og dómsmálaráðherra, en það var Björn sem komst að stað- setningu tunnunnar hjá Petter Jonny þegar hann heimsótti Hrífu- dal í því skyni að skoða styttu Ingólfs Arnarsonar. Petter Jonny hefur, auk þess að varðveita síðustu síldartunn- una, árum saman haft umsjón með styttunni af Ingólfi og umhverfi hennar og flaggað fánum bæði Ís- lands og Noregs á hátíðisdögum. Fyrsta Íslandsheimsóknin Ásamt því að hafa tekið á móti fjölda íslenskra ráðamanna sem heimsótt hafa styttuna af Ingólfi í Hrífudal hefur Petter Jonny sagt fjölda fólks sögu sína um síldartunn- una; árið 1986 þegar flutningaskipið Suðurland, sem var síðasta skipið sem náði fram til Íslands, sigldi úr höfn í Dalsfirði með fullan farm af síldartunnum féll tunna fyrir borð og hafnaði í sjónum. Tunnuna rak á land og hefur síðan verið í vörslu Petters Jonnys. Það mun hafa verið næstsíðasta ferð skipsins, en í síðustu för Suðurlands á jólanótt 1986 fórst skipið miðja vegu milli Íslands og Noregs með fullan farm af íslenskri síld. Sex skipverjar fórust en fimm var bjarg- að. Í kjölfar heimsóknar Björns Bjarnasonar til Hrífudals árið 2008 kviknaði hugmyndin um að koma síðustu síldartunnunni frá Dalsfirði til Íslands og sendiráð Íslands í Osló átti síðar frumkvæðið að því að hrinda hugmyndinni í framkvæmd og fá til liðs við sig ýmsa samstarfs- aðila. Samkvæmt upplýsingum frá norska sendiráðinu á Íslandi afhenti Hermann Ingólfsson, þáverandi sendiherra Íslands í Noregi, árið 2019 Petter Jonny viðurkenningar- skjal við styttuna af Ingólfi þar sem honum er þakkað framlag sitt í að varðveita söguleg tengsl Íslands og Noregs. Heimsóknin í tilefni af af- hendingu síðustu síldartunnunnar er þó fyrsta heimsókn Petters Jonnys til Íslands. Petter Jonny og eigin- kona hans, Nina Kilen Rivedal, voru heiðursgestir móttökunnar sem fram fór á sunnudag. Í dag verður tunnan flutt til Siglufjarðar, þar sem hún verður formlega afhent Síldar- minjasafni Íslands við hátíðlega at- höfn á þriðjudag. M.a. er gert ráð fyrir tónlistaratriðum og ræðuhöld- um, en Petter Jonny mun afhenda tunnuna að ráðamönnum viðstödd- um. Síðasta síldartunnan komin til Íslands - Síðasta síldartunnan verður afhent Síldarminjasafni Íslands á Siglufirði á þriðjudag - Síldartunnan hefur verið í vörslu Norðmanns í Hrífudal í nærri fjóra áratugi - Móttaka fór fram á sunnudag Morgunblaðið/Óttar Móttaka Björn Bjarnason fv. ráðherra og Petter Jonny Rivedal Íslands- vinur í móttöku norska sendiráðsins á sunnudag, með tunnuna á milli sín.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.