Morgunblaðið - 30.05.2022, Page 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2022
Kringlan ... alltaf næg bílastæði
Borðabókanir á
www.finnssonbistro.is eða
info@finnssonbistro.is
Frábær kostur í hádeginu
Djúsí
andasamloka
Þín upplifun skiptir okkur máli
30 ÁRA Steinunn er Reykvíkingur,
ólst upp í Grafarvogi en býr í Kópa-
vogi. Hún er hjúkrunarfræðingur og
starfar á Hjúkrunarheimilinu Eir í
Grafarvogi. „Áhugamál mín eru að
ferðast, eiga góðar stundir með vin-
um og fjölskyldu og slaka á í sundi.“
FJÖLSKYLDA Steinunn er í sam-
búð með Andra Þór Haraldssyni, f.
2.6. 1992, smiði hjá Íslenskum að-
alverktökum. Dóttir þeirra er Sóldís
María, f. 2021. Foreldrar Steinunnar
eru Brynja Guðbjörg Harðardóttir, f.
1964, kokkur hjá BM Vallá, og Daði
Kristjánsson, f. 1959, kokkur að
mennt en starfar sem blöndunar-
stjóri hjá BM Vallá. Þau eru búsett í
Grafarvogi.
Steinunn María Daðadóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Sambönd einkennast af óleystum
verkefnum og opnum loforðum. Reyndu að
sjá allt það góða í því hvernig hlutirnir
þróast og þú endar á toppnum.
20. apríl - 20. maí +
Naut Taktu það ekki nærri þér þótt til ein-
hverra orðaskipta komi milli þín og vinar
þíns. Sambönd þín eru krefjandi en þú ert
fullfær um að standa með sjálfu þér.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Fjölskyldumálin þurfa að ganga
fyrir öðru í dag því að mörgu er að hyggja.
Láttu neikvæðni annarra ekki draga úr þér
því þú veist hvað þú þarft að gera.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert svo kappsamur að sólar-
hringurinn dugar þér ekki til að koma öllu
því í verk sem þú vildir. Haltu áfram að
hlusta á tilfinningar þínar.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að söðla um og finna orku
þinni heppilegasta farveginn, að öðrum
kosti áttu á hættu að allt sé unnið fyrir gýg.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þröngsýnir einstaklingar hafa eyði-
lagt fyrir þér frammi fyrir öðrum. Ekki falla í
þá freistni að sýna öðrum óheilindi þó að þú
sleppir kannski við ágreining með því.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú færð góðar hugmyndir í dag um það
hvernig þú getur nýtt orku annarra til að
gera gagn. Vertu því til staðar til að liðsinna
þeim sem þurfa á aðstoð þinni að halda.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þig langar til að segja ein-
hverjum til í dag. Reyndu að sýna umburð-
arlyndi og forðast of mikla dómhörku.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Einhvern veginn tekst þér að
finna leiðir til þess að nota það sem gleður
aðra, þér til ánægju líka. Gefðu þér tíma til
að skoða tilfinningar þínar.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú getur nýtt sannfæringarkraft
þinn til að bæta aðstæður þeirra sem minna
mega sín. Gættu þess samt að lofa ekki upp
í ermina á þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hættu að bíða eftir því að aðrir
taki fyrsta skrefið. Hafðu í huga að þú ert
hluti af fjölskyldu sem er mannkynið, það
þrá allir ást og hamingju.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þörf þín fyrir að sleppa fram af þér
beislinu og taka þér frí frá vinnu eykst sífellt.
Þú hefur fulla ástæðu til að vera ánægður
því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér.
afnumin, öllum landsmönnum til
hagsbóta, samkeppni fyrirtækja
varð loksins virk, en áfram var bar-
að Kristmann afhenti stjórnina á
fyrirtækinu til barnanna á miðjum
níunda áratugnum. Verðlagshöftin
K
ristmann Örn Magn-
ússon fæddist 30. maí
1937 í Reykjavík.
Hann útskrfaðist frá
Verslunarskóla Ís-
lands árið 1956, og var sendur til
Pfaff-verksmiðjanna í Þýskalandi
tveimur árum fyrr eða um vorið
1954 til að hefja nám í viðgerðum á
saumavélum og stundaði þær með
skólanámi næstu tvö árin en varð
síðan fastur starfsmaður Pfaff árið
1956.
Faðir hans, Magnús Þorgeirsson
stofnandi Pfaff hf., lét Kristmann
koma snemma að rekstri og stjórn-
un fyrirtækisins og árið 1961 lét
Magnús hann taka við fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins sem
taldist til undantekninga á þeim
tíma enda Magnús sjálfur ekki nema
tæplega sextugur. Fram að þeim
tíma höfðu öll fyrirtæki á landinu
barist við innflutningshöft, innflutn-
ingsbönn, skammtanir og kvaðir um
að versla við lönd sem uppfylltu
mörg ekki gæðakröfur, en það voru
m.a. austantjaldslönd sem keyptu af
Íslendingum vörur gegn því að við
keyptum af þeim vörur í staðinn. Á
þeim tímum fengust aðeins tak-
mörkuð leyfi til að flytja inn þær
vörur sem Pfaff hf. var með umboð
fyrir. En einmitt árið 1961 tók við
stjórn landsins svokölluð Viðreisn-
arstjórn Alþýðuflokks og Sjálfstæð-
isflokks og eitt af aðalatriðum þeirr-
ar stjórnar var að rýmka um
innflutningshöft.
Það má segja að það sé hægt að
skipta rekstri Pfaff í þrjú tímabil.
Fyrstu árin 1929-1961 þegar Magn-
ús stjórnaði því varð hann að berjast
við ofangreind skilyrði, höft, höft og
meiri höft. Síðan tók Kristmann við
árið 1961 og þá var allt í einu hægt
að flytja inn meira af vörum sem
fyrirtækið hafði umboð fyrir. Þá tók
einnig við mikill uppgangstími hjá
fata- og prjónaiðnaðinum og var
hlutur Pfaff í þeim uppgangi gífur-
legur, enda var fyrirtækið með mörg
helstu og bestu umboð á vélum og
tækjum fyrir sauma- og prjónaiðn-
aðinn. En áfram var barist við verð-
lagshöft, gífurlega háa tolla og vöru-
gjöld. Þriðja tímabilið varð svo eftir
ist við stjórnvöld um óeðlilega háa
tolla og önnur innflutningsgjöld,
sem loks voru afnumin að mestu
leyti en þó ekki fyrr en árið 2015.
Kristmann tók snemma þátt í fé-
lagsstörfum sem tengjast verslun og
þjónustu, og sat í stjórnum Kaup-
Kristmann Örn Magnússon (Mannsi í Pfaff) – 85 ára
Börnin Birgir, Margrét og Magnús Ingi þegar Margrét fékk fálkaorðuna 17. júní í fyrra.
Umgengist saumavélar í tæp 70 ár
Hjónin Hjördís og Kristmann á góðri stundu.
Afmælisbarnið Kristmann.
Til hamingju með daginn
Kópavogur Sóldís María Andradóttir
fæddist 16. júlí 2021 kl. 19.18 á Fæð-
ingardeild Landspítalans. Hún vó
3.090 g og var 52 sm löng. Foreldrar
hennar eru Steinunn María Daðadótt-
ir og Andri Þór Haraldsson.
Nýr borgari