Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 30.05.2022, Qupperneq 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022 ✝ Jón Ágústsson fæddist í Chi- cago 9. júní 1965. Hann lést á MND- deild Droplaug- arstaða 19. maí 2022. Faðir hans var Ágúst Níels Jóns- son, fæðingar- og kvensjúkdóma- læknir, f. 2. júní 1934, d. 20. nóv- ember 2004. Móðir hans er Rannveig Pálmadóttir kennari, f. 21. maí 1936. Systkini hans eru Pálmi tré- smiður, f. 21. mars 1963, og Guðrún Fema, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur, f. 14. júní 1967. Árið 2001 kvæntist Jón Brynhildi Guðmundsdóttur vann sem sundlaugarvörður í Laugardalslaug, vann hjá Sölu- miðstöð hraðfrystihúsanna, Lyfjastofnun ríkisins og Kópa- vogshæli. Jón lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum við Sund árið 1985. Hann fluttist í kjölfarið til Bandaríkjanna og lauk þar nuddnámi 1989. Jón útskrifaðist svo sem þroska- þjálfi árið 1995. Fyrsta starf hans sem þroskaþjálfi var að sinna umönnun einstaklings með MND. Hann starfaði síðan á ýmsum sambýlum en hóf störf á Blindravinnustofunni 1997. Frá árinu 2013 vann hann á sambýli í Fannafold samhliða starfi sínu hjá Blindra- vinnustofunni þar til hann þurfti að hætta störfum vegna veikinda. Jón greindist með MND 8. apríl 2021 og lést af völdum þess hinn 19. maí 2022. Útför Jóns fer fram frá Guð- ríðarkirkju í dag, 30. maí 2022, kl. 13. þroskaþjálfa, f. 14. ágúst 1968. Þau skildu. Synir þeirra eru Þengill Fannar lífefna- fræðingur, f. 8. júlí 1996, og Þorgils Máni háskólanemi, f. 1. júlí 2000. Unn- usta Þengils Fann- ars er Elín Jóns- dóttir efna- fræðingur, f. 12. ágúst 1996. Eftirlifandi eiginkona er Guðrún Sigríður Ólafsdóttir, ljósmóðir og hjúkrunarfræð- ingur, f. 23. júlí 1972. Þau gift- ust 23. júní 2018 og eiga saman dótturina Ingileifu Valdísi, f. 16. nóvember 2014. Jón sinnti ýmsum störfum áður en hann fór í nám, hann Takk ástin mín! Takk fyrir tímann sem þú gafst mér með þér. Takk fyrir drengina okkar. Takk fyrir stelpuna okkar. Takk fyrir frábæra fyrrver- andi. Takk fyrir frábæru fjölskyld- una okkar. Takk fyrir að elska mig eins og ég er. Við áttum næstum níu dýrmæt ár saman og oftast var engin lognmolla í kringum okkur. Þegar við kynntumst var ég að reyna að eignast barn. Þess vegna var ég á báðum áttum hvort ég ætti að fara á fyrsta stefnumótið okkar. Mér fannst það svo skrítið einhvern veginn og ræddi það við góða vinkonu sem sagði: „Guðrún, það er pláss fyrir allt“. Þessi setning varð til þess að ég fór á stefnumótið og er einstaklega þakklát fyrir það. Ég er líka svo þakklát fyrir þessa setningu því það er svo mikill sannleikur í henni. Það er nefnilega pláss fyrir allt. Ef plássið er ekki til staðar þá býr maður til pláss. Það var pláss fyr- ir ástina okkar, pláss fyrir barnið sem kom óvænt, pláss fyrir veik- indi mömmu, við bjuggum til pláss fyrir gangráðinn og hjólat- úrana þótt ég hafi ekki viljað búa það pláss til fyrir brúðkaupsferð- ina okkar. Nú hlærðu örugglega. Spa fyrir mig – hjólatúr fyrir þig. Við hlógum mikið að þessu. Þú ætlaðir að hjóla hringinn um Ísland, strandleiðina, eins og þú gætir. Þér tókst að klára Reykjavík-Akureyri og Húsavík- Egilsstaði. Síðasta sumar stóð til að taka hringveg 2. Það tókst því miður ekki, því annað verkefni þurfti að fá pláss. Hver veit nema það verði klárað einhvern tím- ann, á annan hátt bara. Þú greindist með MND 8. apr- íl 2021. Það var ekki pláss fyrir þennan sjúkdóm en við sköpuð- um aðstæður til að takast á við hann. Þessi sjúkdómur er þjófur. Hann rændi þig og okkur svo miklu. Stundum velti ég því fyrir mér hvort hefði verið betra ef þú hefðir fengið að fara strax. Við vissum að svona færi en vissum bara ekki hvað við hefðum mik- inn tíma. Ég er þakklát fyrir þetta ár sem við fengum, ljúfsár- ar en dýrmætar minningar bætt- ust við. Ferðin okkar norður, ferðin okkar í Húsafell, ferðin okkar til Vestmannaeyja og allar stundirnar sem við höfum átt saman hér heima og á Droplaug- arstöðum. Þetta ár kenndi okkur margt. Við vitum núna að þessi sjúkdómur er þjófur sem stelur öllu sem hann getur um leið og hann getur. Við vitum líka að við erum umvafin stórum hópi af frá- bæru fólki sem hefur hjálpað okkur ótrúlega mikið og gert þetta ár eins bærilegt og það gat orðið. Fyrir það er ég einstaklega þakklát. Fallegi hláturinn þinn, fallega brosið þitt og yndislegu bláu aug- un þín sem ég sé nú bara á mynd- böndum. Það er sárt en samt svo gott að horfa á myndböndin af þér og heyra röddina þína. Við eigum eftir að njóta þess að horfa á þau og minnast þín og þeirra góðu stunda sem við áttum sam- an. Nú ertu örugglega farinn að hjóla aftur eins og vindurinn ást- in mín. Hjá mér verður alltaf nóg pláss fyrir allar minningarnar um þig og ástina okkar. Sorgin og söknuðurinn munu fá það pláss sem þarf. Það er pláss fyrir allt. Ég elska þig. Guðrún Sigríður. Ég sakna þín pabbi minn. Ég man þegar þú varst að leika við mig og vinkonur mínar og lyfta sófanum þegar við sátum í hon- um. Ég man þegar við fórum í hjólatúra og stoppuðum í Naut- hólsvík. Þú keyptir alltaf nesti, kex og tvær kókómjólk. Ég er stolt af þér fyrir að hafa lifað svona lengi. Ég elska þig pabbi minn, þú ert bestur, það kemur enginn í staðinn fyrir þig. Ég myndi gera allt til að fá þig aftur. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og takk fyrir allan kærleikann. Þú ert svo góður pabbi. Risaknús Inga Valdís. Elsku hjartans bróðir minn og vinur er fallinn frá eftir erfið veikindi og það er með sorg í hjarta sem ég skrifa þessi orð. Jón var magnaður einstakling- ur. Besti pabbi, ljúfur og sam- kvæmur sjálfum sér, sterkur, góður og besti bróðir sem hægt er að eiga. Það eru fá orð sem fá lýst hve dásamlegur bróðir hann Jón var. Það eru næstum ná- kvæmlega tvö aldursár á milli okkar þriggja systkinanna. Mikil samvera, gleði, slagsmál, hlut- tekning og úrvinnsla einkenndu okkar barnæsku og hefur í raun gert í gegnum vinskap alla tíð. Þar var Jón fremstur í að miðla málum og sætta ólík sjónarmið og alltaf boðinn og búinn að skakka leikinn ef of geyst var far- ið. Fljótlega eftir að við fluttum heim frá Bandaríkjunum með foreldrum okkar fórum við að æfa sund hjá Ægi og þar hófst íþróttamennska Jóns sem var hans lífsförunautur og hvati í heilbrigðum lífsstíl. Í sundinu eignaðist Jón kæra vini sem hafa fylgt honum alla tíð og tekið þátt í ævintýrum og áskorunum hans í blíðu og stríðu. Þau voru ófá kvöldin og næturnar sem sund- vinirnir sátu heima í Sigtúni og horfðu á vídeómyndir. Þar var Jón þekktur fyrir blístur sitt og falsettusöng. Ferðir í ísbúðina á Laugalæk voru einnig fastur lið- ur en þar kom Jón sterkur inn með töfrabragð tannréttinga- gómsins og sveiflaði honum á milli munnvika án snertingar. Eftir 10 ár í sundi fór Jón að stunda fjallgöngur ásamt vinum úr sundi og skóla og síðar að stunda hjólreiðar af miklu kappi, sannkallaður þríþrautarferill. Fyrir utan fjölskylduna áttu hjól- reiðar hug Jóns og hjarta síðustu ár. Við systkinin höfum ávallt ver- ið samrýnd og samstiga og það er því kannski ekki tilviljun að hluti barna okkar eru jafnaldrar og hafa fylgst að í skóla í Laugar- dalnum og sundi hjá Ægi. Þar var Jón alltaf tilbúinn að aðstoða og hvatti börnin áfram af mikilli alúð. Hann tók að sér að verða sunddómari til að geta verið nær krökkunum og var fararstjóri í mörgum keppnis- og æfingaferð- um þeirra. Ég minnist þess þegar Jón sagði mér söguna Bróðir minn Ljónshjarta þegar við vorum í barnaskóla en þá var verið að lesa bókina fyrir bekkinn hans. Ég flýtti mér alltaf heim í hádeg- inu til að fá síðustu fréttir af bræðrunum Jónatan og Kalla og ævintýrum þeirra í Nangijala. Nú hefur Jón sameinast pabba eins og Kalli sameinaðist Jónatan í Nangijala og þeir hjóla þar um í ævintýraheimi. Megi fjölskylda Jóns öðlast styrk og kraft til að takast á við sorgina sem nú knýr dyra. Hvíl í friði kæri bróðir. Þín systir, Guðrún Fema. Jón Ágústsson hefur lagt upp í hinstu ferð. Við urðum þeirra forréttinda aðnjótandi að kynnast Jóni á mis- munandi tímum í starfi okkar hjá Blindravinnustofunni. Öll höfum við sömu sögu að segja; hann var traustur vinnufélagi sem þótti vænt um fyrirtækið og starfsfólk þess. Hann lagði alúð í starf sitt og mætti hverjum einstaklingi af sanngirni og virðingu. Jón var mikill fjölskyldumaður og talaði af ástúð um konu sína og börn. Hann var stoltur af sínum nánustu og sagði okkar reglulega fréttir af þeim. Stundum hafði maður það á tilfinningunni að maður þekkti hans góða fólk jafnvel og manns eigin. Þó að Jón væri einstakt ljúf- menni var hann hörkutól þegar kom að hjólreiðum. Hann hjólaði til og frá vinnu allan ársins hring í áratugi – engu skipti þótt björg- unarsveitir væru á ferð vegna veðurs í borginni og aðrir treystu sér vart út. Hann skellti sér í hjólagallann og hélt út í kófið hvergi banginn. Hann notaði líka gjarnan tækifærið á leiðinni heim, ef veður var þolanlegt, til að hjóla góðan hring um borgina. Nú er ferðinni heitið lengra – við kveðjum góðan dreng og góðan vin með söknuði. Fyrir hönd núverandi og fyrr- verandi starfsfólks Blindra- vinnustofunnar sendum við fjöl- skyldu Jóns innilegar samúðarkveðjur. Hugur okkar er hjá ykkur. Ingólfur, Margrét og Eva. Mig langar að minnast vinar míns Jóns Ágústssonar með nokkrum orðum. Jón var glaðleg- ur og góður vinur. Hann var ekki að flækja hlutina að óþörfu og naut þess sem hann var að gera hverju sinni. Ég kynntist Jóni fyrst þegar ég gekk til liðs við Hjálparsveit skáta Kópavogi haustið 1991. Hann var þá annar af tveim nýliðaþjálfurum sem sáu um að leiða okkur nýliðana inn í starfið. Hann hafði svo sannar- lega þá festu og umhyggju sem þarf að hafa til að halda utan um hóp af ungu og hraustu fólki. Sem nýliðar í hjálparsveit þurft- um við að læra eitt og annað, s.s. rötun og skyndihjálp. Eitt af þeim verkefnum sem Jón bauð okkur að taka þátt í var að að- stoða hann við að fara með nokkra skjólstæðinga sína í æv- intýraferð í Þórsmörk. Jón var í þroskaþjálfanámi á þessum tíma og þarna var greinilega réttur maður á réttum stað. Hans hlýja og glaðlega framkoma var eftir- tektarverð. Smám saman dró Jón úr starfi með hjálparsveitinni þegar við tóku önnur verkefni sem kröfðust krafta hans. Hann stofnaði fjölskyldu og naut þess að sinna strákunum sínum og var líka stoð og stytta foreldra sinna. Við hittumst lítið næstu 20 árin. Ég kynntist Guðrúnu Sigríði haustið 2001 þegar við byrjuðum í ljósmæðranámi. Þar eignaðist ég trausta og skemmtilega vin- konu. Haustið 2013 kynntust Jón og Guðrún Sigríður eftir að Guð- rún Fema, systir Jóns, leiddi þau saman á stefnumót. Það var mikil gæfa fyrir þau að hittast og þvílík hamingja þegar þau fóru að vera saman. Þar sem ég þekkti þau bæði vissi ég að þau voru mjög heppin að hafa hitt hvort annað. Mér leist því strax mjög vel á þennan ráðahag. Þarna lágu leið- ir okkar Jóns því saman aftur og ég er afskaplega þakklát fyrir það. Það var ánægjulegt að kynn- ast Jóni upp á nýtt, við allt aðrar aðstæður. Við deildum áhuga á hjólreiðum og fórum saman í nokkrar góðar hjólaferðir. Á fal- legu sumarkvöldi í byrjun júní 2016 hjóluðum við frá Mos- fellsbæ í sumarbústað Jóns og fjölskyldu í Vaðnesi. Þessi hjóla- ferð gleymist aldrei. Guðrún Sig- ríður og Inga Valdís tóku á móti okkur í bústaðnum og Palli hjól- aði á móti okkur. Við tókum líka saman þátt í fjallahjólakeppnun- um Fellahringnum og Bláalóns- þrautinni og þá varð ég vör við keppnisskapið sem ég hafði ekki kynnst áður. Jón var mjög öfl- ugur hjólreiðamaður og fór um tíma allra sinna ferða á hjóli. Jón var sannkallað náttúru- barn og naut þess að hreyfa sig og vera úti. Það var því mikið af honum tekið þegar hann gat ekki lengur hjólað úti. Hann hjólaði inni eins lengi og hann gat og fór svo út í hjólastólnum eins oft og tækifæri gafst. Jón hafði gaman af því að bjóða heim vinum og fannst mik- ilvægt að skapa hefðir til að tryggja reglulega endurfundi góðra vina. Við Palli nutum þess oft að borða hina frægu ham- borgara sem Jón nostraði við og hafði gaman af að bjóða fólki að njóta með sér og fjölskyldunni. Jón var sannkallaður fjöl- skyldumaður og hugsaði vel um sitt fólk. Missir Guðrúnar Sigríð- ar og allrar fjölskyldunnar er svo mikill. Ég votta þeim öllum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði kæri vinur. Anna Sigríður Vernharðsdóttir. Jón var kræfur karl og hraust- ur. Þetta söng Þursaflokkurinn með tilþrifum á okkar sokka- bandsárum – og kannski ekki al- veg í þeim takti sem Jón bekkj- arbróðir okkar var þekktur fyrir enda rósemdarmaður, en svo sannarlega var hann hraust- menni í augum okkar allra með heilbrigða sál í heilbrigðum lík- ama. Og það með afbrigðum heil- steyptur á allan hátt, þannig að eftir því var tekið. Bekknum okkar var steypt saman úr mörgum brotum með krökkum úr ýmsum hverfum og landshlutum, og úr varð hinn víð- frægi 3. og 4. T. Sum höfðu verið með Jóni í skóla í Laugarnesinu frá því í sjö ára bekk, en aðrir þekktust mismikið. Þetta reynd- ist hin ágætasta blanda sem lagði grunn að ævilangri vináttu og væntumþykju, þótt stundum líði langt á milli hittinga. Jón var frumkvöðull að mörgu leyti þegar kom að heilbrigðu líf- erni, hreyfingu og útivist. Hann æfði sund, fór í fjallgöngur, hljóp, og hjólaði allra sinna ferða löngu áður en það varð að lífsstíl. Heim- ili hans í Sigtúni stóð okkur opið þegar mikið lá við, og þar voru 23 pör af strigaskóm, spreyjuð bleik, sem punkturinn yfir i-ið í dimmisjónbúningum bekkjarins í anda amerískra menntaskóla- gengja – Tælur og Töffarar. Jón hélt okkur líka glæsiveislu ári eftir útskrift til að ná hópnum saman, þriggja rétta máltíð með boðskorti og öllu. Það var klassi yfir því. Jón valdi sér líka nám og lífs- starf sem endurspegluðu gildi hans og viðhorf. Honum var um- hugað um að vinna með fólki og stuðla að bættri líðan og lífsskil- yrðum þeirra sem bjuggu við skerta getu. Hann var mannvin- ur, traustur, ljúfur en líka fastur fyrir og ákveðinn – og honum varð ekki haggað þegar hann hafði myndað sér skoðanir eða tekið ákvörðun. Það var yndislegt að hitta Jón þegar bekkurinn kom saman til að fagna 30 ára stúdentsafmæli vorið 2015. Hann var fullur af lífskrafti og hamingju, nýorðinn faðir í þriðja sinn og horfði bjart- eygur á móti framtíðinni með fjölskyldunni sinni. Það er gott að vita til þess hversu gæfurík síðustu ár hafa verið, og sárt að hugsa til þess að hann skuli hrif- inn svo snemma á brott. Lífshlaupi Jóns er lokið. Við þökkum fyrir samfylgd trausts og einlægs félaga, sem sannar- lega gerði heiminn að betri stað. Innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar allrar. Fyrir hönd bekkjarsystkin- anna 4.T, Sólveig Ólafsdóttir. „Þú getur átt von á mér eftir klukkutíma og átta mínútur.“ Nákvæmni Jóns og alvöruþrung- in alúð og natni við hvunndagsleg viðfangefni voru okkur sumum samferðamönnum hans sífellt undrunarefni – og okkur kæru- lausari mönnum og lausbeislaðri ákveðið tilefni til aðdáunar. Jón Ágústsson rækti skyldur sínar við fjölskyldu og vini á fölskva- lausan hátt og reyndist ævinlega traustur og hjálpsamur. Hann leiddi drengina sína eftir föngum til þess að þeir yrðu sjálfir dug- andi menn. Og hafði fyrir þeim íþróttir sínar, reglusemi og ná- kvæmni. Þótt Jón fetaði lífsgönguna af festu og öryggi lenti hann eins og allir aðrir í ólgusjó – og þurfti að takast á við erfiðleika. Þegar slitnaði upp úr hjónabandi hans og systur minnar fannst okkur í Brynhildar-liðinu leitt að svo skyldi fara, en aldrei fundum við fyrir kala í Jóns garð, þvert á móti. Og þegar hann stofnaði til nýrrar fjölskyldu með Guðrúnu Sigríði sinni, þá glöddumst við gamlir mágar hans yfir lífsfögn- uði sem hann átti í vændum. Þau eignuðust dótturina Ingu Valdísi, áttu góð ár saman. Jón hélt áfram að stunda vinnu sína og íþróttir. Hann var að ýmsu leyti ímynd hreystinnar; sundkappi, útivistarmaður og hjólreiðamað- ur af mikilli ástríðu fram eftir ævinni. Jón hafði í störfum sínum kynnst MND sem hjálparmaður sjúklings og fylgst með miskunn- arleysi sjúkdómsins. Þeim mun meira varð áfallið þegar hann greindist sjálfur með þetta sama mein. Jóni voru sköpuð harðvítug örlög síðasta misserið sem hann lifði, máttvana í klóm veikind- anna. Hann sem hafði verið ímynd hreystinnar, heilbrigður fram eftir ævi, mátti lifa það að lamast og hverfa að lokum sjálf- um sér. Jóns er ljúft að minnast, hinn nákvæmi hjálpsami mágur – og faðir frænda minna – hefur lagt í sína hinstu ferð. Við getum ekki annað en þakkað honum samfylgdina – og vottað nánustu aðstandendum hans innilega samúð. Góður drengur er geng- inn. Óskar Guðmundsson. Jón Ágústsson Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Á minningar- og andlátsvef mbl.is getur þú lesið minningargreinar, fengið upplýsingar úr þjónustuskrá auk þess að fá greiðari aðgang að þeirri þjónustu sem Morgunblaðið hefur veitt í áratugi þegar andlát ber að höndum. Andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar eru aðgengilegar öllum. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.