Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022
Nýjar og
Spennandi
lausnir í
umbúðum
Sími 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is
Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi
Sími 540 1818 | midaprent@midaprent.is | www.midaprent.is
Skemmuvegi 4, 200 Kópavogi
Úrslitaleiks Liverpool og Real
Madrid var beðið með mikilli
eftirvæntingu. Liverpool hefur far-
ið mjög vaxandi eftir að Þjóðverj-
inn Jürgen Klopp varð þjálfari liðs-
ins og er nú eitt
besta lið heims.
Carlo Ancelotti tók
við Madrídarliðinu í
fyrra og þótti það
ekki líklegt til stór-
ræða, en með ótrú-
legum hætti tókst
því að slá út hvert
stórliðið á fætur
öðru á leiðinni í úr-
slitaviðureignina.
- - -
Klopp hefur nú
komið Liver-
pool þrisvar í úrslit
meistaradeildarinnar og unnið einu
sinni. Hann gerði Liverpool að
Englandsmeisturum í hitteðfyrra
og missti naumlega af titlinum í
vor.
- - -
Ancelotti er sigursælasti þjálfari
allra tíma. Hann hefur fimm
sinnum komist í úrslit meistara-
deildarinnar og fjórum sinnum bor-
ið sigur úr býtum. Fyrir utan fjölda
annarra titla sem þjálfari og leik-
maður.
Liverpool átti mun fleiri færi í
leiknum og hefði markmaður
Madríd ekki átt nánast fullkominn
leik hefðu mörkin jafnvel orðið
nokkur. Madríd kom boltanum hins
vegar tvisvar í netið. Aðeins annað
markið taldist gilt, en mörgum hef-
ur ugglaust fundið hæpið að dæma
hitt markið af vegna rangstöðu.
Þessi leikur sýndi hvað lítið get-
ur skilið á milli feigs og ófeigs, ein
mistök, augnabliks andvaraleysi,
getur ráðið úrslitum.
- - -
Eru þeir sem tapa þá minni
menn? Real Madríd var ótví-
ræður sigurvegari, en í raun er
ekkert frá hinum tekið þótt erfitt
sé að sætta sig við annað sætið.
Carlo Ancelotti
Sigurvegarar og
veifiskatar
STAKSTEINAR
Jürgen Klopp
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Háskóli Íslands hefur fallist á ósk
heilbrigðisráðuneytisins um að flýta
útgáfu brautskráningarskírteina
þeirra nemenda í læknis-, hjúkrun-
ar- og lyfjafræði sem útskrifast í vor.
Þetta er gert svo unnt sé að afgreiða
starfsleyfi þessara stétta sem fyrst.
Þetta flýtir því um tæpan mánuð að
hlutaðeigandi geti ráðið sig til starfa
með fullgild réttindi á heilbrigðis-
stofnunum og er til þess fallið að
bæta mönnun á heilbrigðisstofnun-
um þegar sumarleyfi fara í hönd.
Ráðuneytið tilkynnti þetta í gær.
Með þessu er brugðist við ákalli
Landspítala og lyfjaverslana sem
þurfa að þjálfa nýútskrifaða heil-
brigðisstarfsmenn til nýrra starfa
áður en aðrir starfsmenn fara í sum-
arleyfi.
Undanfarin ár hefur færst í
vöxt að útskriftarnemar í heil-
brigðisgreinum sem hyggjast
sækja um starfsleyfi en eru ekki
komnir með formlegt prófskír-
teini leggi fram vottorð með um-
sókn sinni til embættis landlæknis
frá hlutaðeigandi menntastofnun,
til marks um að þeir hafi lokið
námi. Ekki hefur verið unnt að líta
á slík vottorð sem ígildi prófskír-
teina til að byggja á útgáfu starfs-
leyfis, segir í tilkynningu frá ráðu-
neytinu.
Geta hafið störf fyrr eftir útskrift
- Útgáfu skírteina flýtt fyrir nemendur
í læknis-, hjúkrunar- og lyfjafræði
Morgunblaðið/Eggert
Landspítalinn Brautskráðir kandí-
datar geta nú hafið störf fyrr.
Góðgerðardagur Kársnesskóla var
haldinn 19. maí sl. og söfnuðust alls
725 þúsund krónur sem afhentar
voru UNICEF á Íslandi á föstudag.
Styrktarféð rann til neyðarsöfnunar
UNICEF fyrir börn í Úkraínu, en
styrktarmálið var valið með lýðræð-
islegum hætti af nemendum í 7.
bekk.
„Við höfum verið að stíla inn á að
börn hjálpi börnum og það eru
krakkar í sjöunda bekk sem velja
sér málefni sem þeir vilja styðja,“
segir Björg Baldursdóttir skóla-
stjóri og bætir við að söfnunin hafi
gengið frábærlega vel í ár. „Það var
margt fólk sem kom og mikill pen-
ingur sem safnaðist.
Krakkarnir voru búnir að búa til
muni og baka alls konar sem þeir
selja. Það eru margir nemendur,
aðallega á miðstigi, sem taka þátt í
þessu en svo eru krakkar á öllum
stigum sem mæta með foreldrum og
eru með. Þetta er hálfgerð hverfis-
hátíð,“ segir Björg.
Börn hjálpa börn-
um á góðgerðardegi
- Kársnesskóli safnaði fyrir UNICEF
Ljósmynd/Kársnesskóli
UNICEF Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastýra á Íslandi tekur við fénu.